Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1977, Blaðsíða 132
á holræsakerfinu þar. Á Kirkjubæjarklaustri var að mestu
lokið byggingu verslunar- og bankahúss. Unnið var þar
að skólahúsi og nokkrum íbúðarhúsum. Hafin var þar
bygging heilsugæslustöðvar. Lokið var byggingu þjón-
ustumiðstöðvar í þjóðgarðinum á Skaftafelli. Á Höfn í
Hornafirði var unnið að nýrri vatnsveitu og byggingu
heilsugæslustöðvar, frystihúss og margra íbúðarhúsa.
Mikið var unnið þar að gatnagerð. Unnið var að skóla-
húsi í Nesjum.
Múlasýslur. Enn var unnið skipulega að gatnagerð í
flestum þorpum á Austurlandi. Um 20 íbúðarhús voru
í smíðum á Djúpavogi. Unnið var þar að stækkun skóla-
hússins, byggingu félagsheimilis, sundlaugar, póst- og
símstöðvarhúss, frystihúss og að vatnsveituframkvæmd-
um. Á Breiðdalsvík var unnið að póst- og símahúsi,
frystihúsi og nokkrum íbúðarhúsum. Hin nýja kirkja á
Eydölum í Breiðdal var vígð 13. júlí. Á Stöðvarfirði var
unnið að heilsugæslustöð, póst- og símahúsi, húsi Sam-
vinnubankans og frystihúsi. Á Fáskrúðsfirði var unnið
að byggingu skólahúss og frystihúss. Á Reyðarfirði var
unnið að 20 íbúðarhúsum, íþróttahúsi og sundlaug,
vörugeymsluhúsi, vélaverkstæði, umbótum á skólahúsinu
o.fl. Hafin var bygging skólahúss á Eskifirði, og allmörg
íbúðarhús voru byggð þar. í Neskaupstað var unnið að
heilsugæslustöð og stækkun sjúkrahússins. Stækkun
barnaskólahússins var lokið að mestu. Miklar umbætur
voru gerðar á húsi æskulýðsráðs Neskaupstaðar. FrystJ-
húsið var endurbyggt og unnið að endurbyggingu síldar-
verksmiðjunnar. Mörg íbúðarhús voru byggð í Neskaup-
stað, og vatnsgeymir var byggður þar. Á Seyðisfirði voru
allmörg íbúðarhús í smíðum. Hafin var þar byggiuS
safnaðarheimilis. Á Borgarfirði eystra var unnið að
skólastjórabústað og að flugvallargerð. 1 Egilsstaða-
þorpi voru um 60 íbúðir í smíðum, m.a. 16 íbúða fjöl'
býlishús. Byggingu heilsugæslustöðvar var að mestu lok-
ið. Þar var unnið að barnaskólahúsi, dagheimili, íþrótta-
velli, sundlaug, mjólkurstöð og stækkun félagsheimilisins
(130)