Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Page 5
SKÝRINGAR VH) ALMANAKH)
Fánadagur Tunglið h Satúrnus
• Nýtt tungl 5 Merkúríus W Úranus
c Fyrsta kvartil 2 Venus V Neptúnus
o Fullt tungl <3 Mars E Plútó
3 Síðasta kvartil 4 Júpíter \ Stjörnuhröp
f töflum um sólargang telst dögun þegar sólmiðjan á uppleið er 18°
undir sjónbaug (láréttum sjóndeildarhring) og dagsetur þegar sól er
jafnlangt undir sjónbaug á niðurleið. Er þá himinn aldimmur yfir at-
hugunarstað. Birting og myrkur reiknast þegar sólmiðjan er 6° undir
sjónbaug. Sólarupprás og sólarlag telst þegar efri rönd sólar sýnist
vera við sjónbaug og er þá reiknað með ljósbroti í andrúmsloftinu sem
nemur 0,6°. Hádegi er þegar sólmiðjan er í hásuðri. Miðnætti (lág-
nætti) er 12 stundum síðar. Sólarhæð (H°) er hæð sólmiðju yfir sjón-
baug á hádegi (ljósbrot meðreiknað).
Um björtustu fastastjörnur og reikistjörnur er þess getið hve bjartar
þær eru, hvenær þær eru í hásuðri frá Reykjavík og hve hátt þær eru þá
yfir sjóndeildarhring. Einnig er tekið fram, í hvaða átt og hæð stjörn-
urnar eru við myrkur og í birtingu. Birtan er tilgreind í birtustigum, og
fer stigatalan lækkandi eftir því sem stjarnan er bjartari (björtustu
stjörnurnar fá mínusstig). Punktalína merkir að stjarna sé undir sjón-
baug allan myrkurtíma sólarhringsins.
Merkinu \ fylgir nafn þeirrar loftsteinadrífu sem um er að
ræða. Hverrar drífu gætir venjulega í nokkrar nætur, en merkið er sett
við þá dagsetningu sem svarar til hámarksins.
Fjarlægð tungls er tilgreind í megametrum (Mm) en sólar í gíga-
metrum (Gm).
9 3° S í> kl. 07 merkir að Venus sé 3° sunnan við tunglið kl. 07. Út-
reikningarnir miðast við Reykjavík, en tíminn er stundum tilgreindur
þótt tungl sé undir sjónbaug þar þegar samstaðan verður.
§ lengst í austur (18°) merkir að Merkúríus sé lengst í austur frá sólu
og að fjarlægð hans frá sólu á himinhvolfinu sé 18°.
Tungl hæst (44°) merkir að tungl sé hærra á lofti í hásuðri frá
Reykjavík en dagana á undan og eftir, og að hæð þess nemi 44°.
Táknið 5 í stað tölu í tungldálkunum merkir að tungl sé svo sunnar-
lega á himinhvelfingunni að það nái ekki að koma upp í Reykjavík.
Táknið 2 merkir að tungl sé svo norðarlega á hvelfingunni að það
setjist ekki.
Feitt letur í flóðdálkunum auðkennir hæstu flóðin. Flóðhæð í
Reykjavík (tilgreind í svigum) reiknast frá fleti sem er 1,82 m undir
núllpunkti hæðakerfis Reykjavíkur og um 2,2 m undir meðalsjávar-
borði.
Um tímareikning. í almanaki þessu eru allar stundir taldar eftir mið-
tíma Greenwich sem nú er íslenskur staðaltími. Á stöku stað reiknast
stundirnar fram yfir 24. Þannig myndi tímasetningin „25 32“ hinn 12.
janúar tákna það sama og 01 32 hinn 13. janúar.
(3)