Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Page 196
fóru bæði með verkefni lögmanns stefnda og stefnanda fyrir
réttinum. Lögmenn þessir heita Guðný Höskuldsdóttir og Guðrún
Margrét Amadóttir.
Islendingar á móti árásinni á Líbýu. Ef dæma má eftir
skoðanakönnun félagsvísindastofnunar HI, var mikill meiri hluti
Islendinga á móti loftárás Bandaríkjamanna á Líbýu, sem gerð var
í apríl. 81% aðspurðra sögðust vera á móti árásinni, 14% sögðust
vera henni hlynntir, en 5% óvissir.
Kaffibaunamálið. í janúar var Eriendi Einarssyni forstjóra SIS
og nokkrum öðmm starfmönnum þess birt kæra vegna meints
misferlis í viðskiptum með kaffibaunir milli SÍS og Kaffibrennslu
Akureyrar.
Kajakkamenn við Island. Tveir Bandaríkjamenn, John Bauman
og Harry House, luku 28. ágúst því afreki að róa á kajökkum í
kringum Island. Ferðin tók 86 daga.
Kringlan. Leitað var til almennings um tillögur að nafni á stærsta
verzlunarhúsi í Reykjavík, en það byggir Hagkaup hf. Ahugi á
þessu reyndist gífurlegur og barst 5.741 tillaga. Af þeim vildu 76,
að húsið nefndist Miðgarður, en 75 vildu, að það nefndist Kringlan.
Síðamefnda nafnið varð fyrir valinu.
Kvikmyndir. Hinn 22. marz var fmmsýnd kvikmynd Hilmars
Oddssonar: Eins og skepnan deyr. Helztu leikendur í myndinni em
Edda Heiðrún Backman og Pröstur Leó Gunnarsson. - Kvik-
myndin Stella í orlofi var fmmsýnd 18. október. Kvikmynda-
félagið Umbi tók myndina, en stjómandi þess er Guðný Halldórs-
dóttir. Aðalleikendur em Edda Björgvinsdóttir og Þórhallur
Sigurðsson. í desember höfðu um 50.000 manns séð myndina.
Landsyfirréttardómar. Í október kom út 11. og síðasta bindi
Landsyfirréttardóma og hæstaréttardóma í íslenzkum málum, en
útgáfa þeirra hafði staðið yfir síðan 1916. Ármann Snævarr hafði
umsjón með fjómm síðustu bindunum. Utgefandi var Sögufélag.
Lá við flugslysi. Hinn 2. júní lá við, að eitt mesta flugslys
sögunnar yrði yfir Austfjörðum. Fyrir mistök flugumferðarstjóra
fóm SAS þota og þota frá British Airways allt of nálægt hvor
annarri.
Listamannalaun o.fl. 110 fengu listamannalaun á þessu ári, 95
fengu 40.000 kr. og 15 fengu 20.000 kr. - 94 rithöfundar fengu
(194)