Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 Fréttir DV Herra eyrnasíður Bassethundurinn Jack sem býr í Þýskalandi og er talinn hafa lengstu eyru í heimi, hefur verið tryggður fyrir 30 þúsund pund en eyru hans eru 33.19 cm síð. Carsten Baus eigandi hans segir að þegar hann las grein í blaði um hund sem ætti heimsmetið, með rúmlega 29. cm löng eyru, hafi hann ákveðið að mæla eyru Jack’s. Staðarblaðið í bænum birti frétt um málið og fljótlega fékk eigandinn upphringingu frá heims- metabók Guinness og metið hefur nú verið skráð. Hrekkjavökubúningar fyrir hunda Kona sem á tískuverslun fyrir hunda í Michigan hefur nú til sölu í verslun sinni Hrekkjavökubúninga fyrir hunda. Hundarnir hennar verða dressaðir upp í búninga rétt eins og börnin. Ruby, sem er Yorkshire terrier, verður klædd í pils og með tagl í hárinu og Schnauzerinn, sem er orðin 12 ára, klæðist nornabúningi í anda Hrekkjavöku. Frúin segir að það góða við hundana sé að þeir klæðist því sem hún setji þá í án þess að kvarta. Búningarnir kosta frá 1.500 krónum og eru til í mörgum útgáfum. Bergljót Davíðsdóttir skrifarum dýrin sín og annarrad miðvikudögum í DV. | HAUSTTILBOÐ Full búð af nýjum vörum fyrir hunda, ketti og önnur gæludýr. 30% afsl. af öllum vörum Mán. föstd. 10-18, laugard. 10-16, sun 12- 16. Tokyo, Hjallahrauni 4. Hfj. S. 565 8444 Vakin til lífsins með kossi Það hendir ekki hvern sem er að vera vakinn til lífsins með kossi fallegrar konu og allra sist geta hundar átt von á slíkum atlotum. Staf- fordshire bull terrierinn Gracie, var með eig- anda sinum að leik I skemmtigarði I Exeter i Englandi þegar boltinn sem hún var meði kjaftinum hrökk ofan í kok á henni og hún náði ekki andanum. Hún var meðvitundar- laus og að dauða komin þegar Nikki Ryder kom að og gerði það eina rétta. Hún náði að þrýsta á háls hennar þannig að boltinn hrökk til baka. Það dugði ekki til þvihúnvar hætt að anda. Þá gerði Nikki það eina rétta, hún beitti munn við munn aðferðinni og blés lifi íhundinn aftur. Á eftir sagði Nikki þetta alls ekki hafa verið óþægilegt, húnhafí ein- faldlega verið að bjarga lifí. Susan Bartlett, eigandi tíkurinnar, sagðist ekki geta þakkað Nikki nógsamlega. Páfagauknum Jakobínu var stolið um áramót og fannst ekki þrátt fyrir stöðuga eftirgrennslan. Það var ekki fyrr en konan sem bjargaði henni kom með hana í snyrtingu að málið upplýstist. ■% / a ■■■ :% f m m JF f | m f ■■ Pafagauk bjargað ur klom oreglufolks „Jakobínu var stolið um áramótin síðustu úr gæludýraverslun inni Trítlu. Hennar var leitað lengi en fannst ekki þar til kona kom hingað í september og vildi láta snyrta fugl sem hún hafði keypt fyrir lítið af einhverju óreglufólki. Þá kom það sanna í ljós,“ segir Ingólfur Tjörvi eigandi gæludýraverslunar- innar Furðudýr og fylgifiskar. Jakobína var illa á sig komin, goggur hennar og klær voru ofvaxin og hún var óhrein og illa hirt. Ingólf- ur segir að það hafi ekki verið kon- unni sem keypti hana að kenna; hún hafi hugsað vel um fuglinn en kannski ekki haft þekkingu á hvern- ig ætti að hirða hann. „Hún kom einmitt til þess og einnig til að leita sér upplýsinga um meðferð. Glögg afgreiðslustúlka hjá okkur áttaði sig á hvaða fúgl þetta kynni að vera. Við hringdum síðan í eiganda hennar sem staðfesti að þarna væri Jakob- ína komin í leitirnar," segir Ingólfur. Konan sem bjargaði Jakobínu úr ldóm óreglufólksins vissi lítið um veru Jakobínu en taldi að hún hefði ekki átt náðuga daga og lítið verið um hana hugsað. Ingólfur segir að hún hafi verið vannærð og þess vegna hafi goggurinn vaxið þannig að hún á ekJd auðvelt með að loka honum. Hann þarf því að sverfa í réttar skorður smátt og smátt. Ingólfur Tjörvi segir að óreglufólk- ið hafi að öllum líkindum lítið vitað hvernig átti að fara með fuglinn og gefið honum rangan mat og jafnvel lítið að borða. „Hún var böðuð hjá okkur og vatnið varð gult af tóbaks- reyk og öðrum óefnum sem að öU- um líkindum hefur verið neytt í kringum hana,“ segir hann og bætir við að svona Amazonfuglar tengist fólki rétt eins og hundar og kettir. Það taki hana tíma að jafna sig. Nú bíður Jakobína þess að trygg- ingafélagið sem virði hennar tU læti í Paradísarheimt og biður þess að trygginga félagið leysi máiið. Þá fer hún annað hvort til upp- haflegs eiganda eða bjargvættarins. greiddi and eigandans, þegar hún hvarf, ákveði hvað verði gert. Hvort konan sem kom með hana fær hana aftur eða eigandinn í Trítlu kaupi hana tU baka af tryggingafé- laginu. ÍS OFFABO^ Aay\óW' og hunda/e/. (> Simi:5674020 G*m:8992067/8602067 www.voffaborg.com voffaborgQaimnotis Ný sendina af fuglum og nagdýrum DÝRARÍKIÐ OýfaHklð 6r«ntó*ve|i i:56846M • Dýr«nk«i Akureyrl s:4ó12540 ■ www.dyrarlktd.ií Moritz og Maxí í sprautur Á leið í kavíar og túnfisk í Hollandi Fyrir viku sögðum við frá kis- unum Moritz og Maxí sem hyggja á flutninga til Hollands þar sem eigandinn bíður þeirra. Liður í flutningunum voru sprautur hjá dýralæknunum í Garðabæ. „Það gekk bara vel og þær voru hinar bestu á meðan jakobína dýralæknir sprautaði þær,“ sagði Ingi Jensson, teikn- ari og eigandi þeirra, sem bíður spenntur eftir að móðir hans birtist með þær á teikniborðið hans í Arnheim. Nú verður að bíða í mánuð þar til hægt er að mótefnamæla og fljótlega eftir það er hægt að halda af stað. „Hjá mér bfður þeirra kavíar og túnfiskur," segir Ingi, spenntur að fá þær til sín. Þær eru hins vegar í besta yfirlæti hjá móður hans í Garðabæ. , - aýláta yfir sig ganga Moritz kippir sér ekki mikið upp við sprautuna enda vafalaust að hugsa um kavíar og túnfisk sem b'iður hennar I Arnheim.Jakobína dýralæknir er einbeitt á svipinn og aldeilis ekki að sprauta köttífyrsta sinn. Fordómar sprottnir af þekkingarleysi Fyllsta ástæða er til að hamra á því, þannig að fólk skylji, að Doberman og Rottweilerhundar eru hvorki hættulegri eða árásargjarnari en aðrir hundar. Hver man ekki eftirþviþegar fyrst fór að bera á Scheffernum hér á landi? Fólk taldi hann allra hunda hættulegastan og sáu fyrir sérSS menn siga þeim á fólk sem hundarnir siðan rifu i sig. ímyndin úr biómyndunum var lengi sterk. Nú dettur engum i hug að þýskur fjárhundur sé hættulegur. Á sama hátt er imyndin sterk um Doberman og Rottweiler sem sjást gjarnan i biómynd- unum sem grimmdin uppmáiuð. Það sanna er að allir hundar geta verið hættulegir í höndum hættulegra manna eða þeirra sem ekki kunna að fara með þá. Hundur dregur alltafdám afeiganda sinum og þeir fordómar sem tegundirnar hafa orðið fyrir eru með öllu óásættanlegar. Flest allar hunda- tegundir elta ketti. Dæmi eru um að fleiri hundategundir hafi drepið ketti en þess ber aðgeta að köttur snýst alltaf til varnar efað honum er þrengt og oft- ast hrekja þeir hundana burtu með skottið á milli lappanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.