Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 15
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 15 Jói gerir svo margt annað sem ég kem ekki nálægt og ég nenni ekki að vera í einhverri jafnréttisbaráttu hérna inni á heimilinu,“ segir hún og hristir höfuðið til áherslu. Hún bætir við að ekki fari hún með bílinn og láti skipta um dekk eða skrúfi þetta eða hitt sem þurfi að laga. „Það er fáránlegt að vera með einhvern meting í þessum efnum og við ger- um þetta einfalt og eins og okkur best líkar,“ segir Unnur. Jói tekur undir og bendir á að þannig sé það á flestum heimilum. Sá sem eldar þvær ekki upp og öfugt. Því ætti hann ekki líka að njóta þess að sleppa við uppvaskið? Unnur var nýlega skilin þegar hún gekk inn í bakaríið hans Jóa til að kaupa brauð og hann afgreiddi hana. Það var ást við fyrstu sýn. Þau hlæja bæði og Jói segist ekki neita því. „Hún var fyrsti kúnninn," segir „Ég treysti Jóa full- komlega og þarfekki að óttast um hann enda er hann heil- steypt og góð mann- eskja. Ég gæti ekki hugsað mér Ijúfari mann en hann Jói og lilær en útskýrir betur að Unn- ur hafi verið fyrsta fallega konan sem kom inn í bakaríið. „Ég tók strax eftir þessari fallegu konu,“ segir hann og lítur ástúðlega á hana. Endaði með að hún fór ekk- ert til baka „Hún kom svo aftur og aftur og það endaði með að hún fór ekki til baka,“ segir hann og brosir til henn- ar. Unnur tekur undir og segir að lík- lega megi lýsa þessu þannig. „Við vorum bæði á nokkurs konar kross- götum og kannski móttækileg hvort fyrir öðru. Ég var að vinna í mínu fyrirtæki í Sundagörðum og átti oft leið í pósthúsið við hlið bakarísins," segir hún og horfir á Jóa þar sem hann stendur við gluggann. Hann brosir á meðan þau rifja upp þessar fyrstu vikur og lætur Unni um orðið. „Áður en ég vissi af var ég farin að koma oftar í bakaríið en ég þurfti. Mér leist vel á þennan myndarlega unga mann,“ segir hún og skellihlær. Og áður en árið var liðið seldi hún bróður sínum sinn helming heildverslunarinnar og hellti sér af fullu krafti í reksturinn með Jóa. „Það þýddi ekkert annað, annað hvort var að vera allur í því eða ekk- ert,“ útskýrir hún og Jói segir að gott hafi verið að fá hana. Hún sé mikil bissnesskona og hafi tekið að sér að halda utan um reksturinn. „Þannig gat ég einbeitt mér að faginu og þurfti ekkert að vera að hugsa um peninga. Unnur á ekki minna í þessu fyrirtæki en ég,“ bendir hann á og lítur til konu sinnar. Litli Jói Fel sameinaði fjöl- skylduna Unnur bendir á að það hafi sést á bakaríinu þegar hún kom til sög- unnar og Jói neitar því ekki, „Það leyndi sér ekki að kona var komin í spilið, ég játa það," segir hann og brosir. Unnur átti tvö börn fyrir og Jói eitt. Hún segist ekki ætla að reyna að segja að það hafi verið auðvelt að koma öllu heim og saman í þannig fjölskylduformi. Það viti það allir sem reyni. Jói lítur til konu sinnar og segir að það hafi kannski verið skemmtilega erfitt að koma öllu heim og saman þannig að öllum lík- aði. „Það koma svo margir að því og það þarf að samræma hlutina þannig að öllum líki. Það er óþarfi að neita því að það kostar vinnu og þolinmæði," bætir Unnur við. Jói grípur inn í og tekur undir orð konu sinnar. Á heimilinu reynir hann ekki að leika pabba fyrir börn Unnar. „Það hefur frekar æxlast þannig að ég er félagi þeirra og vin- ur. Því ætti ég líka að vera að ráðskast með þau? Það hefur komið vel út. Eftir að við áttum litía Jóa Fel sem er fjögurra ára hefur fjölskyldan þjappast betur saman í kringum hann," segir Jói og útskýrir hve gott sé að fá barn sem allir eigi. Unnur tekur undir og segir að all- ir eigi eitthvað í þeim yngsta, hann sé bróðir allra barnanna og þannig upplifi börnin frekar íjölskyldu- tengslin. „En það hefur verið þess virði og okkur líður vel saman alla jafna," segir hún brosandi. Erfitt þegar konurnar horfðu á Jóa Bæði vinna þau hjón mikið. Fara snemma á morgnana suma daga og eru fram eftir degi. Unnur segist hafa yndislega konu sér til aðstoðar á heimilinu en þannig sé það, hún beri ábyrgðina á að allt gangi upp. ,Ætli ég taki það ekki bara að mér en við erum líka með veisluþjónustu og núna fyrir jólip er mikið að gera.“ Jói tekur undir og segir að þau reyni alltaf að fara saman í ræktina á hverjum degi. „Það er æðislegt að fara í ræktina," bætir Unnur við og það leynir sér ekki á þeim hjónum að þau eru í góðu formi. Þau eru sammála um að þannig byggi þau sig upp andlega og þreyt- an renni úr þeim eftir góðan klukku- tíma í hreyfingu. Það leiðir hugann að kvenhylli Jóa og Unnur segist svo sannarlega hafa orðið hennar vör. „Ég er líka svo falleg og þarf ekki að hafa neina minnimáttarkennd," segir Unnur og skellihlær. Hún bæt- ir við að vissulega hafi þær sent henni illt auga. „Já ég fæ stundum sérstakt augnaráð frá konum og ætli þær haldi ekki að ég sé eitthvað fyrir þeim. Mér er slétt sama og læt það ekki á mig fá. Og þó, fyrst fannst mér það óþægilegt hvernig þær horfðu á manninn minn en ekki lengur," segir hún og hlær. Jói stendur enn við gluggann og segir fátt en glottir og bætir við um- ræðuna að hann gefi nú ekki mikið færi á sér. „Það væri nú annaðhvort að konur færu að ráðast á hann í bakaríinu," segir Unnur og bætir við að erfitt sé að fara út á skemmtil- staði. Notar sér ekki útlitið til fram- færis Jói tekur nokkur skref fram og út- skýrir að þau reyni það ekki lengur. „Það er mikið ónæði sem fylgir því enda hefur maður ekkert að gera lengur á skemmtistaði. Við bjóðum frekar til okkar vinum heim, borð- um, spjöllum saman og dreypum á góðu vlni," segir Jói og Unnur minn- ist einnar ferðar á bar þar sem kon- urnar límdu sig á manninn hennar. „Það var ferlegt," segir hún og hristir sig og Jói tekur undir. „Auð- vitað kitíar það mann að heyra eitt- hvað fallegt um útíitið en ég held að ég noti mér það ekki til framfæris. Ég hef vissulega gaman af þætti mínum í sjónvarpi, annars væri ég ekki að þessu. Það var fyrst og fremst vegna þess að mér þótti margir þeir þættir sem sýndir hafa verið ekki skila því sem ætlast var til af þeim. Því vildi ég hafa þetta einfalt og létt þannig að allir gætu lært á meðan þeir horfðu. Mér hefur verið sagt að svo sé,“ seg- irjói. Þátturinn leiðir hugann að hrein- dýraveiðum í síðasta þætti sem margir tala um. Sumir efast um að Jói hafi sjálfur lagt dýrið. Jói hlær og segir marga hafa spurt þess sama. „Jú, ég skaut tvö dýr í þessari ferð og mér finnst ofsalega gaman að fara á veiðar. Það er mitt einkasport og Unnur fer ekki með mér," segir hann hlæjandi og grípur utan um konu sína. „Ég var ekki mjög glöð þegar hann hringdi í mig og sagði mér að hann hefði skotið mömmuna og kálfinn hennar líka. Guði sé lof að þær fóru báðar fyrst hann var að skjóta," segir hún og hryllingurinn framan í henni leynir sér ekki. Jói hlær og bendir á að þetta sé ekki kvennasport en kjötið af hreindýr- unum fengu áhorfendur að sjá hann steikja í þætti sínum í vikunni. „Og það var borðað með bestu fyst," seg- ir hann hlæjandi. Mikill kavalér Þau hjón eru mjög samstillt og vinna saman og stunda sín áhuga- mál einnig saman. Þau eru sammála um að lífið hafi upp á svo margt skemmtilegt að bjóða. „Við hugsum á svipuðum nótum og eigum vel saman hvort sem er í vinnu eða í hjónabandinu. Ég treysti Jóa full- komlega og þarf ekki að óttast um hann enda er hann heilsteypt og góð manneskja. Ég gæti ekki hugsað mér ljúfari mann en hann," segir Unnur og lítur á mann sinn. „Hann hefur mikið jafnaðargeð, er skemmtilegur og á það til að vera uppátækjasam- ur,“ segir Unnur og segir síðan frá óvæntri uppákomu sem gladdi hana mikið. „Þá vaknaði ég einn morguninn við að kápa sem mig hafði langað svo ofsalega mikið í hékk frammi á baði þegar ég kom þangað. Kápuna hafði ég lengi verið að velta fyrir mér að kaupa en hún var frá Donnu Kar- an og frekar dýr. Ég horfði stórum augum á hana þar sem hún hékk fyrir framan mig og ætíaði ekki að trúa mínum eigin augum," segir Unnur og bætir við að þetta hafi ekki verið allt og sumt. Hennar beið dek- ur á snyrtistofum, nudd, klipping og allsherjar meðferð. „Og síðan fór hann þessi elska með mig út að borða um kvöldið. Þetta á hann til, alveg óvænt og hann er svo stórtæk- ur í því sem hann gerir. Annað hvort allt eða ekkert," útskýrir hún og seg- ist seint gleyma þessum degi. Forréttindi að vera gift Jóa Þau giftu sig fyrir þremur árum og héldu heljarinnar veislu með fjölda gesta. „Við óskuðum eftir að fá ekki neitt í brúðargjöf en báðum fólk að gefa frekar peninga til styrkt- ar Neista, samtökum hjartveikra barna. Við höfðum ekkert að gera við gjafir, áttum allt af öllu og gátum keypt okkur það sem við þörfnuð- ust. Því að vera að koma fólki í þá aðstöðu að gefa manni einhverjar gjafir sem það hafði mikið fyrir að finna en við síðan á fullu að skila öllu dótinu, fáránlegt," segir Unnur. Jói segir að þannig hafi þau verið mikið sáttari og það hafi verið gam- an að geta lagt eitthvað af mörkum fyrir þá sem virkilega þurftu þess. Það hefur verið gaman að vera með þeim hjónum. Heimili þeirra er fallegt, án þess að vera ofhlaðið eða yfirdrifið enda allir hlutir vtildir af smekkvísi. Þau eru ánægð og það leynir sér ekki þegar rætt er við þau hve samstiga þau eru. Jói þessi sjar- mör sem vel er hægt að skilja að konur dáist að, og Unnur stórglæsi- leg og skemmtileg. Um leið og þau fylgja okkur til dyra bendir Unnur á fallega bekk í forstofunni. „Eitt sinn þegar ég kom heim beið hann þessi, fullur af rauðum rósum. Mig hafði lengi langað í hann og Jói vissi það. Svona gleður hann mig alveg óvænt. Og það er svo spennandi og gaman að vera gift manni sem hefur ánægju af að koma við hjartað í manni og halda því alltaf þannig að það slái af krafti. Það eru eiginlega forréttindi," segir þessi hressa kona og horfir á manninn sinn sem bara brosir þessu dular- fulla brosi sem við skiljum vel að hafi heillað konuna sem gekk inn í bakaríið hans fyrsta daginn sem það var opið. Og sneri ekki til baka. bergljoT@dv.is Unnur mundar hnffinn Jói eldar en hún aðstoðar stundum og segist ekki skammast sín fyrir að segja að hún taki til eftir hann i eldhúsinu enda nenni hún ekki einhverjum metingi um eitt eða neitt. Jói geri svo margt sem húnhafi ekki iag á að gera og hún það sem ekki liggi fyrir honum enda eigi það að vera þannig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.