Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1930, Side 87
var svo margþætt, aö hann lét engin velferðarmál
þjóðar sinnar afskiptalaus, hafði i flestum þeirra
forustu og léði þeim öllum stuðning. Allt þjóðlíf ts-
lendinga er markað og mótað af honum. Saga hans
er þvi ekki að eins saga þjóðmála samtimis, heldur
og almenn landssaga og heflr auk þess að geyma
mjðg markverða þáttu i bókmenntasögu þjóðarinnar.
Þessu fylgir þá einnig það, að kanna verður ekki að
eins raetur málefnanna, upptök timabilsins, hagi og
kjör þjóðarinnar, heldur og jafnvel i sumum efnum
líta stuttlega fram yfir það, ailt til vorra daga; ella
myndu lesendur eigi hafa nægilega á valdi sínu mat
á sjálfu timabilinu, einum hinum langmerkasia þætti
i sögu islenzkrar þjóðar. Pað er eitt hið mesta lán,
sem boriö hefir að höndum þessari þjóð, að hún
fær tengt sögu sína við slíkan afreksmann, í stað
þess að sögunni sé skipað niður eftir mönnum, sem
af tilviljun eða erfðum hafa farið með stjórn iands-
ins. Slíkir menn lifa, þótt þeir deyi, gera þjóð sinni
gagn jafnt liðnir sem lifs.
Af öllu þessu leiðir, að eigi kemur slíkt rit að
gagni, nema rækilega sé á efni tekiö og hæfilega sé
það rökum stutt. Er svo ráð fyir gert, að það verði
5 bindi, þó ekki meira en 28—30 arkir hvert, og sé
lokið á 5 árum. Um tilhögun verksins skal vísað í
upphaf þessa 1. bindis. Sljórn féiagsins hefir ákveðið
að láta ritið fylgja félagsbókunum, og er um leið
árstillagið sett 10 kr., meðan á þessu verki stendur,
ef ekkert óvænt kemur fyrir, og er þó gjafverð, þegar
til þess er litið, að fyrir þetta tillag fá félagsmenn
árlega 42—45 arkir I ársbókum, en sjálft ritið er
prentað á úrvalspappír. í lausasölu er til ætlazt, að
verð hvers bindis sé 7 kr.
Á þvi ríður hverri þjóð, sem halda vill þjóðheiðri
og nokkurn þjóðþótta hefir, að halda vel saman öll-
um minjum þjóðernis oa sjálfstæðis, gera vel skil
afreksmönnum sínum öllum og snillingum, hvort
(83)