Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 24
24 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004
Mef.«erblað DV
GÓÐ LEIKFÖNG
IVERPOOL
Þar sem leikföngin fást
Laugavegi 25 • Sími 551 1135
„Alls ekki. Reynt er að ná fram
sem allra bestri mynd af viðkomandi
fyrirsætu. Eða einstaklingi."
Og þar höfum við það.
í ýfingum við „talibana"
Engin eftirmál verða af þessu máli
að sögn Björns Jörundar. „Auðvitað
er þetta kolólöglegt sem þær voru að
gera. Væri eflaust hægt að kæra þær
fyrir skemmdarverk og eitthvað fleira
sem ég kann ekki nöfnin á í sam-
bandi við að hindra og eyðleggja
frjálsa verslunarhætti. Þetta eru hálf-
gerðir terroristar, talibanar, og haga
sér eins og slíkir. En mér fannst þetta
svo kjánalegt og vitlaust að ég sá
enga ástæðu til að taka þessu alvar-
lega þá, með kærum og látum og geri
ekki nú. Eins og ég hef áður sagt skil
ég alveg þeirra málstað og margt þar
á fullan rétt á sér. Þær bara eru að
velja sér rangt skotmark. Ég kem
þessu ekki heim og saman sé litið til
þess sem þær eru að boða. Sannar-
lega eru þær ekki að velja sér rétt
skotmark til að láta ergelsi sitt bima
á. En ég ætti kannski að kunna þeim
hinar bestu þakkir, þetta var ekki
alslæmt því blaðið sem þær voru að
jagast á rauk upp í sölu. Hafði þveröf-
ug áhrif. Þeim tókst að auglýsa það
svo vel.“
Ný dönsk hættir aldrei
Rétt um það leyti sem Björn var að
búa sig undir að skrifa og hanna
tímarit fyrir karlmenn þá urðu þær
„Ég upplifði þetta [tónleikana
með Sinfóníuhljómsveit íslandsj
sem svo að vera orðinn svolítið
mikið „adult contemorary". Mér
fannst hljómsveitin orðin
nokkuð gömul þegar við
vorum að þessu."
sviftingar að Magnús Hreggviðsson
seldi útgáfufyrirtækið Fróða og
prentsmiðjan Oddi keypti. Aðspurð-
ur segir Björn það ekki hafa haft mik-
il áhrif á sig.
„Ég bjó svo skamma hríð við
gamla kerfið og ekki kominn í neinar
fastar skorður. Þessar sviftingar tmfl-
uðu mig nánast ekki neitt. Hef engan
samanburð eins og fólk sem þarna
hefur starfað uppundir 20 ár - það
finnur ömgglega mikla breytingu."
í ljós verður að koma hversu lengi
Björn mun verða við ritstjórn bOGb,
hann segist vera rétt að byrja
og vinnan sé skemmtileg -
þrátt fyrir allan tímaþjófnað-
inn. Og hann finnur sér tíma til
að starfa með sinni gömlu
hljómsveit: Ný danskri sem er
að sem fyrr.
„Já, þetta er svo rosaiega
sexí hljómsveit. Og nú liggur
fyrir að tveir af fjórum þykja
svona ofboðslega kynþokka-
PLAGGOT
Miro, Kandinski,
Mattise, Chagal,
Hopper, Monet,
John Lennon,
Picasso o. fl.
Málverk:
Pétur Frlðrik, Tolli,
Sverrir Haralds, Atli Már,
Kári Eiríksson, Hringur,
K. Davíðsson, Kjartan
Guðjónsson, Karólína
Lárusdóttir, Þorvaldur
Skúlason, Valtýr
Pétursson, Hafsteinn
Austmann, Gunnar Örn,
Jón Reykdal, Jóhannes
Geir o.fl.
íslensk myndlist
Ný dönsk hættir aldrei I
ungæöingslegum hroka fyrir!
árum hélt Björn Jörundur þvi
fram að hljómsveitin Ný dönsk
myndi aldrei hætta. Hann hefur I
ekki breytt um skoðun en
fannst þó sem hljómsveitin væri |
orðin eilítið gömul þegar hún
kom fram með Sinfó.
ÉlÉt
Rammainiðstöðin hefur opnað nýtt
myndiistagallerí, hefiir það fengið nafiiið
Listmunahúsið.
Fyrsta syningin er einstök sölusyning
á veikum Valtys Péturssonar listmalara.
Allirvelkomnir.
Innrömmun
samdægurs
til
jóla
Opið frá kl. 9-18
Opið laugardaga kl. 10-22 • Sunnudaga kl. 13 -17
fullir. Ekki hægt að hætta með það.
Nei, þetta er furðulegt, gamlir sveittir
karlar... En það hefur aldrei staðið til
að hætta. Ég sagði fyrir einhverjum
15 árum, þá hrokafullur unglingur:
Þessi hljómsveit hættir aldrei. Ég hef
ekki skipt um skoðun og þeir sem
ekki fila hljómsveitina verða bara að
sætta sig við það. Læra að lifa með
því."
„Adult contemporary"
Og Ný danskir sitja síður en svo
með hendur í skauti. Nýverið voru
haldnir þrennir tónleikar með hljóm-
sveitinni og Sinfóníuhljómsveit ís-
lands fýrir troðfullu húsi og við mikla
hrifningu. Út er kominn plata sem og
DVD diskur þar sem þá dýrð gefur að
líta og heyra. Hvernig upplifun var aö
takast a' við þetta verkefni?
„Ég upplifði þetta sem svo að vera
orðinn svolítið mikið „adult
contemorary". Mér fannst hljóm-
sveitin orðin svolítið gömul þegar við
vorum að þessu. Ekki að vinna með
Sinfó sem slíkri heldur var fyndið
þegar maður heyrði útsetningarnar.
Lög sem maður samdi fyrir löngu
spiluð af 80 manns er nokkuð sem
maður bjóst kannski aldrei við að
yrði. Að maður ætti eftir að heyra
það... nei, það hvarflaði ekki að mér.
En fyrst og fremst bara flott. Elsta lag-
ið á þessum tónleikum er líkast til af
2. plötunni og slagar hátt í að vera 15
ára gamalt. Nei, ég sé það núna, það
er auðvitað ekkert gamalt miðað við
ýmislegt það sem Sinfóníuhljóm-
sveitin tekur fyrir."
Björn segir að þeir hafi hugsað til
þess hvaða lög hentuðu í þessar um-
búðir auk þess sem þeir forðuðust að
taka lög sem hafa komið út á
safndiskum. „Það eru þarna lög sem
hafa kannski heyrst minna en eiga
fullt erindi," segir Björn Jönmdur
sem ekki fær að sleppa án þess að
svara að lokum einhverju til um sína
persónulegu hagi.
„Ég er einstakur faður. Dóttir mín
Magdalena er búsett úti í Belgíu með
móður sinni. Þannig að ég er laus-
beislaður að nokkru. En hún er dug-
leg að koma í heimsókn og ég að fara
út til hennar þegar ég get. Lífið? Jájá,
það er bara helvíti ft'nt núna."
jakob@dv.is