Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 29
DV Sjónvarp
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER2004 29
J.Lo opnar
dansskóla
Söng- og leikkonon Jennifer Lopez
hefur opnað dansskóla i
Bronx-hverfinu í New
York þar semhún ólst
upp. Á námsskránni
verður einungis salsa-
dans og segja kunnug-
ir að Lo komi til með að
kenna i nokkrum tim-
um sjálf. Dansskólinn
hefur verið gæluverk-
efni söngkonunnar í
nokkurn tíma en hún
vildi endilega gera eitthvað jákvætt
og gott fyrir gamla hverfið sitt. Lo er
nú að leika á móti Richard Gere i
kvikmyndinni Shall YJe Dance.
Robbie og
nýja
kærastan
Nýjasta kærasta söngvarans
Robbie Williams heitir Lisa Brach
og er einstæð tveggja barna móðir
frá Newcastle. Þau hittust fyrst i
veislu eftir fótboltaleik i heima-
borg hennar og segja sögurnar að
þau hafi ekki getað slitið sig hvort
frá öðru. Nýlega viðurkenndi
Robbie að hann væri
að leita sér að eig-
inkonu og vildi fyr-
ir alla muni stofna
fjölskyldu. Söngv-
arinn hefurátt fjöl-
margar kærustur,
meðal annars
söngkonuna Nicole
Appelton og
leikkonuna Önnu
Friel en hann hefur
einnig verið orðaður við Nicole
Kidman leikkonu og Geri Halliwell
söngkonu. Þá hefur hann sést á
stefnumótum með Aimee Os-
bourne, elstu dóttur Osbourne-
hjónanna og Valerie Cruz leikkonu.
Rithöf-
undurinn
Pamela
Anderson
Ofurgellan og kynbomban Pamela
Anderson segir nýútkomna skáld-
sögu sína sem heitir Stjarna vera
byggða á eigin reynslu. í bókinni
stundar aðal-
persónan með-
al annars kyn-
lífí lyftu, inniá
klósetti á veit-
ingastað og i
upptöku-
stúdíói.
Pamela segist
hafa langað
að segja sína
sögu og útgefendur hennar hafi
hvatt sig til að skrifa ævisögu sina.
En hún kaus að skrifa bókina sem
skáldsögu enda hafi hún haft mun
frjálsari hendur þannig. Eric Shaw
Quinn, sem aðstoðaði Pamelu við
skriftirnar, gerði athugasemdir við
óraunverulegar kynlifslýsingar en
dró þær til baka þegar Pamela
sagði honum að þær hefði hún lif-
að. Nokkrum köflum var sleppt þar
sem Pamela lýsti meðal annars
kynferðislegri misnotkun i æsku og
þegar henni var nauðgað á ung-
lingsárum affjórum strákum.
Það er eitthvað við breskar róm-
antískar gamanmyndir sem gerir þær
svo miklu betri en þær sem koma frá
Bandaríkjunum. Það vantar alla
þessa væmins vellu sem Kanamir eru
svo hrifnir af og fylla allar myndir
með. Ætli að það séu ekki bara hand-
ritin sem eru bara svo miklu betri,
persónur skemmtilegri og hæfileika-
ríkir leikstjórar til þess að pakka
þessu öllu inn í flottan pakka.
Ég setti stórt spumingarmerlá við
þessa mynd þegar ég frétti af henni
fyrst. Mynd um tennis, leiðindasport
til að byija með og skartaði leikurum
í aðalhlutverkum sem ég set ekki á
háan pall. Paul Bettany hefur oftast
leikið svona lúðalega plebba sem
eiga að vera fyndnir og það er eitt-
hvað við hana Dunst sem fer í taug-
amar á mér. En þeim tekst að vera
bara nokkuð góð þótt að fröken
Dunst takist stundum að vera pirr-
andi.
Bettany leikur Peter Colt, út-
brunninn atvinnumann í tennis sem
er að halda á sitt síðasta Wimbledon
mót og ætíar eftir það að leggja spað-
ann á hiliuna. Hann var eitt sinn hátt
skráður í bransanum en álit á honum
hefur fallið verulega, svo mikið að
bróðir hans veðjar ailtaf gegn honum
í leikjum.
Dunst er Lizzy Bradbury, ung
rísandi stjama með bein í nefinu og
ekki hrædd við að setja sig upp gegn
pabba sínum og finnst það þjóðráð á
finna sér einhvem til þess að hafa
mök við rétt fyrir leik. Colt verður fyr-
ir valinu í þetta skiptið og h'st bara vel
á. Upp úr því hefst svo farsælt sam-
band, sérstaklega fyrir Peter, þar sem
hann byrjar að spila eins og btjálæð-
ingur og vinnur hvem leikinn á fætur
öðrum en Pabba Lizzy finnst þetta
vera að koma í veg fyrir gott gengi
dóttur hans í keppninni og vill að þau
hætti þessari vitleysu á stundinni.
Ég einhvem veginn bjóst við að
tennisíþróttin yrði fyrirferðameiri en
Wimbledon Leikstjóri: Richard Loncraine Aðalhlutverk: Kirsten
Dunst, Paul Bettany, Sam á|
Neill, Jon Faverau. r
★ ★★ M
Ómar fór í bíó
raun varð í þessari ræmu. Ég var að
búast við að framleiðendumir
myndu eyða miklu púðri í að gera
íþróttina eins töffaralega eins og þeir
gátu með Matrix-legum skotum og
annarri vitleysu. En blessunarlega
halda þeir aftur af sér og þau atriði
em mjög vel gerð og ekki fitíl af aug-
ljósum stafrænum stælum.
Handritið er einfalt en gott og
myndin öll hefur einhvem skemmtí-
legan brag yfir sér sem smitar út frá
sér. Þeim tekst meira að segja að gera
lokaleik myndarinnar spennandi og
maður er ekki alveg viss hvort að Pet-
er vinnur eða tapar.
Paul Bettany er bara nokkuð góð-
ur í aðalhlutverkinu, þótt ég efist um
að hann verði aðalhlutverks-efni í
Ameríku, en hér plumar hann sig vel.
Dunst er bara, eins og hún er alltaf,
hvorki góð né vond. Gaman var að sjá
Nikolaj Coster Waldau í hlutverki
besta vinar Peters, en maður hefur
ekki séð hann í kvikmynd síðan
Nattevagten.
Þeir sem hafa haft gaman af Brid-
get Jones’s diary og Love acmally og
öllum þessum fínu bresku gaman-
myndum ættu ekki að verða fyrir
vonbrigðum með þetta. Fínasta
skemmtun. Ómar öm Hauksson
Victoria Beckham er áhyggjufull vegna allra látanna í kringum ei
Konunglegur læknir
tekur á móti barninu
Það dugar ekkert minna en kon-
unglegur læknir þegar ófætt barn
glæsihjónanna, Victoriu og Davids
Beckham, er annars vegar. Victoria
mun hafa gengið frá samningi við
lækninn sem alla jafna sinnir Juan
Carlos Spánarkonungi og fjöl-
skyldu hans. Esteban Carracedo
heitir læknirinn og er sérmenntað-
ur í kvensjúkdómum. Carracedo
mun fylgjast náið með meðgöngu
Victoriu og verður til taks þegar að
fæðingunni kemur en barnið er
væntanlegt í heiminn í mars á
næsta ári.
Vinir Beckhamhjónanna segja
að Victoria h'ti áhyggjufull til næsta
mánaða. „Hún óttast að álagið í
kringum David muni hafa áhrif á
meðgönguna og vill gera allt til að
forða frekari vandræðum,” segir
vinur hjónanna. Fjölmiðlar hafa
gert því skóna að undanförnu að
hjónabandið standi á brauðfótum
íinmannmn
og óstaðfestar heimildir herma
að hjónakornin hafi í tvígang
rifist heiftarlega að undan-
förnu. Ágreiningsefnið var í
bæði skiptin það sama - full-
yrðingar Rebeccu Loos um
að hún hafi sofið hjá fót-
boltakappanum. David og
Victoria neita þessu og reyna
hvað þau geta að halda and-
litinu og segja sátt ríkja
þeirra í millum.
AgóðristunduV'irtona
ogDavidreyna hvað þou
aetaaðhaldaandhtinu
og blásaásögusagnirum
aðhjónabandiðséírust.
Stjörnuspá
María Sigurðardóttir, leikstjóri er fimm-
tug í dag. „Dula umlykur konu þessa.
Hún leyfir ekki hverjum sem verður á
vegi hennar að kynnast
. sér náið. Hún kann að
b virðast skrýtin en það
I er eingöngu misskiln-
jingurþeirra sem
' þekkja hana ekki. Hún
rer skapandi, gjöful og
I góð alla leið," segir í
1 stjörnuspá hennar.
María Sigurðardóttir
VV' Vatnsberinn (20.jan.-u. febr.)
W -------------------------
Tilvera þín er án efa rík af
skemmtunum og ágætu fólki sem þú
sjálf/ur kýst að umgangast og færir þér
oftar en ekki mikla hamingju.
H
Fiskarnir/;?. febr.-20. mars)
Ef þú tilheyrir stjörnu fiska
reynir þú án efa að hylja feimni þina
með fálæti þessa dagana.
T
Hrúturinn (21.mars-l9.c
Þér er ráðlagt að ávinna þér
traust þeirra sem starfa með þér. Þú ert
fær um að sýna í verki eiginleika þinn
sem felst í mannlegum samskiptum en
gættu þín á já fólki því valdastaða virð-
ist bíða þín ef þú tilheyrir stjörnu hrúts-
ins. Gleymdu ekki að fólk kýs að láta að
léttri stjórn.
ö
Hi\í6b(20.aprll-20.mal)
Ef þú hefur ekki notið dægra-
styttingar lengi vel er komið að þér að
iðka áhugamál þín endrum og eins. -
Kannaðu vel hvers konar manngerð þú
telur þig vera og hugaðu enn betur að
áherslum þínum.
n
Tvíburarnir (21 . mal-21.júni)
Gáfur og ómældir hæfileikar
einkenna stjörnu þína og þú ættir, mið-
að við áhrifastjörnur þínar næstu daga,
að upplifa stöðuhækkun sem tengist
starfi þinu á einhvern máta eða jafnvel
félagsstörfum.
K(dbbm(22.júnl-22.júlí)
•—-------------------------------
Þú getur orðið áhrifavaldur í
lífi fólks ef þú kýst að gera svo en hér
kemur sterklega fram að þú átt það til
að ásaka sjálfið fyrir hluti sem tengjast
þér ekki á neinn hátt. Hugarró er ein-
kunnarorð krabbans.
Lj Ó P Í ð (H.júli- 22. ágúst)
Ljónið birtist hér sífelit á
hlaupum. Þú virðist reyndar vera fús til
að gefa náunganum hluta af tíma þín-
um þó ógrynni verkefna bíði þín en þú
ættir að gera meira af því að aðstoða þá
sem leita til þin því gjafirnar sem þú
gefur koma margfalt til þín aftur í
annarri mynd.
Meyjanpi ógúst-22.sept.)
Hlífðu sjálfinu við því sem
dregur þig andlega og líkamlega niður
og gleymdu ekki að minna þig á eigin
vellíðan þegar þér líður vel. Einungis ef
þú sýnir sjálfsaga nærðu árangri.
Q Voqm (21 sept.-23.okt.)
Dagarnir framundan verða
jafnvel strembnir á köflum þar sem eig-
inleikar þínir koma sér vel. Ævintýri er
um það bil að hefjast þar sem þú fyllist
af orku og vellíðan.
TTU
Sporðdrekinn (2iokt.-21.n0vj
Framkoma þín er vissulega að-
laðandi en þú mátt ekki gleyma eigin
þörfum. Vertu meðvitaður/meðvituð í
hvað þú eyðir tíma þínum og með
hverjum næstu daga og vikur.
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Horfðu vel í kringum þig kæri
bogmaður og sýndu sjálfinu hvað það
er sem þú kannt sannarlega að meta
við lífið. Settu þig í samand við þitt
innsta eðli og hlustaðu betur.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Líðan þín breytist vissulega
með árstíðunum þar sem hugsanir þín-
ar og viðhorf til umhverfisins einkenna
þig á mismunandi vegu. Með komu
vetrar færist yfir þig falleg birta og mikil
gleði sem eflir orkustöðvar þínar og
styrk þinn og stjórn þína á skapi þínu
miðað við stjörnu steingeitar hérna.
SPÁMAÐUR.IS