Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004
Sport DV
Anelka
hættur
Claude Anelka, sem keypti sig
inn í Raith Rovers í
skosku deild-
inni, hefur
sagt starfi
sínu lausu
sem aðal-
þjálfari liðs-
ins. Liðinu
hefur gengið
hræðilega og
aðeins feng-
ið eitt stig úr
fyrstu tíu
leikjum
skosku deild-
Stuðnings-
menn Rovers ,
hafa kvartað
sáranyfir An-
elka og því
var ekki um L-.
annaðað
ræðaenað V \
kallinn
segði af sér. Þess má geta að
Claude er bróðir Nicolas Anelka
hjá Manchester City.
Tennis er
erfitt
Nokkrir af fremstu tennisleik-
urum heims kvarta sáran yfir stlfri
dagskrá á stórmótum og eru
margir í þann mund að gefast
upp á álaginu sem fylgir íþrótt-
inni nú til dags. Lindsay Daven-
port, sem er í efsta sæti heimslist-
ans, fullyrti að margir hefúr dreg-
ið til baka þátttöku sína á mótum
vegna þreytu. „Ég held að tennis
sé að bera líkama minn ofúrliði,"
sagði Davenport.
Dæmdur í
fangelsi
Maður, sem braust inn á
heimili knattspymumannsins
Veron og fjölskyldu hans, hefúr
verið dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Maðurinn, sem heitir Wayne
Harley, var vopnaður sveðju þeg-
ar innbrotið átti sér stað og hótaði
Veron, konu hans og tveimur
börnum með sveðjunni áður en
hann hélt á brott með um 70 þús-
und pund í farteskinu. Harley
hefði að öllum líkindum komist
upp með innbrotið hefði hann
ekki klessukeyTt bíl sinn að ráninu
loknu.
Hagaðu þér
eins og
maður
Graeme Souness, knattspymu-
stjóri Newcastle, lét framherjann
C.raig Bellamy fá það óþvegið í
viðtaii nýlega. Bellamyhrópaði
fúlytði að Souness þegar hann
var tekinn út af í leik gegn
Charlton. „Við ættum í raun að
ræða svona atvik. Ég hef verið
kallaður miklu verri nöfiium en
Bellamy kallaði mig,“ sagði Sou-
ness. Souness sagði að Bellamy
þyrfti að taka sig saman í andlit-
inu og hætta að haga
sér eins
./
Það varð snemma ljdst að
Ronaldinho - eða litli Ronaldo
eins og hann var oft kallaður -
yrði stórstjarna í knattspyrnu-
heiminum. Mjög snemma
komu einstakir knattspyrnu-
hæfileikar hans í ljós og hann
varð dýrasti táningsknatt-
spyrnumaður heims þegar
Paris Saint Germain, PSG,
keypti hann frá Brasilíu.
í dag er Ronaldinho orðinn
fastamaður í brasilíska landsliðinu
og var ein helsta stjarna liðsins er
þeir unnu HM árið 2002. Flestum er
eflaust í fersku minni markið stór-
kostlega sem hann skoraði gegn
Englendingum. Því miður fyrir
David Seaman, markvörð Englend-
inga, verður hans eflaust minnst
fyrir að verja ekki þetta glæsilega
skot Brassans snjalla. Ronaldinho
lék gríðarlega vel á HM f Asíu en féll
örlítið í skuggann á hinum R-unum,
Ronaldo og Rivaldo, sem voru bestu
menn mótsins.
Ronaldinho yfirgaf herbúðir PSG
þarsíðasta sumar og gekk í raðir
Barcelona en flest stærstu félög
Evrópu gerðu sitt besta til þess að
kaupa manninn sem er með Soul
glo-greiðslu lfkt og sást í myndinni
Coming to America með Eddie
Murphy.
Ekki lítillátur maður
Það verður seint sagt um
Ronaldinho að hann hafi verið
h'tillátur maður á sínum yngri árum.
Hann var ákaflega óstýrlátur, leit
stórt á sig og hagaði sér nákvæmlega
eins og honum sýndist. Það skapaði
ýmis vandræði hjá PSG.
Hann lagði sig ekki mikið fram
gegn slakari liðum og átti oftar en
ekki lélegan leik gegn liðum í neðri
hluta frönsku deildarinnar. Þegar
kom að stórleikjunum steig hann
aftur á móti á bensínið og fór á
kostum.
Honum leiddist heldur ekki ljúfa
hfið. Hann er ókvæntur maður og
djammaði feitt um hverja helgi og
endaði ófá kvöldin á strípibúllum.
Ég eða þjálfarinn
Deilur hans og Luis Femandez,
þjáhara PSG, em frægar.
Ronaldinho kvartaði undan þjálf-
aranum sem réð ekkert við undra-
bamið. Skal svo sem engan undra
þar sem eigandi félagsins tók ávallt
málstað Ronaldinhos fram yfir
Femandez. Ronaldinho gekk meira
að segja svo langt einu sinni að hóta
að hætta hjá félaginu ef Femandez
yrði ekki rekinn.
Kvöld eitt fyrir Ieik gegn Lens
laumaði Ronaldinho huggulegri
gellu með þrýstin barm inn á
hótelherbergi sitt. Fernandez
komst að því og henti
Brassanum því á bekkinn.
Það vildi stjórn félagsins
ekki hafa og þeir skipuðu
Fernandez að setja
Ronaldinho í liðið sem
hann og gerði. Eftir leikinn
kom síðan forseti félagsins
inn í klefa og hrósaði
Brassanum fýrir frammistöðu
sína.
„Grillið" ónýtt?
önnur skemmtileg uppákoma
átti sér stað síðasta vetur er
Ronaldinho kom fimm dögum of
seint heim eftir landsleik. Afsökunin
sem hann gaf var að hann hafi verið
að láta laga í sér tennurnar sem er
reyndar ekki slök afsökun enda
„grillið" í honum af dýrari gerðinni.
PSG sektaði hann um einhverja
smáupphæð og Fernandez setti
hann á bekkinn og fékk að gera
það f friði að þessu sinni. Á
blaðamannafundi eftir
leikinn játaði forseti
félagsins, Laurent
Perpere, að ef hann
ætti að velja á
milli leikmanns
og þjálfara þá
myndi hann
velja
leikmanninn.
Þessi
umdeildi
forseti var
síðan rekinn
eftir tíma-
bilið enda þótti
hegðun hans
með hreinum ólík-
indum.
Það verður ekki tekið af
Ronaldinho að hann er mikill
viðskiptamaður og kann svo
sannarlega að haga seglum eftir
vindi. Sumarið sem hann var
seldur byrjaði hann á því að segja
að stærsti draumur lífs hans væri að
spila með Real Madrid. Með því
sendi hann skýr skilaboð til
Madridarmanna.
Tíð nærbuxnaskipti
Aðeins viku eftir þessa yfirlýsingu
leit allt út fyrir að Man. Utd myndi
kaupa hann. Þá kom annað hljóð í
strokkinn.
„United er það sem ég vil og ef ég
hefði mátt ráða hefði ég spilað með
liðinu í gær,“ sagði Ronaldinho. Eins
og frægt er orðið „klúðraði" Peter
Kenyon, þáverandi stjórnar-
formaður, kaupunum, Barcelona
stökk á bráðina og gleypti hana. Við
þau tímamót sagði Ronaldinho:
„Ég er í skýjunum yfir því að vera
kominn hingað. Mig hefiir dreymt
um að spila fýrir Barcelona frá því ég
var lítill strákur." Þessi yfirlýsing
kom væntanlega beint frá hjartanu.
Ronaldinho hefur verið hvers
peseta virði og vel það því hann er
búinn að umturna þessu Barcelona-
liði og gera það að því besta í Evrópu
í dag. henry@dv.is
RONALDINHO
Fullt nafn: Ronaldinho de Assis
Moreira.
Fæddur: 21. mars 1980 í Porto
Alegre
Flæð: 181 cm.
Þyngd: 78 kg.
Fyrri félög: Gremio de Porto Alegre
og Paris Saint Germain (PSG).