Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Síða 25
DV Menning
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 25
Skjávörn fyrir almenning: Nýtt ísraelskt
verk í flutningi íslenska dansflokksins
verður frumsýnt á föstudagskvöld.
í tonlist, hreylingu,
myndum ng Ijnsum
Rennsli er sagt byrja um tólf.
Fremst á sviðinu liggja, í snyrtilegri
röð, sjö skjávarpar. Leikmyndin virð-
ist gerð úr misstórum flekum sem
þjóna hlutverki myndtjalda. Það er
lágstemmd spenna i loftinu. Nadía
Banine er að leita sér að stöðu í
myrkrinu. Það leggst yfir hana kraðak
af tölustöfum. Úti í sal sitja leikstjóri
og leikmyndahönnuður og tuldra fyr-
ir munni sér á hebresku. Æfipgin er
að byrja.
Yfirskrift verksins er sótt í biblíu-
texta, Predikarann: Allt hefur sinn
tíma. Það er tími fýrir stríð og tími til
að ffiðmælast.
Myndflöktið á margbromum flöt-
um sviðsins. Það leynir sér ekki að
Rami Be’er kemur frá þeim hluta
heimsins þar sem friðurinn er lang-
þráður, hatrið óslökkvandi og bjarg-
ráð fá sýnileg. Rami er borinn og
bamfæddur í ísrael. Verkið er ffá
upphafi til enda komment á stríðs-
ástand.
Byrjum upp á nýtt
Rennslið höktir, stundum verð-
ur að stoppa og byrja upp á nýtt.
Nadia er í vandræðum með papp-
írsrullu, leikmunir leggjast rangt í
ljósalögnina, það er allt leiðrétt um
leið. En það er kraftur í hópnum,
engin lygi sem stendur í fréttatil-
kynningum að sýningin er mikið
sjónarspil, nútímaleg og áköf í er-
indi sínu en andstætt mörgum
nýrri dansverkum er hún auðskilj-
anleg og áhrifamikil.
í danslok er áhorfandinn orðinn
meyr og bljúgur. Þá er stoppað og
farið í gegnum stutt lokaatriði.
Höfundurinn er greinilega
kunnugur áhorfendum, veit hvern-
ig skal ljúka sögunni. Öll sýningin
er á venjulegum snúning fjórum
dögum fýrir frumsýningu: það er
allt að koma saman og framundan
slípivinna sem mun skila áhorf-
endum fullkláruðu verki á föstu-
dag.
Trukk eftir sumarið
Ég hitú eftir rennslið tvo dansara,
Katrínu Ingvadóttur og Hjördísi Lilju
Örnólfsdóttur, sem koma fram í sýn-
ingunni ásamt úu öðrum. Ég spyr
þær fýrst hvort þetta vinnuferli hafi
verið ólíkt því sem þær eru vanar:
„Við æfðum þetta í nær tvo mánuði
en skiptum æfingatímabilinu í
tvennt, íýrst í haust vorum við þung á
okkur efúr fríið. Það var talvert um
meiðsl. Við æúuðum að taka þetta
með trukki.
Svo tókum við okkur hlé frá þessu
verki og fórum til Slóveníu þar sem
við vorum að æfa annað verk sem
at verður síðar í vetur efúr Ernu
sýnt
OmE
ekki rithöfundinn
Paolo Coelho tekur á móti íslensku fjöl-
miölafólki I einfaldri röð en segir það
hreint ekki þreytandi. Hann geri þetta
hvort eð er ekid á hverjum degi og vilji
gjarnan að lesendursínirkynnist mannin-
um á bak við bækurnar. Hann ólst upp í
millistéttarfjölskyldu I Rio de Janeiro og
vildi faðir hans að hann yrði verkfræðing-
ur. Coelho sagðist ætla að vera rithöfundur
og varsendur milli geðspítala I þrjú ár. Síð-
an fór hann á flakk um heiminn og lagðist
um leið í dóp, kynllfog rokk, lifði hippalífi í
Norður-Ameríku og Evrópu. Skrifaði texta
fyrir rokksveitir heima í Brazilíu og sat í
fangelsi þar fyrir vikið. Núer hann met-
söluhöfunduráheimsvlsu og hingað kom-
inn til að fylgja eftir úkomu íslenskrar þýö-
ingar á bók sinni Ellefu minútur.
Stutt stopp
„Ég byrjaði á að fara i göngutúr I mið-
bænum I morgun," segir Coehlo brosandi.
„Eina leiðin til að upplifa land eða borg er
að ganga um meðal fólksins en ég flaug
eiginlega um höfnina I morgun i rokinu
og ég verð að segja að þaö var töluverð
reynsla. Hér verð ég bara næstu tvo daga
og fæ því ekki tækifæri til að sjá mikið af
landinu. En fólkinu sem býr á þessu goð-
sagnakennda landi vil ég endilega reyna
að kynnast meðan ég erhér."
Hippagúrú Brasiliu?
Paolo Coelho gerir ekki mikið úr að
vera stundum kallaður Timothy Leary
eða hippagúru Brasilíu.„Ég var vissulega
á bólakafi ídópi, kynlífí og rokki eins og
hann," viðurkennir Coelho skellihlæjandi.
„Og þótt hann sé orðin nánast goðsögn
tel ég hann hafa staðnað. Ég reyndi hins
vegar að komast áfram. Hippatimabilið
tilheyrir fortlðinni en er vissulega hluti af
þeim manni sem ég er í dag. Ég sé ekki
eftir neinu, þá sem ég særði og meiddi
hefég beðið afsökunar, hitt er bara eins
ogþaðer."
Að verða aldrei ástfanginn
Bók Coehlo Alkemistinn hefur notið
mikilla vinsælda á Islandi og fjallar um
mikilvægi þess að eiga sér draum, lifa
hann og láta rætast.„Og efvið höldum
áfram að draga efni bókarsaman i eina
setningu fjalla þá Ellefu minútur um kyn-
hneigð mannsins og nauðsyn þess að
hver maður taki sinni kynhneigð eins og
hún er en miði hana ekki við kvikmyndir,
bækur og blöð. Ég er orðinn 57 ára og
mér þótti tími til kominn að hugleiða
mlna kynhneigð, svona I Ijósi fortíðarinn-
ar. Þetta er jú ein af frumhvötum mann-
skepnunnar og við lærum að elskast með
þvíað elskast, ekki afbókum.Að sjálf-
sögðu eru Ellefu mlnútur þó flóknari
samsetning en það. Er til dæmis hægt að
lifa lífinu án þess að verða ástfanginn? Er
hægt að taka þá ákvörðun að verða
aldrei ástfanginn? Ég tel að til sé fólk sem
gerir það, en velti fyrir mér hvort það sé
llf."
Ábyrgð mannsins
Þegarinnrás Bandaríkjamanna og
Breta i Irak var I undirbúningi skrifaði
Coehlo Bandaríkjaforseta opið bréf.
„Hálfur milljaður manna las það bréf,"
segir Coehlo.„Rithöfundi er ekkert skylt
að taka afstöðu til allra hluta, skipta sér
afstjórnmálum og samfélagi. En efhon-
um þykir hann verða að taka afstöðu, og
er tilbúinn að taka afleiðingunum, þá
gerir hann það. Maðurinn ber nefnilega
félagslega ábyrgð á umhverfí sínu. Ekki
er nóg að kenna kerfínu og ríkinu um
allt, menn verða að taka þátt ísamfélag-
inu og axla ábyrgð sína.“Coelho fæst við
þrár og þarfír mannsins í verkum sínum
og viðurkennir að eiga í nokkrum erfið-
leikum með heimsfrægðina, að menn
beri hann alls staðar á höndum sér.„En
þó svo sé hætti ég þvi ekki, ég get ekki
látið velgengnina eyðileggja í mérrithöf-
undinn," segir brasiliski rithöfundirnn
Paulo Coehlo.
Verkefni vetrarins
Dansflokkurinn er utan æfinga á
nýju sýningunni á fullu í Chicago.
Þegar frumsýningunni verður lokið
byrja þau að æfa upp þrjú eldri verk
fýrir fjölskyldusýningu, síðan er nýtt
verk efúr Helenu Jóns.
Verkaskráin í vetur er óvenju þétt
og því mikið álag á alla meðlimi
flokksins. Ég spyr þær stöllur um
launin. Katrín svarar að þau séu ekki
í þessari vinnu fýrir laun. „Launin eru
krapp," segir hún, „miðað við álagið
og menntunina sem er að baki full-
numa dansara og þessum stutta
starfsúma sem við höfum, þá eru
þessi laun ekkert til að tala um.“
Hjördís Lilja horfir á stöllu sfna
stórum augum. Hún er nýbyrjuð og
enn er í augum hennar ljómi yfir að
vera komin í starf sem hún hefur
þjálfað sig fyrir ffá bamsaldri. Hún er
á sínu öðru ári, í fýrra var hún á nem-
endasamningi en er nú fastráðin. Ég
spyr hvemig henni líki djobbið:
„Þetta er frábært," segir hún, „en
mikil virma.“ „Þeúa vildirðu," segi ég.
„Já,“ svarar hún.
Bakvið skjöld eða grímu?
„Kröftugt heilskvöldsverk eftir
Rami Be’er þar sem fléúað er saman
undurfallegum dansi og ótrúlegu
sjónarspili í tónlist, myndum og Ijós-
um," sagði í fféttatilkynningunni.
„Núúmasamfélagið með öllu sínu
áreiú er yrkisefni Rami. Áreiúð leiðir
til þess að við sýnum ekki okkar rétta
andlit, heldur búum til skjöld, brynj-
um okkur gagnvart raunveruleikan-
um, sköpum okkar eigin screen-
saver.”
Það má svo sem til sanns vegar
færa, en mér sýnist verkið dýpra en
það. Og það verður gaman að sjá það
í lokamynd sinni á föstudag.
pbb@dv.is
Jmars. Screensaver kom til okkar
fullfrágengið verk. Það hefur því ver-
ið h'tið rými fýrir sköpun, en það
krefst mikils líkamlegs álags svo við
höfum þurft að leggja okkur öll
fram.“
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi og aðalskipulagi í
Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstartil
kynningar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík
og breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 í
samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997.
Hlíðarendi, Valur breyting á aðalskipulagi.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 -
2024, vegna svæðis við Hlíðarenda, sem lítur að breyt-
ingu á aðalskipulagi á miðsvæði M5 milli Bústaðavegar
og Hlíðarfótar.
Tillagan gerir ráð fyrir að í stað þess að heimilt verði að
þétta byggð um 120 íbúðir á miðsvæði M5 við Hlíðar-
enda, milli Bústaðavegar og Hlíðarfótar, verði heimilt að
þétta byggðina um 170 íbúðir. Breytingin felst því í að
mynd 5, þétting íbúðarbyggðar í AR 2001-2024, í greinar-
gerð aðalskipulagsins breytist, að teknu tilliti til breytingar
sem staðfest var af umhverfisráðherra þann 8. september
2003, þannig að íbúðafjöldi á þéttingarsvæði 10a breytist
úr 120 í 170 sbr. breytt mynd að neðan. Sjálfur upp-
drátturinn breytist ekki.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hlíðarendi Valur, breyting á deiliskipulagi.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að fækka atvinnuhúsalóðum á
uppbyggingarsvæðinu úr 8 í 2 og fjölga íbúðalóðum úr 3
í 5. Heildarfjöldi lóða verður því 7 eftir breytingu í stað 11.
Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir að byggingarmagn
íbúðalóða verði 18.000m2 í stað 11.100m2 og atvinnu-
húsafermetrar verði 32.000m2 (auk 750m2 leikskóla) í stað
38.900m2 (auk 750m2 leikskóla). Fjöldi íbúða samkvæmt
tillögunni er frá 29 - 37 í hverri íbúðablokk fyrir sig,
mismunandi eftir lóðum. Fjöldi fjölbýlishúsa er 5 og alls er
reiknað með 169 íbúðum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að
leikskóli verði hluti af uppbyggingu LHÍ svæði, lóð H.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8.20 - 16.15, frá 20. október til og með 1.
desember 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu
sviðsins, skipbygg.ís. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skrif-
lega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulags-
fulltrúa) eigi síðar en 1. desember 2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 20. október 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219