Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Qupperneq 32
■r
J~* f* í t ÍJ Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^wfnleyndar er gætt. r-1 r-1 r \ r-J
SKAFTAHLÍÐ 24, !ÚS RBYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMISSOSOOO
• Flugfarþegar Iceland Express
hafa ekki orðið varir við slakari
þjónustu flugfreyja félagsins þó
svo þær standi í
viðræðum um
kaup og kjör eft-
ir fjöldaupp-
sagnir á dögun-
um. Þær leggja
sig aliar fram,
ekki síst vegna
þess að hluta launa sinna taka
þær inn með sölu á varningi um
borð. Er talið að fimmtán pró-
sent af launum flugfreyja komi
frá sölu drykkja og varnings á
flugi og gildir það einnig um
flugfreyjur Icelandair...
• Alls var 34 flugfreyjum sagt
upp hjá Iceland Express og í við-
ræðum er tekist á um vinnutíma
sem er allt annar þar en hjá
Icelandair. Flugfreyjufélagið
semur hins vegar fyrir allar freyj-
ur á sömu nótum án tillits til
hvar þær starfa...
Getur bæjarstjórinn ekki
bara fengið sér pylsu?
Tvífari líkmanns auglýsir SS-
pylsup Allt tómar tilviljanir
Nýjar auglýsingar fyrir SS-pylsur
hafa vakið mikla athygli. Þeir Freyr
Eyjólfsson og Steinn Ármann Magn-
ússon leika meðlimi SS-sérsveitar-
innar. Hafa margir velt því fýrir sér
hvort þarna sé um skírskotun til SS-
sveita Þriðja ríkisins að ræða. Því
neitar Kristján Kristjánsson leikstjóri
alfarið.
„Nei, við erum bara að minna á
pylsurnar. SS í auglýsingúnni er
skammstöfun fyrir Sérsveitina. Það
er engin tenging milli SS-sérsveitar
okkar og sérsveitar nasista," segir
Kristján sem á að baki langan feril í
auglýsingagerð.
í einu af atriðum Kristjáns verð-
ur persóna Steins Ármans vör við
eitthvað undarlegt í næsta húsi.
Hann opnar skottið á bíl en þá
kemur út úr húsinu maður sem er
skuggalega líkur Grétari Sigurðar-
syni, einum líkmannanna þriggja í
Neskaupstaðarmálinu. Maðurinn
lokar skottinu og ræðst svo á Stein
Ármann.
Kristján viðurkennir að hann hafi
fengið nokkrar athugasemdir við
þetta atriði. „Auglýsingin var samt
tekin upp löngu áður en Neskaup-
staðarmálið kom upp. Þetta eru allt
saman tilviljanir," segir Kristján og
hlær. „Okkur óraði ekki fyrir því í
upphafi að fólk myndi tengja þetta
saman. En svona er lífið.“
Kristján segir að hugsunin á
bakvið hinar umdeildu auglýsingar
sé að skapa ákveðna heildarmynd.
Atriðin eru eins og bútar úr kvik-
mynd sem myndi eina heild í lokin.
Áhorfendur fái að kynnast persón-
unum sem hafa komið mörgum til
að hlæja með vangaveltum sínum
um hvernig pylsa sé stafað.
„SS-lógóið er auðvitað orðið hluti
af þjóðarsálinni," segir Kristján.
„Auglýsingarnar eiga að vekja at-
hygli á merkinu og ef marka má við-
brögðin þá hefur það tekist."
Nýtt og spennandi nám hjá NTV
Bæjarstjóri vill risatyppi
Byggingamefnd Húsavíkurbæjar
hefur þegar samþykkt að Sigurður
Hjartarson fái að reisa hátt í þriggja
metra háan lim ffaman við Reðursafn
sitt næsta vor. Limurinn langi vegur
hátt í 300 kíló og er höggvinn út og
skreyttur af danska listamanninum
k Bjarne P. Ejaas, sem vill með verki
i sínu mótmæla notkun á stinn-
| ingarlyfinu viagra. Áður en
safnið fær form-
lega leyfi til
að reisa lim-
inn þarf
bæjar-
stjómin að
staðfesta
samþykkt
Reinhard Reynisson
Engir meinbugir á reisn
lindarlimsins.
byggingamefndarinnar. Reinhard
Reynisson bæjarstjóri segist ekki sjá
neina meinbugi á því að typpið rísi
framan við Reðurstofu fslands, sem
flutti til Húsavíkur fyrr á árinu.
„Mér h'st ekkert illa á þetta. Þetta
er vonandi hið besta mál,“ segir
Reinhard. „Það eykur breiddina í
safhaflórunni á Húsavík. Mér finnst
tilhlýðilegt að framan við safnið rísi
reisulegt minnismerki," segir hann.
Reinhard vill hins vegar ekki
mótmæla viagra. „Við nýtum alls
kyns náttúruauðlindir. Viagra er eitt
þess sem við þurfum á að halda og ég
sé ekki hvern það ætti að skaða,"
segir hann.
Hann óttast ekki að minnismerkið
særi blygðunarkennd Húsvíkinga.
„Það kann að vera að einhverjir
verði hugsi. Ég á ekki von á gagn-
rýni,“ segir Reinhard.
Klósettdeila í Hafnarfirði
Upp er komin salernis-
deila í fjölbýlishúsi í Hafnar-
firði. Jón J. Ragnarsson, íbúi
á Hringbraut 74, hefur ætlað
að setja upp salerni í sam-
eiginlegu þvottahúsi. Til
þess þarf að taka pláss af
þvottaaðstöðunni í þvotta-
húsinu. Annar íbúi hússins, Guð-
björg Júlíusdóttir, er þessu
mótfallin og telur óheimilt að
koma upp klósettinu í trássi
við hennar vilja. Skipulags-
nefnd Hafnarfjarðar tekur
undir með Guðbjörgu. Þess
utan hafi ekki verið sótt um
leyfi fyrir salerninu hjá byggingafull-
trúa og það því með öllu óheimilt.
KERFISSTJORINN
Kerfísstjórar eru lykilmenn
í öllum fyrirtækjum sem hafa tölvukerfí!
Námið er tvískipt og undirbýr nemendur fyrir tvö alþjóðleg próf:
■ A+ prófið frá Comptia
* MCP (Microsoft Certified Professional)
Fyrri hluti - Tölvuviðgerðir (hægt að taka sérstaklega)
Nemendur læra að uppfæra, bilanagreina og gera við tölvubúnað.
Kennslan fer fram í nýrri, fullkominni tölvuviðgerðarstofu NTV.
Seinni hluti - MCP - XP netumsjón (hægt að taka sérstaklega)
Nemendur öðlast færni og kunnáttu til að setja upp og hafa umsjón með
tölvum sem keyra á Windows XP stýrikerfinu, öðlast víðtækan skilning á
netkerfum og verða færir í að leysa vandamál sem að þeim snúa.
Kvöld og helgarnámskeið byrjar 8. nóv.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga frá 18-22
og annan hvern laugardag frá 13-17.
ntv
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
UPPL YSINGAR OG SKRANING I SIMA 544 4500 OG A NTV.IS
REKSTUR 2004
21.-22. ORTÓBER í FÍFUnm í RÓPHUOGI
KAUPSTEFNA FYRIR ST30RNENDURISLENSKRA FYRIRTÆK3A
Yfir 60 sýnendur wudaprki. 10.00 ■
24 örnámskeið og kynningar
6 uiðtöl uið ðhrifafólk í íslensku uiðskiptalífi
Fimmtudagur kl. 10.00 - 18.00 • Föstudagur kl. 10.00 - 18.00 • Skráning á umiuu.rekstur2004.is