Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Side 66
REIKISTJÖRNURNAR 1988
Teikningin á næstu síðu sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru í
hásuðri að sönnum sóltíma árið 1988. Sólin er alltaf í hásuðri kl. 12 að
sönnum sóltíma, hvar sem er á landinu, og ferill hennar fylgir því jaðri
myndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum, sem báðir eru merktir með
„12“ og eru í rauninni sama línan). Á myndinni kemur fram, hvaða
afstöðu reikistjörnurnar hafa hver til annarrar á himinhvolfinu og hvar
þær eru miðað við sól. Þegar stjörnur eru vinstra megin á myndinni eru
þær á morgunhimni en þegar þær eru hægra megin eru þær á kvöld-
himni. Á myndina hafa verið dregnar Iínur til að gefa vísbendingu um,
hvenær auðveldast sé að sjá reikistjörnurnar. Er það á þeim tveimur
svæðum sem merkt eru „dimmt“ á myndinni. Á svæðinu sem merkt er
„bjart“ eru reikistjörnurnar annaðhvort mjög nærri sól (innan við 45
mínútur í stjörnulengd) eða koma ekki upp í Reykjavík meðan dimmt
er.
Ef við viljum t.d. vita hvaða reikistjörnur verði sýnilegar í septem-
bermánuði, lítum við á þann reit sem liggur þvert yfir kortið og
afmarkast af stöfunum SEP til hægri og vinstri. Þá sjáum við strax að
Venus er langt til vinstri á morgunhimni, ekki fjarri jaðrinum (sól) en
þó á dimmum himni. Lengra til hægri (vestar) er Júpíter og síðan Mars
sem er á miðjum næturhimninum. Enn lengra til hægri er Satúrnus.
Hann er á kvöldhimni. Merkúríus er líka á kvöldhimni, lengst til hægri
og næst sól, en hann er á svæðinu sem merkt er „bjart“ og sést því
ekki. Við hægri jaðar myndarinnar erum við aftur komin að sól.
Á eftir hverjum mánuði í dagatalinu (á bls. 7, 11 o.s.frv.) eru töflur
sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reikistjörn-
urnar. Skýringar við töflur þessar er að finna á bls. 3. f töflunum er
hæð yfir sjóndeildarhring tilgreind í gráðum sem reiknast frá 0 við
sjónbaug upp í 90 í hvirfilpunkti. Ef reglustiku er haldið lóðrétt í
útréttri hendi svarar hver sentimetri nokkurn veginn til einnar gráðu.
Því er unnt að gera grófa hæðarmælingu með því að láta núllpunkt
kvarðans nema við láréttan sjóndeildarhring og lesa síðan sentimetra-
fjöldann upp á við.
Þótt fyrrnefndar töflur miðist við Reykjavík má yfirleitt nota þær
annars staðar á landinu án mikillar skekkju. Tölurnar sem sýna
hvenær reikistjörnurnar eru í hásuðri verður þó að leiðrétta um 4
mínútur fyrir hverja gráðu sem munar á Iengd staðarins og lengd
Reykjavíkur (bæta við ef staðurinn er vestar en Reykjavík, en draga
frá ef hann er austar).
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá íslandi á árinu
1988. Stjörnurnar eru (talið frá sól): Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter
og Satúrnus. Á eftir þessu yfirliti er svo fjallað sérstaklega um hinar
daufari reikistjörnur sem eru lengra frá sól: Úranus, Neptúnus og
Plútó.
(64)