Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Hús hækka
íverði
Fasteignaverð virðist
vera að hækka á ísafirði eftir
10 ára kyrrstöðu og jafnvel
verðfall. Fréttavefurinn
bb.is greinir frá þessu og
vitnar í Tryggva Guðmunds-
son fasteignasala á ísafirði
sem segir verð stærri eigna
hafa að undanförnu
hækkað um 10-12 prósent.
„Þetta byrjaði fyrri part
sumars og sala á þessum
stærri eignum, eins og ein-
býlis- og raðhúsum, hefur
aukist nokkuð," segir hann.
Limósína án
skilrúms
Eigandi Glæsivagna í
Reykjavík var í gær sýkn-
aður í héraðsdómi af
ákærum um að hafa veitt
eðalvagnaþjónustu án
þess að hafa tilskilin leyfi.
Lögreglan kom að
manninum þar sem
hann var að störfum á
einum bfla sinna fyrir
utan Hótel Sögu. Hélt
lögregia því fram að
maðurinn hefði ekki
fengið leyfi til að reka
umræddan bfl sem eðal-
vagn þar sem skilrúm
skorú milli farþega og
ökumanns. Ósannað
þótú að maðurinn hefði
verið upplýstur um að
leyfi fyrir þennan tiltekna
bfl hefði verið hafiiað.
Lögleiðing
Birkir Jónsson
alþingismaður
„Ég er andvígur lögleiðingu
fíkniefna og tel ekki að það
leysi vandann að selja þau
undir eftirliti. Ég bendi áaðþau
lönd sem hafa farið út I að lög-
leiða kannabisefni hafa gefið
mjög misvísandi skilaboð um
ágæti þess. Við eigum efla ör-
yggi borgaranna og efla gæsl-
una. Við Islendingar höfum
það fram yfir margar aðrar
þjóðir að lega okkar, landa-
fræðilega, er með þeim hætti
að auðveldara er hamla inn-
flutningi."
Hann segir / Hún segir
„Mér finnst að það eigi að lög-
leiða gras en banna hvítu efnin
sem drepa unga Islendinga í
hrönnum. Ég get fallist áþau
rök að neðanjarðarhagkerfið,
sem þrífst góðu lífi á meðan
eitthvað er bannað, er ekki gott
en tel ekki lausnina að leyfa
annað en grasið. Ég á líka erfitt
með að gútera það að allt skuli
þetta vera sett undir sama hatt
því I gegnum aldirhefur
kannabis eða gras verið reykt
án þess að skaða nokkurn
meira en hvað annað."
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan vill lóð við Skúlagötu. Sagt er að Ólafur Ragnar
Grímsson hafi í heimsókn i Rússlandi lofað að styðja kirkjubyggingu safnaðarins
eftir megni. Æðsti yfirmaður rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, Aleksíj II patrí-
arki, hafi við sama tækifæri heitið því að stunda ekki trúboð á íslandi. Múslimar
vilja byggja í Öskjuhlíðinni.
Rússar op múslimar
vilia kirkjur í Reykjavík
„Enn höfum við ekki fengið nein viðbrögð við því né frekari upp-
lýsingar um hvað komi til greina um úthlutun lóðar til að byggja
rétttrúnaðarkirkju," segir Ksenia Ólafsson, formaður Trúfélags
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á íslandi, í bréfi til Þórólfs
Árnasonar borgarstjóra.
Rússneska trúfélagið óskaði eftir
því fyrir meira en tveimur árum að
skipulagsyfirvöld í Reykjavík útveg-
uðu lóð undi rétttrúnaðakirkju.
Töldu félagsmenn Mýrargötusvæðið
helst vera heppilegt.
í bréfi til skipulagsnefndar skrifaði
formaðurinn Ksenia að á íslandi
væru þá búsettir um 400 innflytjend-
ur frá Rússlandi; flest ungt og kraft-
mikið fólk. í hópnum væru íþrótta-
menn, kennarar og faglært fólk af
ýmsu tagi. Söfnuðurinn hefði starfað
frá því í október 2001.
„Okkur er mikilvægt að varðveita
andleg og menningarleg tengsl við
föðurland okkar jafiiframt því að við
viljum vera hluti af íslensku samfé-
lagi,“ sagðiKsenia.
Auk þess sem Ksenia sendi inn
umsókn fyrir rétttrúnaðarkirkjuna
lagði rússneski sendiherrann lóð á
vogarskálarnar með bréfi til skipu-
lagsyfirvalda í júm' 2002. Og málið
hafði áður verið rætt á enn æðri stöð-
um.
Aleksíj II Patríarkinn Aleksíj II sem hitti
ÓlafRagnar Grlmsson í Rússtandi kyssir
Walter Kasper kardínála frá Páfagarði sem
kominn var til Moskvu i viðleitni páfa til aö
lappa upp á sambandið við rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjuna eftir 1000 ára ágreining.
Forsetinn hittir æðsta prest-
inn
Forseú íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, heimsótú Rússland í aprfl
2002. Þar hitú forsetinn, meðal ann-
arra, æðsta yfirmann rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar, Aleksíj II patrí-
arka:
„Aðalumræðuefhi þeirra var
bygging rússneskrar rétttrúnaðar-
kirkju í Reykjavík," lýsir Ksenia fundi
Ólafs og patríarkans. „Patríarkinn
lagði áherslu á að prestar rétttrúnað-
arkirkjunnar á íslandi myndu ekki
stunda trúboð á íslandi en hins vegar
gæú rétttrúnaðarkirkjan stuðlað að
auknum kynnum íslendinga af sögu
og menningu Rússlands og af siðum
Austurkirjunnar. Ólafur lýsti því yfir
að hann myndi styðja kirkjubygging-
una eftir megni."
í hefðbundnum rússneskum
stíl
Fulltrúar rússneska trúfélagsins
gengu á fund Þórólfs Árnasonar
borgarstjóra í febrúar 2003. Borgar-
stjórinn óskaði samdægurs efúr því
við skipulags- og byggingarsvið að
lagðar yrðu fram þrjár tiliögur um lóð
fyrir rússnesku kirkjuna. Þær lágu
síðan fyrir áður en sumarið gekk í
garð.
Langbest leist Rússunum á lóð við
Skúlagötu 11. Kemur þetta fram í
bréfi félagsins til Salvarar Jónsdóttur
skipulagsstjóra í maí 2003:
„Við erun sannfærð um að kirkja
af hóflegri stærð í hefðbundnum stfl
rússneskra rétttrúnaðarkirkna myndi
sóma sér vel í forgrunni nýrra húsa á
þessu svæði og vera fegurðarauki á
Skúlagötusvæðinu og yfirleitt fyrir
borgina," segir í erindi Kseniu Ólafs-
son til skipulagsstjóra.
Rétttrúnaður við Skúlagötu Rússar
telja það verða mikinn fegurðurauka fyrir
Reykjavík að reisa kirkju að sínum hætti á
þessum stað. Innfelld á myndina er dóm-
kirkjan á Rauða torginu i Moskvu.
Múslimar vilja í Öskjuhlíð
Síðan gerðist ekkert í málinu fyrr
en trúfélagið rússneska sendi ítrek-
unarbréf sitt til borgarstjóra sem
vitnað er til hér í upphafi. Afrit bréfs-
ins var einnig sent yfirmönnum
skipulagsmála. Þrátt fyrir að bréfið
hafi verið sent í janúar á þessu ári var
það ekki tekið fyrir á fundi skipulags-
fúlltrúa fyrr en síðasúiðinn föstudag.
Var ákveðið á fundinum að kynna
málið fyrir formanni skipulags- og
byggingarnefndar, Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur.
Þess má geta að á fundin-
um á föstu-
dag voru
einnig lagðar >'
frarn um-
sóknir tveggja
annarra trú-
félaga um
lóðir tmdir
kirkju-
bygging-
Alexander A. Rannikh Sendi-
herra Rússlands á íslandi hefur tek-
ið virkan þáttibeiðnum Trúfélags
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar
umaðfá að byggja i Reykjavík.
ar. Nýja Postulakirkjan sem á rætur
að rekja til Kanada óskar eftir lóð j'
miðborginni eða nálægt henni. „Þá
benú einhver á að á eyju á íslandi var
ekkert ljós. Það var Island,“ segir í
umsókn safnaðarins um aðdraganda
að starfinu á íslandi.
Þá vHl Félags múslima á Islandi
byggja í Öskju-
hlíð eða sem
næst mið-
bænum.
gar@dv.is
Olafur Ragnar Grimsson Forseti fs-
lands hitti æðsta yfirmann rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunnar þegar hann
heimsótti Rússland og hét stuðningi við
kirkjubyggingu safnaðarins á íslandi
Lögregla rannsakar hvort vinnuveitandi ráði ólöglega útlendinga í vinnu
Lithái þóttist túristi en ætlaði að vinna
Sýslumannsembættið á Akranesi
rannsakar hvort atvinnurekandi þar
í bæ hafi haft ólöglega úúendinga í
vinnu. Tilefni rannsóknarinnar er að
lögreglan á Keflavikurflugvelli
stöðvaði Litháa sem var á leið til
landsins sem ferðamaður frá Lit-
háen gegnum Kaupmannahöfn, en
grunaði að hann æúaði að vinna
hér. Við athugun kom í ljós að Lithá-
inn hafði verið í vinnu á íslandi án
leyfa. Landamæralögreglan synjaði
manninum um landvist og sendi
hann til baka.
Sýslumaðurinn á Akranesi, Ólaf-
ur Þór Hauksson staðfestir að verið
sé að rannsaka þetta mál. „Málið
snýr að atvinnuréttindum úúend-
inga, við rannsökum hvort úúend-
ingur hafi starfað hér án þess að
hafa atvinnuréttindi sem gefið er út
af ÚÚendingastofnun eins og
hafa," segir hann.
„Þessi atvinnurekandi
sem er til rannsóknar, hefur
haft nokkurn fjölda úúend-
inga í vinnu. Við höfum
kannað hvort þeir hafi verið
leyfislausir en höfum ekki
fundið neitt athuga-
vert fyrir utan
þetta," segir
hann.
„Það eru
skýrar reglur
um hvaða
réttindi út-
lendingar
þurfa að
hafa til að
geta unnið hér
á landi. Mönn
ber að
um ber að hafa skírteini frá Úúend-
ingastofnun sem er límt inn í vega-
bréfið. Starfsmaður sem er á leið í
vinnu á að koma á þeirri forsendu
að hann sé að vinna, ekki sem
ferðamaður. Það er síðan atvinnu-
rekandans að sækja um atvinnu-
leyfi fyrir mennina og tryggja að þeir
fylgi settum reglum," segir hann.
„Það er búið að taka
skýrslur en við höldum
áfrain að safna upplýs-
ingum og halda uppi
eftirgrennslan og þurf-
um síðan að ákveða
hvort tilefni er til að
höfða mál
Ólafur Þór Hauksson sýslu-
maður á Akranesi Rannsakar
hvort atvinnurekandi þarhafiætl-
að að flytja inn ólöglegt vinnuafl.
eða ekki,“
segir sýslu-
maður.
Leifsstöð Lithái sem þóttist
vera túristi ætlaði að vinna á
Akranesi. Landamæralögregl-
an sneri honum við.