Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Page 192
í verkfalli BSRB 1984. Forystumennimir voru allir sýknaðir, en
málinu var skotið til Hæstaréttar.
VÍSITALA
Vísitala framfærslukostnaðar var hinn 1. nóvember á fyrra ári
155,32 stig, og fór hún hækkandi á árinu 1986 sem hér segir: Hinn
1. febrúar var vísitala þessi 167,76 stig, 1. maí var hún 169,04 stig,
1. ágúst var hún 172,82 stig og 1. nóvember 1986 var vísitala
framfærslukostnaðar 179,22 stig.
ÝMISLEGT
Blöð og tímarit. í janúar lét Herdís Þorgeirsdóttir af störfum sem
ritstjóri Mannlífs. Hún varð síðar á árinu ritstjóri nýs tímarits og bar
það nafnið Heimsmynd. - Þorgrímur Þráinsson var frá 1. febrúar
ráðinn ritstjóri íþróttablaðsins. - Níels Ámi Lund var í febrúar
ráðinn ritstjóri Tímans og Kjartan Stefánsson tók í sama mánuði við
ritstjóm Frjálsrar verzlunar. - Snæfellska fréttablaðið byrjaði að
koma út 3. febrúar. -Þómnn Gestsdóttir tók í júní við ritstjóm Vik-
unnar. -1 ágúst var Þráinn Bertelsson ráðinn ritstjóri Þjóðviljans.
- I desember lét Ingólfur Margeirsson af störfum sem ritstjóri
Helgarpóstsins
Bruggverksmiðja á Akureyri. I september komst lögreglan á
Akureyri á snoðir um afkastamikla bruggverksmiðju. Fundust þar
tveirþúsund lítra gerjunartankar og um 21.000 einnota bjórflöskur.
Búddatrú á Islandi. Fyrsta íslenzka búddabrúðkaupið var haldið
í apríl. í sambandi við þá athöfn tóku um 40 íslendingar búddatrú.
Byggðastofnun áfram í Reykjavík. I byrjun júlí var fellt með
fjómm atkvæðum gegn tveimur á fundi í stjóm Byggðastofnunar
að flytja stofnunina frá Reykjavík til Akureyrar.
Bylgjan - FM98,9. Hinn 28. ágúst hóf ný útvarpsstöð í Reykja-
vík útsendingu. Nefndist hún Bylgjan, og gátu menn náð sending-
um hennar um allt Faxaflóasvæðið og jafnvel víðar. Útvarpsstjóri
varEinar Sigurðsson. Bylgjan náði skjótt vemlegri hlustun, og kom
það einkum fram í því, að færri hlustuðu á Rás 2.
Drykkja vex. Áfengisneyzla Islendinga óx um 4,16% á árinu og
var 4,5 lítrar af alkóhóli á hvem mann, 15 ára og eldri.
(190)