Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004
Helgarblaö DV
Eftir að hafa hannað föt á Björk, unnið
sem stílistar í New York og víðar og selt
fötin sín í hátískuborgum á borð við
London, París, Tokyo og Hong Kong
hafa Aftur-systurnar Hrafnhildur og
Bára Hólmgeirsdætur tekið nýja stefnu.
Þær buðu þriðju systurinni, Sigrúnu,
aðgang að klíkunni, fluttu til Danmerk-
ur og opnuðu í gær verslun í „Soho“
Kaupmannahafnar á Nörrebro þar sem
hönnun margra þekktustu hönnuða
heims verður seld - meðal annars
Makedónans Marjan Pejoski sem komst
á heimskortið eftir að hafa hannað
svanakjól Bjarkar.
Danmörk varð eiginlega fyrir
valinu eftir að maðurinn
hennar Báru ákvað að koma
hingað i skóla," segir Hrafnhildur sem
tók sér hlé ffá málaravinnu og öðrum
framkvæmdum til þess að hitta blaða-
mann á Laundromat, kaffihúsi Frið-
riks Weisshappels, sem liggur aðeins
steinsnar frá Aftur versluninni.
Það eru aðeins örfáir dagar í opn-
un hennar og systumar eru búnar að
leggja nótt við dag undanfamar vikur
við að koma húsnæðinu í stand. „Við
emm alveg að drepast úr stressi.
Nokkrir dagar til stefnu og það er allt
úti um allt. En það væri eitthvað að ef
það væri ekki svoleiðis. Við emm lfka
búnar að gera allt þarna sjálfar. Á ís-
landi er maður ailtaf með fjölskylduna
og hafsjó af vinum í kringum sig sem
allir em boðnir og búnir að hjálpa. Ef
maður þarf sérsmíðað járn í gardínu-
hringina hringir maður bara í Óla sem
lætur mann fá símanúmerið hjá
Gunna. Héma er þetta meira fyrir-
tæki."
Gátu ekki opnað búð í Breið-
holti
Búðin er í kjallara á gömlu húsi í
náiægð við Sankt Hans Torv á Nörre-
bro. Allt í kring em hönnunarverslan-
ir, kaffihús og ýmis konar gallerí.
„Þetta hverfi er eins og Frikki Weiss-
happel segir, „Soho Danmerkur". Við
erum í svona liðsstarfi við að „öppa"
þetta hverfi," segir Hrafhhiidur og
hlær.
„f raun vomm við heppnar að fá
þetta húsnæði. Sigrún og Bára vom
búnar að vera hjólandi hérna út um
aiit að leita síðan í maí en ég kom bara
fyrir rúmum mánuði. Við trúðum því
alltaf að við myndum detta um eitt-
hvað þegar það ætti að gerast, fund-
um þetta og keyptum það. Þetta er
svona „andelsbolig" eins og Danirnir
kalla það. Maður borgar vissa upp-
hæð í upphafr og eftir það er leigan
lág. Við hefðum aldrei getað þetta á ís-
landi, ekki einu sinni í Breiðholti!
Leigan heima er svo mikil geðveiki.
Okkur langaði alitaf að opna svona
vinnustofu og búð þar en fundum
aldrei neitt húsnæði sem var nógu
ódýrt."
Danir ekki lengur „hippó"
Eins og áður sagði var Aftur versl-
unin opnuð í gær en danskir fjölmiðl-
ar hafa þegar sýnt henni mikinn
áhuga. Á næstunni munu birtast
greinar í blöðum á borð við
Eurowoman, IN og Cover. Hrafnhild-
ur segir Dani vera mjög tískumeðvit-
aða í dag. „Það er mikill munur á því
að rölta um Kaupmannahöfn í dag og
fyrir svona tveimur árum síðan. Danir
hafa náttúrulega alltaf verið frekar
„hippó" og eftir á en mér sýnist vera
mikil uppvakning í gangi. En þær
hönnunarbúðir sem ég hef skoðað
eru ekki mjög framsæknar og mér
sýnist vera markaður fyrir eitthvað
hressandi."
Hrafnhildur segist ekki halda að
þær systur komi til með að hagnast
sérstaklega á því að vera íslendingar í
Danmörku. „Mér skilst að litið sé á ís-
lendinga sem þriðja flokks innflytj-
endur. Þeir eru kannski skrefi ofar en
Arabarnir. Athyglin held ég að sé
minnst út á það að við séum íslenskar
þótt maður eigi því að venjast víðast
hvar annars staðar."
Tyrknesk prinsessa og Jón Sæ-
mundur í bland
Þegar systumar ákváðu að opna
búðina gerðu þær Usta yfir þá hönn-
uði sem þær ætluðu að bjóða pláss.
Allir þáðu boðið með þökkum. „Þetta
eru uppáhaldshönnuðirnir okkar í
gegnum tíðina og ekki sjálfgefið að
þeir vilji selja hjá manni. Þeir eru
margir heimsþekktir innan tísku-
geirans, til dæmis Makedóninn
Marjen Pejoski sem hannaði svana-
kjólinn hennar Bjarkar fyrir Óskarinn.
Hann á þær búðir í London og París
sem byrjuðu fyrst að selja hönnun
okkar systra - er svona tískupabbi.
Jeremy Scott frá Bandaríkjunum
verður líka hjá okkur og As Four en
þau gerðu kleinuhringjatöskurnar
sem hafa mikið verið kóperaðar. Svo
verðum við með frábæran skartgripa-
hönnuð - tyrkneska prinsessu sem
heitir Yazbukey og vinnur í París,
Afíur-systur f Kaupmannahöfn Þæropnuðu
| nyja buð með vörum sínum og annarra hönn-
uða á Nörrebro í Kaupmannahöfn (gær. Frá
vmstri á myndinni eru þær Hrafnhiidur, Bára og
Sigrun Hólmgeirsdætur.
É 1 I ' m r jr 'y 1 I 1 | I 1 1 i Tj | 11
W é i \ 1 1 8 il Hl|[í 11 M • H 1! 1«i 1)11
gallabuxnamerki sem heitir James
Jeans, Death og The Explorers frá ís-
landi og La Casitade Wendy ffá Spáni.
Þau síðastnefndu eru mikið með
prjónadót, til dæmis peysur með E.T.
mynstri. Svo ætlum við líka að vera
með eitthvað af „second hand" föt-
um. Bara einstaka skemmtileg stykki
sem við erum búnar að vera að
gramsa eftir í Hollandi, Bandaríkjun-
um og víðar. Þetta verður svona Aftur
„with guests" eða Aftur og meira.
Svona sitt lítið af hveiju."
Leyfðu Sigrúnu að vera með
Þótt þriðja systirin sé komin inn í
fýrirtækið er þess ekki að vænta að
hönnunin taki stakkaskiptum enda
kemur hún til með að sjá um flest sem
lýtur að viðskiptahliðinni. „Sigrún
kemur til með að halda utan um hlut-
ina og ekki síður að halda mér á mott-
unni. Það eitt er í rauninni fullt starf,"
segir Hrafnhildur og brosir.
„Við Bára erum búnar að vera tvær
í þessu síðan 1999 en þetta var orðin
spurning um í hvaða átt við ætluðum
að fara með fyrirtækið. Ætluðum við
að halda áfram að búa til litlar lrnur og
fara á litlar sýningar í París, eða ætluð-
um við að opna búð þar sem við gæt-
um verið með beint samband við
kaupandann? Þegar við ákváðum að
gera þetta fyrir alvöru ákváðum við í
leiðinni að Sigrún mætti vera með.
Það var eiginlega ekkert að gera fyrir
hana áður nema horfa á skuldirnar
vaxa. Það munar öllu fyrir okkur að
hafa hana með. Það fer svo ótrúlegur
tfmi í að svara tölvupósti, fara í viðtöl
og skoða papprrsdrasl sem er fúlt þeg-
ar maður gæti verið að klippa og
sauma."
Leiðinlegt í snobbhverfinu
Hrafríhildur, Bára og Sigrún eru
ekki bara að opna búð saman, þær
búa líka saman. „Við búum á Fred-
riksberg í hálfgerðri kommúnu. Þrjár
systur, einn maður, fullt af bömum og
annað par í 300 fermetra húsi. Reynd-
ar erum við að reyna að losna undan
leigusamningnum. Mér finnst þetta
svo leiðinlegt hverfi." Blaðamaður
verður hissa enda þykir Fredriksberg
eitt fínasta hverfi Kaupmannahafnar.
„Já, þetta er voða fínt en þama er
mestmegnis ríkt, gamalt fólk. Voða ró-
legt allt. Ég væri til í að búa héma á
Nörrebro eða í nálægð við Istedgade."
Hrafnhildur er ekki vön rólegheit-
um eftir að hafa eytt miklum tíma f
NewYork en hún segir að sér líki jafn-
vel betur í Danmörku. „Mér finnst
gott „tempó" héma. Þetta er algjör
andstaða við New York. Þar er ein-
hvem veginn allt í gangi í einu;
„lunch", „brunch", partí, afmæli,
opnun og fólk er nánast í fullu starfi
við að vera til. Hér fara allir snemma
til vinnu á morgnana og snemma að
sofa. Við systumar erum að vakna á
bilinu frá hálfsex til átta. Mér finnst
það voða gott, varð að minnsta kosti
ekkert úr verki í New York en vinn vel
héma."
Aftur eins og amaba
Hrafnhildur segir alveg eins lfklegt
að Aftur systur setjist að í Danmörku.
„Við ætlum að minnsta kosti að vera
hér í einhver ár. Kannski alltaf, ég veit
það ekki. ísland er samt alltaf heima.
Ég verð líklega síðust okkar systranna
til að segjast ætla að setjast að ein-
hvers staðar - hef alltaf verið algjör
flökkukind í mér og finnst mjög erfitt
að vera á sama staðnum lengi. En það
er gott að hafa aðsetur einhvers stað-
ar, einhvem fastan punkt í tilvemnni.
Þá getur maður alltaf komið og farið.
Hugsunin á bak við Aftur frá upphafi
var að þetta væri svona nokkurs konar
amaba, svolítið teygjanlegt. Ég hef far-
ið á tónleikaferð með Björk í fleiri
mánuði og Bára skroppið í bameign-
arfrí' án þess að það sé eitthvað til-
tökumál.
Ég er strax búin að finna mér um-
boðsmann héma úti og ætla að reyna
að fara að vinna eitthvað sem stílisti
um leið og við erum búnar að opna
búðina. Það hefur alltaf verið mitt lifi-
brauð þegar Aftur hefur ekki verið að
gefa almennilega af sér. Við erum í
öllu héma, „stílistumst", skúrum og
vinnum á hóteli. Hingað til höfum við
alltaf unnið fulla vinnu og unnið við
Aftur í hjáverkum. Núna ætlum við að
vinna við Aftur og gera annað í hjá-
verkum." sigrunosk&dv.is