Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 14
74 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblað JJV Jói Fel og kona hans Unn~ ur Helga Gunnarsdóttir voru á tímamótum þegar Unnurgekk inn ínýopnað bakaríið hans. Nokkrum vikum síðar voru þau orð- in par. Nú hafa þau opn- að kaffihús og konditori í Smáranum, eiga samtals fjögur börn og njóta þess Unnur stendur við borðið sem lands- menn þekkja svo vel og sneiðir niður grænmeti en Jói hef- ur komið sér vel fyrir í horni eldhússins, þar sem kvikmyndatökumenn sjónvarps hafast við þegar Jói eldar. Hann hef- ur svipað sjónarhom á Unni og við heima í stofu á hann. „Já, þetta er alit tekið heima í eld- húsinu hjá mér og það em engir sal- ir,“ bendir Jói á og það er hægt að taka undir það. Eldhúsið virkar mun stærra þegar Jói er að elda fyrir okk- ur kræsingarnar en það í raun vem er. „Ég hef ógurlega gaman af þessu og held að fólk nái að læra það sem ég er að sýna því. MiJdlvægt er að hafa þetta einfalt svo allir geti til- einkað sér það, í stað þess að vera með eitthvað sem enginn nennir að gera,“ segir hann. Unnur og Jói Fel kynntust fyrst í bakarunu skömmu eftir að Jói opn- aði það. „Ég var alltaf ákveðinn í að fara út í sjálfstæðan rekstur," segir Jói en hann hafði áður verið í Dan- mörku að bæta við sig þekkingu. Lærði þar konditori en nam bakara- iðnina í Nýja kökuhúsinu. Hann neitar því að foreldrarnir hafi eitthvað hvatt hann út í nám í bakaraiðn en Jói er alinn upp í Safa- mýrinni. Ættaður úr Djúpinu og er stoltur af vestfirskum uppruna sín- um. Unnur bætir við að hún sé líka ættuð að vestan og þaðan sé líklega kominn þeirra andlegi skyldleiki. „Ég fann það um leið og við kynnt- umst að það lægju einhvers staðar þræðir," segir hún hlæjandi. Ungur í bakaríið Jói var í íþróttum í Fram en þar var einn þjáífara hans bakari. „Það var ekki endilega hann sem kom mér af stað. Þetta lúrði í mér allt frá því ég var yngri að verða bakari, ég veit ekki hvers vegna. Ég varð hins vegar ákveðinn eftir að hafa fylgst með þjálfara mínum og farið í starfskynningu í skólanum að þetta ætlaði ég að leggja fyrir mig. Ég byrj- aði því beint eftir grunnskóla," segir Jói og bætir við að áhuginn hafi ver- ið slíkur að hann hafi mætt fyrr á morgnana í vinnu til að geta fylgst betur með og náð því sem hann ætl- aði sér. Eftir heimkomuna frá Danmörku fór hann að leggja drög að bakaríinu sínu. Hann segist strax hafa verið ákveðinn í að vera með ítölsk brauð en það hafi ekki allir haft trú á að það gengi í landann. „Ég var alveg viss um að það væri það sem vantaði hér. Það kom á daginn og fyrsta dag- inn var nóg að gera. Og hefur verið allar götur síðan. íslendingar kunna vel að meta brauð með almennilegri skorpu, mjúk að innan," segir Jói og bætir við að hann hafi lagt sig fram um að vera með það sem fólki vildi. Nú hafa þau opnað nýtt bakaríi og kaffihús í Smáranum sem gengur mjög vel. Jói segir að vissulega hefðu þau getað opnað nýtt bakarí löngu fyrr og lítur á konu sína þegar hann er spurður hvers vegna ekki fimm í viðbót víðs vegar um bæinn. Unnur svarar því og segir að líklega sé það rétt, hún hafi ekki talið það við- skiptalega rétt. „Nei, það var betra að treysta grunninn vel undir það fyrsta áður en annað er opnað. Það var kominn tími á það og við erum mjög ánægð með nýja bakaríið í Smáranum. Sem reyndar er kaffihús jafnframt," segir Unnur ánægð með þróunina og að nú þurfi þeir sem búi í Kópavogi og bæjunum í kring ekki að fara alla leið inn á Kleppsveg til að fá góð brauð. Unnur fyrsta fallega konan Unnur hefur lokið við að sneiða niður grænmeti og allt er klárt fyrir Jóa i matseldina. „Já, hann eldar oft- ast matinn en stundum aðstoða ég hann við það,“ segir Unnur og játar að hún taki alltaf til í eldhúsinu á eft- ir. Hún segist ekki nenna að velta því fyrir sér hvað aðrir segi eða hvernig aðrar konur hafi það. „Við skiptum með okkur verkum og að taka til í eldhúsinu er eitt af þeim verkum sem koma í minn lilut.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.