Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Page 70
Nóvember
Júpíter er í gagnstöðu við sól seint í mánuðinum og er þá í hásuðri
um lágnættið, hátt á lofti. Hann er í nautsmerki og sest ekki meðan
dimmt er. Mars er kvöldstjarna í fiskamerki, álíka bjartur og bjartasta
fastastjarnan (Síríus). Mars þekkist á rauða litnum. Venus skín skært á
morgunhimninum en hún lækkar talsvert á lofti og nálgast sól. Merk-
úríus verður enn sýnilegur sem morgunstjarna fyrstu daga mánaðarins
og nær allt að 7° hæð í aust-suðaustri fyrir birtingu í Reykjavík.
Desember
Júpíter er enn í nautsmerki, bjartur og áberandi á næturhimninum,
en sest fyrir birtingu. Mars er vestar, í fiskamerki, lægra á lofti og sest
síðla nætur. Birta hans fer minnkandi en hann keppir þó enn við
björtustu fastastjörnurnar. Venus er áberandi sem morgunstjarna
fram eftir mánuðinum en lækkar stöðugt á lofti og nálgast sól.
Úranus er f bogmannsmerki, allra syðst í sólbrautinni, og kemst ekki
hærra en 2,5° yfir sjóndeildarhring í Reykjavík. Þegar þar við bætist að
Úranus er í gagnstöðu við sól um hásumarið (20. júní), verður að telja
ólíklegt að hann sjáist frá íslandi þetta árið. Birtustig hans er +5,5 svo
að hann myndi sjást með berum augum við góð skilyrði. Þess má geta
að Úranus verður mjög nærri Satúrnusi mestallt árið, og þeir verða í
gagnstöðu við sól sama dag.
Neptúnus er í einnig í bogmannsmerki en dálítið austar en Satúrnus
og Úranus. Hann verður mjög lágt á lofti og nær ógerningur að sjá
hann frá íslandi. Birtustig hans er um +8, svo að hann sést aldrei án
sjónauka.
Plútó er á mörkum meyjarmerkis og vogarmerkis, nærri þeim stað
þar sem þessi merki mæta höggormsmerki. Birtustig hans er nálægt
+ 14 svo að hann sést aðeins í góðum stjörnusjónaukum. Árið 1979
gekk Plútó inn fyrir braut Neptúnusar, og fram til 1999 verður hann
nær sól en Neptúnus.
GRÍSKA STAFRÓFIÐ
A a alfa I l jóta P P ró
B p beta K X kappa 2 °.S sigma
r V gamma A X lambda T T tá
A 6 delta M muj Y u ypsilon
E e epsilon N V nuj <Þ <P fí
Z zeta S § ksí X X kí
H h eta o o ómíkron >P ip psí
0 e þeta n Jl Pí Q 0) ómega
(68)