Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1930, Side 24
GANGUR TUNLGS OG SÓLAR A ÍSLANDI.
í þriðja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina »t i h« (tungl
i hádegisstað), og i töblunni á blaðsíðu (17) er sýnt, hvað klukkan er
eftir íslenzkum meðaltima, þegar tunglið og sóiin eru i hádegisstað
i Reykjavík. En vilji menn vita, hvað klukkan só eftir islenzkum
meðaltima, þegar tunglið eða sólin eru i hádegisstað á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleidréttingu«
á Reykjavikurtölunni. Verður hún — 4 minútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavik, og -f 4 mín. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavik. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavik; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 min. og 5. júlí er sól í hádegisstað i
Raufarhöín þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
réttingin er þar 4 min. 1. febrúar er þvi tungl i hádegisstað i Flatey
kl. 2 53 e. m. (2 49 + 4 mín. = 2 53).
Sólargangurinn i Reykjavik er tilgreindur í almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavikurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl i hádeeisstað, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum i Reykjavík. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert halft stig,
norðar og sunnar en Reykjavik, þegar sólargangurinn i Rvik stendur
á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitif (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er þvi lögð við tima sólarlagsins i Rvík,
en dregin fra sólaruppkomutimanum, nema breiddarleiðréttingin sé
negatif (—), þá er það öfugt.
Dæmi: Sólargangur 7. mai á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2*/> stigi norðar en Rvik.
þenna dag er sólargangur i Reykjavík 17 st. 21 mín. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2*/> stig norður og sólargang 17 st. er + 23
mín. en fyrir 18 st. + 30 min. og fyrir 17 st. 21 min. verður breiddar-
leiðréttingin þvl + 25 mín. Lengdarleiðréttingin er — 24 min.
í Reykjavik............... 3 45 sl. 9 06
Breiddarleiðrétting . — 25 +25
Lengdarleiðrétting . — 24_______— 24
í Raufarhöfn .... su. 2 56 sl. 9 07
Annað dæmi: Sólargangur 19. nóv. i Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stlgi vestar og 1*/» stigi norðar en Rvik. Sólargangur i Reykjavik
er 6 st. 04 min.
í Reykjavik............... 9 11 sl. 3 15
Breiddarleiðrétting . +14 - 14
Lengdarleiðrétting . + 4_______+ 4
t Flatey..............su. 9 29 sl. 3 05
(22)