Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 22
22 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblað DV Björn Jörundur var aö fá úr prentsmiðjunni 5. tölublaðið af bOGb Hann tók við ritstjórn timaritsins blautur á bak við eyrun. Nú er komin reynsla og hér ræðir ritstjórinn meðal annars hversu erfitt getur reynst að kollvarpa hugmyndum fólks um að hann ritstýri klámblaði og árásir femínista á hendur sér - en um þær hefur hann ekki tjáð sig áður. Bjorn Jorundur Er alveg standandi undr- andi á þeim árásum sem hann hefur mátt þola frá femínistum og telur þar afar ómak- lega að sér vegið. I tlmaritinu hans, sem ætl- að erkarlmönnum, ernefnilega ekkertklám En aðgerðirnar leiddu reyndar til aukinnar solu þannig fátt er svomeð öllu illt Þetta kom mér að sjálfsögðu ekki á óvart. Ég hef oft ver- ið valinn kynþokkafyllsti eitt eða annað, sætasti þetta og ljótasti hitt. Þetta er eins og með vinsældir stjórn- málamannanna, þeir sem eru vinsælastir eru einnig óvinsælastir," segir Björn Jörundur ritstjóri og tónlist- armaður. Hann lætur sér hvergi bregða. Fyrir viku birti DV athyglisverða könnun þar sem kynþokki poppara var skoðaður með fulltingi álitsgjafa, 16 kvenna sem sérfróðar mega heita um kynþokka karla, og þá kom á dag- inn að kynslóðaskipti hafa orðið í þeirri deild. Einn af fáum sem héldu haus og klóruðu í bakkann þegar heiður eldri kynslóðarinnar er ann- ars vegar var Björn Jörundur Frið- björnsson sem hreppti 3. sætið. „Neinei, þetta kitlaði ekki hé- gómagirndina. Hluti af starfinu er að vinna fyrir opnum tjöldum. Þá má eiga von svona uppákomum. Og eftir að Jón Ólafsson var valinn kynþokka- fyllsti karlmaður fslands á Rás 2 þá veitti hann hinum venjulega íslend- ingi nýja von. Að mér meðtöldum. Þess vegna kom þetta mér ekki á óvart." Pæliröu í kynþokka? „Já, kynþokka kvenna en ekki mínum eða karla. Bara alls ekki." Engin kynþokkakeppni statt og stöðugt Fyrir noklcru tók Björn Jörundur að sér það verkefni að ritstýra tíma- riti sem Fróði gefur út sem þá hét Bleikt og blátt en ber nú títilinn bOGb. Tímaritið er ætlað karlmönn- um og þá hlýtur kynþokkinn að vera í brenndepli. Pleasure Créme í nœsta aþóteki fallega, hjartalaga öskju með súkkulaði í kaupbœti. Pleasure Créme er náttúrulegt krem, sérstaklega hannað til að auka unað í kynlífi. Pleasure Créme framkallar, styrkir og lengir fullnægingu, eykur kynhvöt og kynæsingu og hjálpar konum að mynda eðlilegan raka í leggöngum. Frábær jólagjöf handa þeirri sem þú elskar Fœst í aþótekum og á femin.is meðan birgðir endast C'.T www.pleasurecreme.is Pleasure Créme®^ „Við erum elckert á þeim nótum að vera með kynþolckakeppni statt og stöðugt. En við reynum meðal ann- ars að taka fallegar myndir af fallegum stelpum og ekki skemmir fyrir ef þær eru kynþokkafullar. Upp- haflega hugmyndin var sú að reyna að ná því fram í myndunum. En það er síðan bara undir hælinn lagt hvernig til tekst. Misvel trúi ég eins og með allt annað." Best er ef efni og útlit haldast í hendur og þá er nærtækt að spyrja Björn að því hvort skrifin séu þá ekki þrungin kynþokka, að þar drjúpi sex af hvurjum pennaoddi? Björn gefur ekkert mikið fyrir þetta. „Sko, þetta blað hefur tekið þeim stakkaskiptum að það er ekki um kynlíf heldur er þetta blað fyrir karl- menn. Ég legg meira upp úr því að skrifin séu hnittin, skemmtileg og áhugaverð heldur en að þau snúist eingöngu um málefni tengd kynlífi." Fjölskrúðugur hópur kemur að blaðinu Bjöm Jörundur hefur kallaði til sín lausapenna úr ýmsum áttum í til- tekin verkefni og kennir ýmissa grasa í þeim hópi manna. „Bara eins og eftii hafa staðið til. Sá sem skrifar mest í blaðið með mér er Guðmund- ur Steingrímsson. Svo hefur verið hjá okkur fastur penni sem heitir Stefán Pálsson, spurningaljón og starfsmað- ur Rafveitunnar. Svo hef ég verið með Óttar Proppé til að fjalla um bækur og Kristófer Dignus um kvik- myndir. Sá rauðhærði Þossi hefur verið að skrifa um tónlist, nýjar plöt- ur og slíkt. Hann hefur einnig verið duglegur við að senda mér ýmslegt gamanefni frá Danmörku þar sem hann situr við nám. Þá em ónefnd Margrét Hugrún sem hefur skrifað mikið fýrir mig sem og hún gerði fyr- ir mína tíð. Hún myndi teljast til fastastabbans. Svo er þetta reitíngur héðan og þaðan. Menn hafa verið að senda mér ýmislegt áhugavert efni sem við á hverju sinni. Mjög margir sem koma að þessu hafa drepið nið- ur penna." Poppari tekur við klámriti Gríðarlega athygli vaktí þegar spurðist að það væri enginn annar en Björn Jörundur, landsþekktur popp- arinn, sem tæki að sér að ritstýra Bleiku og bláu. Hann var kallaður í alla kjaftaþættí sem hugsast gat. „Eg held að fólk hafi séð fyiir sér að við tæki tímabil í líkingu við það þegar Davíð Þór Jónsson var rit- stjóri. Að þetta yrði á svipuðum nót- um. En þegar hann var með þetta blað bjuggum við í allt öðru vísi samfélagi. Og þá rokseldist Bleikt og blátt með því að vera eins gróft og línan sagði til um. Þá var stefna blaðsins að fjalla alfarið um kynlíf. Sennilega hefur það þótt fréttnæmt að poppari á borð við mig væri að takast á við slíkt verkefni. En nú tíð- in önnur. Það sem ég á við með því er að með tilkomu netsins er staðan allt- önnur. Hafi einhver áhuga á klámefni þá bara nær hann sér í það og er ekkert að eltast við eitthvað talcmarkað framboð í einhverju tímariti eins og þetta blað bauð upp á þá. Maður keppir ekkert við slflct. Ég sá fyrir mér að sóknarfærin fyrir þetta blað væru þau að gera tímarit sem höfðar til karla sem lesenda. Ekkert þeirra tímarita sem gefin eru út á landinu eru með karla sem markhóp heldur eingöngu gefin út fyrir konur. Og miðast við áhugasvið þeirra." Skarast áhugasviö kvenna og karla ekki? „Jújú, þau gera það. Enda hitti ég reglulega kvenfólk sem hefur gaman af því að lesa þetta blað sem við erum að gera." Tímafrekt að kollvarpa hug- myndum um klámblað Nú, þegar fimm tímarit eru að baki, segir Björn stöðuna þá að blað- ið seljist betur en það gerði áður en hann tók við. „En það selst reyndar ekki eins vel og ég ætlaði mér að láta það seljast. Það tekur eðilega tíma að „estabilisera" nýtt tímarit fyrir utan að það er ófyrirséð hversu langan tfrna tekur að kollvarpa hugmyndum fólks um þetta blað sem einhvers- konar klámrit." En er ekki einfaldlega staöan sú að karlmenn kaupa ekki glanstíma- rit? „Það skal alveg viðurkennast að sá er erfiður hjalli. Þetta verður að koma í ljós. En staðreyndin er nú samt sú að karlar kaupa fullt af glanstfrnarit- um: Þessi erlendu tímarit sem fjalla um tísku og dægurmál að ógleymd- um þessum áhugamálatímaritum sem eru líldega með langstærstu sneiðina af þeirri köku sem eru tíma- ritakaup hjá strákum." Nú þegar reynsla er komin á rit- stjórastarfið þá reynast það allir hinir óteljandi snúningar í kringum eitt stykki tí'marit sem komu Birni mest á óvart. „Það fer gríðarlega mikill tími í að gera svona tímarit. Alveg lygilega mikill tími og meiri en ég ætlaði mér. AUt þetta ferli er tftnafrekt." Bjöm Jörundur hafði fram að því að hann tókst á hendur þetta verk- efni ekld skrifað neitt að ráði í blöð, aðallega fyrir sjálfan sig. En honum lætur ágætlega að skrifa og segir það elckert vandamál. „Ég hef mjög gam- an að því að skrifa. Kreatíf vinna. Rétt eins og gaman er að semja lög... það er alltaf gaman að búa eitthvað til og þetta lýtur sömu lögmálum að því leyti og tónlistin." Skotspónn femínista Björn Jörundur hefur síður en svo setið á friðarstóli við það að stýra bOGb. Fyrir nokkm tóku ungir femfnistar sig til og fóm í bókabúðir landsins með lftnmiða sem þær settu á blað Björns og vömðu við kvenfyr- irlitningu og klámi sem í tímaritinu væri að finna. Og fengu sitt spott í fréttum fyrir vikið. „Það er náttúrlega gefið mál í mínum huga að þær virðast hafa tek- ið þetta eitthvað skakkt í sig. Ljóst er að þær em að missldJja blaðið ef þetta er það sem þær em að hafa áhyggjur af: Einhverskonar „klám- væðingu almannarýnisins" og þar af leiðandi niðurlægingu á kvenfólki. En þá er þetta kolrangur vettvangur. Þá eiga þær að fara í útlensku klám- blöðin. Það er ekkert klám í þessu blaði. Því miður." En þú ert að hlutgera konuna? „Ég er að sýna kvenmannslík- amann eins og hann er. Ekkert öðm- vísi er að sýna myndir af kvenfólld en körlum eða hverju sem er. Hlutgera á hvaða hátt? Ég er ekki að stilla konum upp öðmvísi en þær er. Mynd af fal- legri konu getur vart talist slæm í sjálfri sér?" Þú stillir konunni og hennar lík- ama upp sem leikfang karldýrsins sé? Framhald á næstu opnu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.