Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Side 167
mönnum. Petta var 29 tonna eikarbátur og var við línuróðra. -Um
miðnætti á jólanótt sökk mótorskipið Suðurland, og var þá statt 290
sjómflur norðnorðaustur af Langanesi á leið frá Reyðarfirði til
Murmansk með saltsfldarfarm. Atta skipverjar af ellefu komust í
laskaðan björgunarbát og fimm þeirra síðan í annan, sem kastað var
til þeirra úr brezkri Nimrod björgunarflugvél. Þaðan björguðust
þeir um kl. 14 á jóladag um borð í þyrlu frá danska varðskipinu
Vædderen, en það fór til hjálpar frá Færeyjum. Alls fórust sex menn
í þessu slysi. -Um kl. eitt aðfaranótt annars dags jóla sökk brezka
skipið Syneta eftir að hafa strandað við Skrúð í mynni
Fáskrúðsfjarðar. Allir skipverjamir, 12 að tölu, drukknuðu.
Hinn 14. febrúar létust tveir piltar frá Hveragerði í árekstri milli
bifhjóls og fólksflutningabfls við Kögunarhól. - 8. nóvember fauk
langferðabfll út af veginum í Hveradalabrekku á Hellisheiði, og
biðu tveir menn bana.
Hinn 31. janúar fórust tveir menn í flugslysi í Bláfjöllum, en þar
skall tveggja sæta lágþekja af gerðinni Zenith til jarðar. - Fokker-
flugvél Flugleiða rann út af braut í Reykjavík 10. marz. 41 farþegi
var um borð, en enginn slasaðist. - 5. apríl varð flugslys í Ljósu-
fjöllum á Snæfellsnesi. Piper Aztec flugvélin TF-ORM fórst og
með henni fimm menn.Tveir komust af mikið slasaðir. Orsök
slyssins var talin vera ísing og mikið niðurstreymi, en veður var
mjög vont. Það tók björgunarmenn liðlega tíu klukkustundir að
komastaðflakinu.- 17.júníhrapaði lítil flugvél viðFlúðiríHruna-
mannahreppi. Einn maður fórst, og annar slasaðist.
Landsþing Slysavamafélags Islands var haldið á Seltjamamesi
dagana 2.-4. maí. Þetta var 21. þing félagsins. Haraldur Henrysson
var endurkjörinn forseti.
STJÓRNMÁL
Ríkisstjóm Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var við völd
allt árið. Sú breyting varð á stjórninni 24. janúar, að Matthías Á.
Mathiesen tók við embætti utanríkisráðherra af Geir Hallgríms-
syni. Hafði breyting þessi átt að taka gildi við áramót, en var frestað
til áðumefnds dags. Fylgi stjómarinnar var traust, ef marka má
skoðanakannanir, og yfirleitt heldur meira en fylgi þeirra flokka,
(165)