Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 10
Helgarblað DV
Erfðamál;
Jóhannesar Kjarval
listmálara.
www.kjarval.blogspot.com
Snyrtispegillinn sem
stækkar fimmfalt
SNYRTI- OG GJAFAVÖRUVERSLUN
IA.UGAVEGI 80 - SÍMI 561-1330
Mikið úrval af jólagjöfum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is • Póstsendum
í tólf ár hafa vísindamenn hlustað eftir dularfullum söng ein-
mana hvals i Kyrrahafi. Sumir telja að hann sé síðasti ein-
staklingur óþekktrar tegundar í örvæntingarfullri leit að sín-
um líkum.
Hnúfubakur Syngur
á mun lægri tlðni en
óþekkti hvalurinn.
Songur
óhekkla hvalsins
>^~" A \
Einsamall hvalur syndir á hverju
ári sömu leiðina um norðanvert
Kyrrahaf. Á leiðinni gefur hann frá
sér þann söng sem hvalir eru þekkt-
ir fyrir og nota til að hafa samskipti
sín á milli. Hvalurinn virðist vera að
kalla eftir félögum en gallinn er sá að
„rödd“ þessa hvals er algerlega ein-
stök og enginn virðist vera til svars.
Vísindamenn hafa sumir leitt að því
líkur að hann sé af ókunnri tegund
og sé jafnvel einn eftir í veröldinni af
sinni ætt - eins konar Palli var einn í
hvalheimum.
Það er þó
óljóst þar
sem
eng-
inn
Gfsh Víkingsson, sérfræðingur á
Hafrannsóknastofnuninni „Nú greina
menn ekki aðeins muninn á miili söngva
tegundanna hetdur milli einstakiinga."
hefur séð hvalinn. Það hefur aðeins
heyrst til hans undanfarin 12 ár.
Hlustað með kafbátaleitar-
tækjum
Á hverju hausti og fram á vetur
hefur heyrst f þessum einfara þar
sem hann syndir alltaf sömu leiðina
og syngur. Vísindamenn eru farnir
að búast við honum og þekkja leið-
ina sem hann fer. Þeir hlusta eftir
honum með hlerunartækjum
bandaríska flotans sem ætíuð eru til
að fylgjast með ferðum kafbáta. Þau
eru svo leynileg að upplýsingar um
ferðir hvalsins hafa erm ekki verið
gerðar opinberar nema að hluta.
Sjávarlíffræðingurinn Mary
Ann Daher hjá haffræði-
stofnuninni í Massachu-
setts í Bandaríkjunum er
meðal þessara vísinda-
manna og hún segir að
hvalurinn syngi á tíðn-
inni 52 hertzum, sem
engir aðrir hvalir nota.
Ljóst þykir af hljóðun-
um að um sé að ræða
skíðishval, það er að
segja ættingja steypi-
reyðarinnar, langreyðar,
hnúfubaks og hrefnu.
Leið hvalsins um
óþekktar slóðir
Steypireyðurin syngur venju-
lega á tíðninni miili 15
og 20 hertz. Hún
getur sungið á
hærri tíðni en
ekki 52 hertzum.
Langreyður gef-
ur frá sér hljóð á
tíðnikringum20
hertz en hnúfu-
bakurinn syngur á miklu lægri tíðni.
Með árunum hefur söngur hvals-
ins dýpkað nokkuð, ef til vill einfald-
lega af því hvalurinn hefur elst, en
vísindamenn þekkja „rödd“ hans
samt ennþá greinilega. Daher kveðst
ekki þora að taka svo djúpt í árinni
að þarna sé um að ræða hval af
óþekktri tegund en sams konar
hljóð hafa þó hvergi heyrst annars
staðar, þótt víða hafi verið hlustað.
Enn merkilegra má kalla að sú
leið sem hvalurinn syndir á hverju
hausti, meðan á hinum einmana-
lega söng stendur, fellur ekki saman
við neina þekkta sundleið annarra
hvalategunda.
„Á bágt með að trúa ..."
Fréttin var borin undir Gísla Vík-
ingsson, sérfræðing á Hafrann-
sóknastofnuninni, sem hafði gaman
af. „Þetta er ansi skemmtileg frétt
sem ég hef ekki rekist á. Og þótt ég
sé ekki vel að mér í hljóðafræðum
hvala er ég nokkuð viss um að
skíðishvalir ná ekki 52 hertzum.
Þessar hlustunarrannsóknir í höfun-
um taka hröðum framförum, nú
greina menn ekki aðeins milli teg-
unda heldur geta þeir greint á milli
einstaklinga og þá fer að verða
mögulegt að telja hvalina í höfunum
með því að hlusta á þá.
Mér þykir nokkuð ótrúlegt að
þama sé áður óuppgötvuð tegund á
ferðinni, þær tegundir sem við höf-
um útrýmt eru allar þekktar í dag. En
fréttin er engu að síður skemmtileg
og ég ætla að fýlgjast með fréttum af
þessum einfara en ég er eins og ann-
að mannkyn, á bágt með að trúa
hlutum nema að ég fái séð þá með
einhverjum hætti.“
Kveikt á perunni!
Það var hinn 12. desember 1904 sem Jóhannes
Reykdal bóndi og trésmiður í Hafnarfirði gangsetti litla
virkjun sem markaði upphaf rafvæðingar hér á land.
Af þessu tilefni verður kveikt á risavaxinni Ijósaperu á
100 ára afmælisdaginn, sunnudaginn 12. desember 2004,
til að minnast tímamótanna á táknrænan hátt.
Það verður um kl. 18:30 sem kveikt verður á perunni
við Hafnarborg í Hafnarfirði og strax á eftir verður
flugeldasýning á vegum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.
SAMORIÍA
Serntök mforku- Nia- og vatmvettm