Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 Fréttir DV Bin Laden eríKína Breskur leyniþjónustu- sérfræðingur, Gordon Thomas, segir að Usama bin Laden haldi til í Kína og hafi verið þar frá þvf í fyrrasumar. Leyni- þjónstur Bandaríkj- anna, Pakistans og fleiri landa hafa árum saman reynt að hafa uppi á bin Laden en án árangurs. Gordon segir að bin Laden hafi fengið húsaskjól í Kfna gegn því að múslimar í norðvesturhér- uðum landsins héldu sig á mottunni. Nú séu kínversk stjórnvöld hins vegar í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn um að framselja bin Laden og að það eigi að gerast fyrir kjör- dag í Bandaríkjunum en það yrði veruleg rós í hnappagatið fyrir Bush. Lokaði sig inni í 14 ár Kona f Rúmeníu hef- ur ekki farið úr húsi sínu í 14 ár og vill með því sanna fyrir eiginmanni sínum, sem situr i fang- elsi, að hún sé honum trú. Eiginmaðurinn var handtekinn 1987 fyrir að myrða tvo eldri borgara og dæmdur í 23 ára fangelsi. Hann á enn eft- ir að afplána sex ár af dóminum. Fyrir 14 árum, er hann fékk að heimsækja konu sína, sakaði hann hana um framhjáhald. Hún sagði þá að til að sanna sak- leysi sitt myndi hún ekki fara út úr húsi fyrr en hann væri laus úr haldi. Systir hennar sér um matarinnkaupin og ann- að og læsir svo húsinu á hverju kvöldi. Sting vill apa í stað Bush Breski tónlistarmaðurinn Sting segir að api myndi standa sig betur í starfi í Hvíta húsinu en George W. Bush. Þetta segir Sting í við- tali við þýskt blað. Hann orðaði þetta þannig að ef hann hefði atkvæðisrétt í Bandaríkjunum myndi hann frekar vilja kjósa simpansa en Bush. „Stjómmálamenn eiga að sýna að þeir geti hugsað og tjáð sig. Bush sýnir merki um hvorugt," segir Sting sem heldur vill sjá Kerry í forseta- embættinu þrátt fyrir að Kerry skorti húmor. Guðmundur Hraunfjörð hús- næöisfulltrúi Fjarðabyggðar: „Ég er formaður leikfélagsins hérna og við erum að undir- búa frumsýningu á leikritinu Álagabærinn þann 7. nóvem- ber. Þetta ersöngur, glens og grín sem byggirá30árabið........ íbúanna fei H fffl tTl hérna eftir “ - • --------—— • stóriöju en upphaflega heitið á leikritinu var Beöið eftir Hydro. Ég og Óttar Guðmundsson skrifuðum beinagrindina að verkinu en síðan hafa nokkrir aðrir einnig komið að skrifun- um. Við höfum svo fengið Ár- mann Guðmundsson til að leikstýra." Lögreglan handsamaði Arnþór Jökul Þorsteinsson í fyrrakvöld. Arnþór hafði strok- ið úr gæsluvarðhaldi fyrr um daginn en var ekki talinn hættulegur að mati lög- reglunnar. Sama kvöld og Arnþór flúði gekk hann hins vegar berserksgang á Dominos í Hafnarfirði. Stökk yfir afgreiðsluborð og tók vaktstjóra hálstaki. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir lögregluna hafa fengið þær upplýsingar að Arnþór væri „ljúfur sem lamb“. Strokufanginn gekk ber- serksgang á Dominos „Hann var bara geðveikur," segir starfsmaður Dominos í Hafn- arfirði sem var á vakt þegar Arnþór brjálaðist inni á staðnum. Lögreglan hafði leitað að Arnþóri frá því snemma á mánudaginn en sú leit hafði ekki borið árangur. Arnþór var ekki talinn hættu- legur í tilkynningu sem barst frá lögreglunni eftir flóttann. Starfsmaður Dominos segir Am- þór hafa komið inn á staðinn og beðið um að fá að hringja. Hann hafi verið í annarlegu ástandi og með bjórdós í hendinni. Starfsfólkið hafi á endanum leyft honum að hringja enda hafi hann verið ffekar ógnandi. Réðst á vakstjóra „Honum tókst samt ekki að stimpla inn númerið," segir starfs- maðurinn og lýsir Arnþóri sem - ffekar sjúskuðum. „Það getur vel verið að honum hafi fundist að við værum að hlæja að honum. Hann öskraði og var með geðveikislegt augnaráð. Það fór um mann að sjá hann.“ Starfsmaðurinn segir að næst hafi það gerst að vakstjórinn hringdi í lögregluna. Þá hafi Arnþór byrjað að sparka í afgreiðsluborðið, stokkið svo yfir, gripið vakstjórann hálstaki og gripið símann. Með bleika borðann „Allt í einu þaut hann svo út og skömmu síðar þustum við út í glugga þegar lögreglan kom á svæð- ið. Þetta voru þrír lögreglubílar og slatti af löggum sem þustu út og gripu manninn. Hann var tjóðraður á höndum og fótum og hent inn í b£l,“ segir starfsmaðurinn sem vildi ekki koma fram undir nafni en sagði eitt hafa verið sérstaklega kald- hæðnislegt - Arnþór hefði verið með bleika borðann, sem á að vekja athygli á baráttunni gegn brjósta- krabbameini, nældan í jakkann sinn. Ekki hættulegur! Amþór var í lausagæslu vegna vopnaðs ráns sem hann framdi í Hringbrautarapóteki 4. september. Þá ruddist hann inn í apótekið vopnaður skammbyssu og stal geð- lyfjum. Arnþór á einnigyfir höfði sér Oominos-pitsur Hafnarfirði Starfsmaður segir Arnþór hafa verið l annarlegu ástandi. Arnþór Jökull Þorsteinsson strokufangi Réðstá starfsmann Dominos f Hafnarfirði. „Hann öskraði og var með geðveikislegt augnaráð. Það fór um mann að sjá hann." dóma fyrir tvö önnur mál. í því fyrra ógnaði hann manni með afsagaðri haglabyssu og í því síðara trylltist hann inni á bensínstöð, ógnaði afgreiðslumanni með fjaðurhnífi og framdi eignaspjöll áður en hann hljóp út. í tilkynningu ffá lögreglunni í gær var því haldið fram að Arnþór væri ekki hættulegur. Geir Jón Þóris- son yfirlögregluþjónn segir þá stað- hæfingu hafa verið byggða á þeim upplýsingum sem lögreglan hafði um manninn. f annarlegu ástandi „Hann hefur verið ljúfur sem lamb í gæsluvarðhaldinu og fanga- verðir báru honum góða söguna,“ segir Geir Jón. „Þess vegna var hann ekki í handjárnum þegar átti að flytja hann milli fangelsa á mánu- daginn.“ Geir Jón játar því að tengsl séu á milli ofbeldishegðunar Arn- þórs og vímuefnanotkunar. Hann sé hættulegur þegar hann er í annarlegu ástandi. ■ÉMife, „Við gátum hins vegar Ö ekki gert ráð fyrir því að * hann myndi leita í einhver efni þegar hann slapp. En þetta sýnir svart á hvítu að þegar maðurinn kemst í vímuefni er hann hættulegur umhverfinu." Amþór er nú í gæslu á Litla- Hrauni. simon@dv.is Tuttugu ára eltingarleik lokið Starfsmenn Kerrys á þekktum bar Lögreglan drepur „Hróa hött" Indlands Eftirsóttasti glæpa- maður Indlands, Veer- appan, er fallinn. Lögregl- an á Indlandi skaut hann til bana eftir um klukku- stundar langan skotbar- daga í frumskóginum í Tamil Nadu f suðurhluta landsins. Veerappan sem einu sinni stærði sig af því að búta niður fómarlömb sín og nota þau í fiskifóð- ur var um tuttugu ára skeið á flótta ffá lögreglunni. Margir af fátækari íbúum Ind- lands kölluðu Veerappan nútíma „Hróa hött“ sem rændi frá þeim ríku og gaf til þeirra fátæku. Hann var sakaður um að hafa 120 morð á samviskunni, mörg þeirra á lögreglumönnum og skógarvörðum. Hann var einkum þekktur fyrir viðamikið yfirvaraskegg sitt og öðl- aðist frægð innanlands fyrir hæfileika sína til að forðast handtöku og árás- ir á yfirvöld. Arið 1993 setti ind- verska lögreglan á fót sérstaka deild sem hafði það eitt að mark- miði að ná Veerappan. Honum tókst þó að forðast þessa deild allt þar til á mánudag að lög- reglunni tókst að króa hann af og skjóta til bana. Reyndu að mynda Bush-stúlkur á fylleríi Um sfðusm helgi er Bush-tví- burarnir Jenna og Barbara mættu á uppáhaldsbarinn sinn í Washington, Smith Point, til að eyða kvöldinu á fylleríi með vinum sínum, voru starfsmenn úr kosningaliði Johns Kerry mættir á staðinn. Reyndi Kerry-fólkið hvað það gat til að ná myndum af tvíburunum við þá iðju sem þær eru hvað þekktastar fyrir. Eins og venjulega þegar Bush-tví- burarnir mæta á Smith Point fengu þær og um 20 vinir þeirra borð innar- lega á þessum vinsæla bar. Og um leið tóku drykkir að streyma í stríðum straumum á borðið. Bo Blair, eigandi barsins, segir að um eittleytið um nóttina hafa þrír starfsmenn frá kosningaskrifstofu Kerrys mætt á barinn og tekið til við Bush-tvíburarnir Drykkir runnu í stríðum straumum eftirað Bush-tvíburnarnir mættu á barinn. að mynda tvíburana í gríð og erg. Einhverjir af vinum tvíburanna báðu kosningaliðið að hætta þessu og um tíma lá við blóðugum slagsmálum á bamum en Bo segir að honum hafi tekist að koma í veg fyrir það með því að vísa Kerry-liðinu út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.