Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Page 199
viðskiptum höfðu á árunum 1984 og 1985 verið frá 61% og upp í
272%. Nokkrir dómar féllu í þessum málum í undirrétti fyrri hluta
árs og gengu þeir gegn meintum okrurum. Einu þessara mála var
áfrýjað til Hæstaréttar og var dæmt í því 19. desember. Komst
rétturinn að þeirri niðurstöðu að sýkna bæri hinn meinta okrara af
flestum ákæruatriðum, þar sem Seðlabankinn hefði ekki auglýst
hámarksvexti frá því í ágúst 1984. Féllu þessi mjög umræddu
okurmál því að mestu niður.
Ólögleg myndbönd. Við lögreglueftirlit á myndbandaleigum í
desember fundust um 12.000 myndbönd, sem talin voru ólögleg, og
því gerð upptæk. Voru þetta ofbeldis- og klámmyndir, ótextaðar
myndir og myndir, sem höfðu verið fjölfaldaðar ólöglega.
P&O hætta að verzla. Reykvísku kaupmennirnir Pétur
Sigurðsson og Ólafur Maríusson hættu rekstri verzlunar sinnar um
miðjan september. Þeir höfðu þá stundað verzlun í Reykjavík í 28
ár.
Prentsmiðjan Hólar hættir starfsemi. I október var prent-
smiðjunni Hólum lokað vegna greiðsluerfiðleika. Hún hafði
starfað síðan 1942 og lengi verið ein helzta prentsmiðja landsins,
þekkt fyrir góð vinnubrögð.
Seld stolin mjólk. í febrúar varð uppvíst, að nokkrir starfsmenn
Mjólkursamsölunnar í Reykjavik höfðu um tíma selt um 20
verzlunum mjólk á hálfvirði.
Sjóminjasafn. Hinn 7. júní var opnuð ný menningarstofnun í
Brydepakkhúsi í Hafnarfirði. Þar skal safna saman minjum um
sjósókn íslendinga fyrr og síðar.
Sjötíu ára brúðkaupsafmæli. Hjónin Guðrún Sigurðardóttir og
Guðgeir Jónsson bókbindari áttu 70 ára brúðkaupsafmæli 21.
október. Þau voru bæði 93 ára og áttu 60 afkomendur.
Sprengjugabb. Hinn 9. janúar var tilkynnt í síma um
tímasprengju við Oddfellowhúsið í Reykjavík. Var húsið rýmt og
nærliggjandi götum lokað, en síðar kom í ljós, að um gabb var að
ræða.
Stofnun Sigurðar Nordals. Hinn 14. september varþess minnzt,
að liðin voru 100 ár frá fæðingu Sigurðar Nordals prófessors.
Menntamálaráðherra kunngjörði á þessum degi, að sett yrði á
laggimar stofnun við Háskóla íslands, sem bæri nafn Sigurðar. Á
(197)