Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Síða 136
skora mark, en þau fengu hins vegar á sig 30!! Valur fékk ítölsku
meistarana Juventus sem mótherja í Evrópukeppni meistaraliða og
tapaði 7-0 í Torino en 4-0 í Reykjavík. Fram keppti við pólsku
bikarmeistarana GKS Katowice og tapaði 3-0 á heimavelli en
aðeins 1 -0 á útivelli. Versta útreið fengu svo Akumesingar í viður-
eign við portúgalska liðið Sporting Lissabon í UEFA keppninni, en
Portúgalar unnu fyrri leikinn, sem háður var í Reykjavík, 9-0. Er
það versta tap íslenzks félagsliðs á heimavelli frá upphafí þátttöku
í Evrópukeppni félagsliða. Síðari leikinn vann Sporting 6-0.
Kraftlyftingar. Islandsmót var haldið á Akureyri í apríl og náði
Kári Elísson (IBA) þar beztum árangri og hreppti bikar bikaranna,
sem kallaður er. - A Evrópumeistaramóti í Stokkhólmi í maí náði
Kárí Elísson þriðja sæti í sínum flokki. A heimsmeistaramóti, sem
haldið var á Indlandi, varð Torfi Olafsson öðru sinni heimsmeistari
unglinga í 125 kg flokki.
Körfuknattleikur. Njarðvíkingar urðu Islandsmeistarar í
karlaflokki þriðja árið í röð eftir tvo sigra á Haukum í
úrslitakeppninni. KR sigraði í kvennaflokki, og vann raunar líka
bikarkeppni kvenna með sigri á íþróttafélagi stúdenta 47-28.
Haukar urðu bikarmeistarar karla með sigri á UMFN 93-92. - I
janúar tóku A- og B-landsIið Islands þátt í alþjóðlegu móti, sem
haldið var á Suðumesjum,og vom þátttakendur auk þeirra danska
Iandsliðið og lið frá Luther College í Bandaríkjunum. A-lið íslands
sigraði á mótinu. í apríl var haldin í Reykjavík C-keppni
Evrópuþjóða í körfuknattleik. Island sigraði með því að vinna leiki
sína gegn ímm 73-72,Skotum 75-71 og Norðmönnum 75-72, en
Islendingar töpuðu hins vegar fyrir Portúgölum 77-81. Með sigri í
C-keppni vann ísland sér rétt til þátttöku í B-keppninni, sem haldin
var í Liége í Belgíu í maí. Par unnu Islendingar Tyrki, en töpuðu
fyrir Svíum, Ungverjum, ísraelsmönnum og Pólverjum. Kvenna-
landsliðið tók þátt í Norðurlandamóti í Svíþjóð í apríl, varð í neðsta
sæti og tapaði oft stórt, t.d. 32-120 fyrir Finnum. - í ágúst gerði
Pétur Guðmundsson atvinnusamning við eitt þekktasta körfuknatt-
leikslið heims, Los Angeles Lakers. Hefur enginn íslenzkur körfu-
knattleiksmaður áður náð svo langt. - Körfuknattleikssambandið
varð 25 ára hinn 29. janúar.
Siglingar. Islandsmótið á kjölbátum var haldið í ágúst. í fyrsta
(134)