Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1959, Side 21
Mars gengur til austurs allt árið. Hann er í hrútsmerki í ársbyrjun. í febrúar-
byrjun er hann skammt neðan við Sjöstjörnuna og meðal björtustu stjarna. Gengur
inn í tvíburamerki um miðjan apríl og neðan við Tvíburana um miðjan maí. Reikar
síðan um merki krabba, Ijóns, meyjar, metaskála, sporðdreka og inn í höggorms-
haldara og cr þá lágt á lofti (Sjá ennfremur töflu neðar.).
Júpíter er i metaskálamerki í ársbyrjun, á austurleið, kemst inn í sporðdrekamerki
og snýr þar við 19. marz. Reikar þá aftur inn i metaskálar unz bann snýr enn til
austurs 20. júlí og reikar um sporðdrekamerki inn í höggormshaldara til ársloka.
Er allt árið lágt á lofti, en meðal skœrustu stjarna.
Satúrnus er allt árið í bogmannsmerki og mjög lágt á lofti. Reikar fyrst til aust-
nrs, en snýr við 16. apríl og enn 5. september.
Úranus er í krabbamerki í ársbyrjun, á vesturleið. Snýr við 20. apríl og nser í
september inn í Ijónsmerki og snýr þar aftur til vesturs 27. nóvember->
Neptúnus og Plútó sjást eigi með berum augura.
TAFLA,
er sýnir, hvenær á sólarhringnum Mars, Júpíter og Satúrnus
eru í hásuðri frá Reykjavík við sérhver máuaðamót.
1959 Mars Júpíter Satúrnus
Klt. m. Klt. m. Klt. m.
1. janúar 20 43 9 14 11 44
1. febrúar 19 17 7 32 9 57
1. marz 18 20 5 53 8 17
1. apríl 17 29 3 52 6 22
1. maí 16 46 1 44 4 24
1. júní 16 02 23 22 2 16
1. júlí 15 17 21 13 0 09
1. ágúst 14 28 19 10 21 54
1. september 13 39 17 18 19 49
1. október 12 52 15 38 17 53
1. nóvember 12 09 14 01 16 00
1. desember 11 34 12 31 14 15
31. desember 11 07 11 02 12 32
(19)