Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 127
járnblendi væri um 10% of lágt til þess að það stæði undir rekstri.
~Enn varð tap árekstri álversins í Straumsvík, og varþað talið hafa
numið um 620 milljónum króna, en það var um 13% af veltu. -
Pramleiðsla Kísiliðjunnar við Mývatn nam 22.900 tonnum og var
hagnaður af rekstri hennar 20,4 millj. kr.
Þörungavinnslan í Reykhólasveit var í byrjun maí tekin til gjald-
Þfotaskipta. Skuldir verksmiðjunnar námu um 120 milljónum kr.
Mikil sala var áfram til útlanda á iðnvamingi til nota í sjávar-
útvegi. Þannig afgreiddi t.d. Sæplast á Dalvík í júlí stóra sendingu
af fiskikörum til Kanada. - í október fengu fyrirtækin Sól hf. og
Smjörlíki hf. viðurkenningu frá Nutra-sweet AG í Sviss fyrir góða
framleiðslu á sykurskertum grautum.
Ársþing Félags íslenzkra iðnrekenda var haldið í Reykjavík í
marz. Víglundur Þorsteinsson var endurkjörinn formaður.
Útflutningur á iðnvamingi í milljónum króna (í svigum tölur frá
1985):
Á1 og álmelmi
Kísiljám
Lagmeti (fiskmeti)
Prjónavörur úr ull
Loðsútuð skinn og húðir
Kísilgúr
Ullarlopi og ullarband
Fiskinet
Vörur úr loðskinnum
Ytri fatnaður
Ullarteppi
Efni ofin úr ull
Þang- og þaramjöl
Pappaumbúðir
4.124,7 (3.339,7)
1.334,4 (1.219,6)
841,8 (713,4)
805,3 (892,1)
454,1 (320,5)
298,3 (266,8)
151,7 (168,9)
91,8 (60,5)
68,3 (47,3)
53,9 (53,5)
48,0 (38,4)
44,9 (39,3)
35,0 (29,0)
25,3 (27,3)
ÍÞRÓTTIR
Badminton. Meistaramót íslands fór fram í Reykjavík í apríl. I
einliðaleik varð Broddi Kristjánsson (TBR) íslandsmeistari í
karlaflokki, en Elísabet Þórðardóttir (TBR) í kvennaflokki. í
tvfliðaleik karla sigmðu Broddi Kristjánsson og Þorsteinn
(125)