Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Hnífamaður
sektaður
Tæplega fimmtugur
maður hefur verið dæmdur
til að greiða 15 þúsund
krónur fyrir að sveifla hnífi
og ota að tveimur bræðrum
í Mosfellsbæ. Maðurinn
sagðist muna ólóst eftir at-
burðinum þar sem hann
hefði verið á tveggja eða
þirggja daga fylleríi. Bræð-
umir urðu á vegi mannsins
þegar hann var að koma af
krá í bænum að næturiagi.
Maðurinn hefur brotið um-
ferðar- og fíknefnalöggjöf-
ina og gerst sekur um
auðgunarbrot og fengið
fjölmarga dóma frá 1977.
Hann hefur þó ekki áður
gerst sekur um ofbeldis-
brot.
Lögregla yfir-
heyrði dóp-
listamann
Lögreglan yfirheyrði í
gær Björn Sigurðsson í
Krummahólum í Breiðholti
vegna nafnaUsta yfir dóp-
sala sem hann birti á vef
sínum dopsalar.tk. Nöfn
tveggja lögreglumanna eru
á vefiium og hefirr annar
þeirra kært Bjöm. „Lögregl-
an reiknaði með því að
báðir myndu kæra. Ég er
kærður fyrir að segja að
þeir séu dópsalar, en ég hef
alla tíð haldið því fr am að
þeir lækju upplýsingum, en
seldu ekki dóp," segir
Björn, sem telur sig ekki
hafa brotið lögin. „Ég get
ekki séð að ég hafi brotið
nein lög, þó að lögfræðing-
ur Persónuverndar segi að
þetta sé íslenskt brot þá er
vefsíðan erlend."
Veðurmælir
fauk út í sjó
Einn af veðurmælum
Vegagerðarinnar á Kjalar-
nesi fauk á haf út í einni af
verstu vindhviðunum sem
urðu í óveðrinu á
þessum slóðum í
gær. Um er að
ræða einfaldan
mæli sem sýnir
vindstyrk, vindátt
og hitastig. Vega-
gerðin hefur sett þessa
mæla upp víða um land og
hægt er að nálgast mæling-
arnar úr þeim á netinu. Nýr
mælir var settur upp á Kjal-
arnesi síðdegis í gær.
Ný, skínandi og skær umferöarljós hafa vakið undrun bílstjóra í Reykjavík. Verið
er að skipta út gömlum glóperum í umferðarvitunum út fyrir aðrar og nýrri sem
heita díóður. Gatnamótin verða sem ný.
„Þetta á eftir að koma sér vel þegar sdl verður lágt á lofti. Þá sjást
þau vel og fara ekki framhjá neinum," segir Dagbjartur Sigur-
brandsson, umsjónarmaður umferðarljósa hjá Reykjavíkurborg.
Dagbjartur hefur að undan-
förnu stjórnað framkvæmdum
við umferðarljós höfuðborgarinn-
ar þar sem skipt hefur verið um
hausa á umferðarljósunum og
nýjar og skærari perur leyst þær
gömlu af hólmi.
Ofbirta
„Þetta er nýjasta tækni á þessu
sviði og er að ryðja sér til rúms
víða um heim. Við ætlum að vera
með þetta alls staðar," segir
Dagbjartur en nýju ljósin hafa
vakið mikla athygli, svo mjög að
sumir hafa fengið ofbirtu í augun.
„Enginn hefur kvartað beinlínis
en þetta er mikið í umræðunni á
meðal bflstjóra. Við tökum eftir
því.“
Glóperur út
í gömlu umferðarljósunum eru
glóperur sem eyða miklu raf-
magni en Dagbjartur telur að raf-
magnið í ljósin hafi til þessa kost-
að tæpar tíu milljónir króna á ári.
í nýju, skæru ljósunum er hins
vegar beitt annarri tækni sem
verður til þess að ljósin nota ekki
nema 12 vött á móti hundrað í
þeim gömlu: „Það sjá allir sparn-
aðinn sem fylgir því að skipta úr
hundrað vatta peru yfir í tólf,"
segir Dagbjartur.
í gegnum skítinn
Nýju perurnar í umferðarljós-
unum heita díóður og þótt þær
séu skærar til að byrja með gerir
Dagbjartur ráð fyrir að þrær dofni
eins og aðrar með tímanum. Ekki
síst þegar skítur fer að hlaðast á
umferðarljósin en það hefur
stundum orðið til þess að gömlu
í nýju, skæru Ijósun-
um er hins vegar beitt
annarri tækni sem
verður til þess að Ijós-
in nota ekki nema 12
vött á móti hundrað í
þeim gömlu: „Það sjá
allir sparnaðinn sem
fylgir því að skipta úr
hundrað vatta peru
yfirítólf/'segir
Dagbjartur.
perumar hreinlega lýsa vart í
gegnum rykið. Ljóst er að díóð-
urnar munu alltaf ná í gegn.
„Af þessu er ekki aðeins sparn-
aður heldur einnig aukið öryggi
því ljósin sjást miklu betur," segir
Dagbjartur.
110 gatnamót
Þegar hefur nýju ljósunum ver-
ið komið fyrir á sex gatnamótum í
Reykjavík en alls eru gatnamótin í
höfuðborginni um 110 talsins.
Vinna við uppsetningu nýju ljós-
anna heldur áfram af fullum krafti
því þar sem þau eru komin hefur
reynslan verið góð og halda menn
því ótrauðir áfram. Skínandi ljós
díóðanna eiga því í framtíðinni
eftir að lýsa upp höfuðborgina
með sínum sérstæða hætti og
verða hluti af nýrri og skírari
ásýnd allra gatnamóta.
Dagbjartur Sigurbrandsson
við nýjan umferðarvita Á eftir
að koma sér vel þegar sól lækkar
á lofti og blindar ökumenn.
Kynæsandi barnatímar
Svarthöfða hlýnaði um hjartaræt-
ur og töluvert niður fyrir mitti þegar
hann frétti að bandarískar húsmæð-
ur væm orðnar hrifnar af íþróttaálf-
inum í Latabæ. Á vefsíðum væm þær
komnar á trúnaðarstigið þar sem
Magnús Scheving léki aðalhlutverkið
í kynórum þeirra eftir uppvaskið.
Alveg eins og í gamla daga þegar
Ríkissjónvarpið var og hét og reis
undir nafni. Alla vega á meðan Bryn-
dís Schram stjómaði Stundinni okk-
ar. Þá vom að vísu engir spjallvefir á
netinu þar sem hægt var að ræða
kynþokka Bryndísar á skjánum en
það breytti því ekki að Svarthöfði og
vinir hans misstu aldrei úr þátt. Söfn-
uðust jafnvel saman laust fyrir klukk-
an sex á sunnudögum til að horfa á
Bryndísi tala við börnin.
Það vom bobbingamir sem
trekktu. Bryndís dillaði sér í settinu
og Svarthöfði og félagar hans með.
Bömin skildu hvorki upp né niður í
þessu en það skipti engu. Ekki þá
frekar en í Bandaríkjunum í dag.
Líklegt má telja að vinsældir Lata-
bæjar í bandarísku sjónvarpi megi
rekja til áhuga mæðra á þættinum.
Þær fjölmenna fýrir framan skjáinn
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara fínt,“ segir Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri sem er ný-
kominn til landsins eftir kvikmyndahátíð í Suður-Kóreu.„Ég er búinn að jafna mig
eftir árásina um daginn. Það er náttúrlega brot þarna en það er að ganga saman og
sálin líka. Ég veit ekki alveg hvernig kærumálin standa þar sem ég var bara að lenda
á landinu."
til að horf á bamatímann með krökk-
unum en em í raun að fýlgjast með
Magnúsi íþróttaálfi í mðþröngu
sportbuxunum sínum. Þar spriklar
hann og dillar líkt og Bryndís forðum
og fer jafnvel í splitt þannig að
bandarísku húsmæðumar renna til í
stólunum heima. Og vinsældimar
láta ekki á sér standa.
Ef Svarthöfði man rétt þá vom ís-
lenskar húsmæður farnar að kvarta
yfir Stundinni okkar þegar sól Bryn-
dísar Schram reis þar sem hæst. Að
lokum var hún látin hætta og friður
ríkti á ný á íslenskum barnaheimil-
um. Nú er að bíða eftir að banda-
rískir karlmenn rísi upp og krefjist
þess að íþróttaálfurinn hætti að
heilla eiginkonur þeirra í nafni
barnauppeldis. Þetta sýnir okkur og
sannar að sagan endurtekur sig þó
með öfugum formerkjum sé nú eins
og svo oft áður...
Svarthöföi