Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblaö DV CtíofftatíliiiiAI Blessuð agúrkan er fitulaus að kalla og í meðalgúrku eru ekki nema svona 39 hitaeiningar. Og þó að 96% þyngdar hennar séu vatn erhún stút- full afvítamínum,söltum, trefjum og steinefnum. Hún heitir cucumis sativus á latínu og þaðan hafa enskumæl- andi sína cucumber en agúrk- an okkar erskyldari grískri aggouria og þýskri Gurke, enda hvlla þau nöfn á indó- evrópskri rót. Þar með er líka Ijóst að maðurinn hefur gætt sér á gúrkum í þúsundir ára, fann hana sennilega fyrst á sléttunum upp afBengalflóa á Indlandi. Og strangt til tekið er gúrk- an ekki grænmeti heldur ávöxtur. Agúrkan varkomin til Kína tveimur öldum fyrir okkar tímatal og Tiberíus Rómakeisari á fyrstu öld var brjálað- ur, eins og margir I hans stöðu fyrr og síðar, og líka í agúrkur. Hann át að minnsta kosti eina á dag og þurftu garðyrkjumenn hans að finna upp nýjar ræktunaraðferðir svo þeirra ágæti keisari gæti hámað þær í sig allan ársins hring. Karlamagnús af Frakklandi lét rækta ávöxtinn ígörð- um sínum og sögur fara af agúrkum á Englandi á fyrri hluta 14. aldar. Þarlendir týndu gúrkukúnstinni niður I Rósar- strlðunum en fengu þær aftur frá meginlandinu hálfri þriðju öld síðar. Kristófer Kólumbus hafði gúrkur með sér til Nýja heimsins og strax árið 1494 voru þær ræktaðar I stórum stll á Haítl. Á fyrri hluta 16. aldar voru indjánar á Flórlda farnir aö rækta ávöxtinn og I lok þeirrar aldar var hann kominn til Virginlufylk- is. Um svipað leyti voru indjánar og nýbúarí Bras- ilíu að háma hann I sig. Uppi við Norðurpól rækta meira að segja Is- lendingar gúrkur I upphituðum gler- húsum og hafa þærí meðallagi stór- ar og dökkgrænar, en þær eru llka til stórar og Htlar, Ijósgrænar, fölar og hvítar. HV'ENÆR FORSTU SÍÐAST ÚT AÐ BÖRÐA? „Mér var boðið á stað sem heit- ir Kaffi Reykjavík. Þar fékk ég þrí- réttaða máltíð og var mjög ánægður. Þetta var fínn matur og einkar ánægjuleg stund með góðu samstarfsfólki." Einar Svein- björnsson veður-1 fræðingur. Meðan sumir láta aðeins grænmeti inn fyrir sinar var- ir vilja aðrir ekki að fæðan innihaldi kolvetni, lita ekki við kornmeti held- ur háma í sig ket. Þessir eiga þó sam- eiginlegt að elda sinn mat en María Óskarsdóttir til- heyrir hópi fólks sem neytir aðeins grænmetis, ávaxta, fræja, hneta og sjávarþara og það sem meira er - „Vissulega er þetta nokkuð bylt- ingarkennt mataræði,“ viðurkennir María Óskarsdóttir. „Hráfæði er bara óeldaður matur, það er að segja grænmeti, ávextir, ýmis konar fræ og hnetur og sjávarþari. Mjólkurafurðir teljast ekki til hráfæðis." Hiti eyðir ensímum María segir hráfæðisfólk hreint ekki byggja mataræði sitt á sérvisk- unni. „Þegar matvæli af öllu tagi eru hituð upp fyrir 48 °C skemmast ensímin í þeim, en þau eru okkur nauðsynleg til að melta fæðuna. Og þegar við fáum ekki þessi nauðsyn- legu ensím úr matnum ganga lík- amar okkar á eigin ensímbirgðir, en þær eru takmarkaðar. Við viljum sem sagt ekki ganga á þessar birgð- ir líkamans heldur koma á jafn- vægi. Margir halda sjálfsagt að ökk- ur skorti þá ýmis önnur fæðuefni Pastaveisla hráfæðisætu 1 stk. kúrbítur Afhýðið kúrbítinn og skerið hann niður í langar ræmur, þá litur hann út eins og spaghetti! Pastasósa 1 bolli sólþurrkaðir tómatar lagðir í bleyti 1 bolli niðurskornir tómatar 1/2 bolli niðurskornar gulrætur 3 tsk. óllfuolía 2 tsk. óreganó 2 tsk.Tamari-sojasósa 1 tsk.rósmarln 1/2 tsk.timjan 1-2 hvítlauksrif. Öllu þessu blandað saman í matvinnsluvél, sósunni hellt yfir kúrbltsræmurnar og snætt með góðri lyst. en við fáum til dæmis kalk úr möndlumjölk, það er meira að segja meira af henni þar en í venju- legri mjólk. Prótein fáum við úr spírum, hnetum og grænmeti og fæði okkar er bókstaflega stútfullt af vítamínum." Lækningamáttur líkamans María hefur lést um tæp 20 kíló síðan hún byrjaði á hráfæði. „En það er bara ánægjuleg aukaverkun, aðal- atriðið er að fæðið kemur jafnvægi á efnin í líkamanum. í honum er mik- ill lækningamáttur og þegar hann hefur náð þessu jafnvægi hefst hjá honum tiltekt, ýmsir kvillar hverfa hægt en örugglega. Orka manns eykst líka gífurlega og algengt er að svefnþörf manna minnki. Ég hafði barist við alls konar mataróþol þeg- ar ég kynntist hráfæðinu en er eins og ný manneskja." Alls ekki einhæft fæði Við fýrstu sín virðist hráfæði vissulega nokkuð einhæft mataræði. „En það er það alls ekki,“ svarar María. „Við gerum drykki og góm- sætar sósur í matvinnsluvélum og með þurrkofnunum getum við gert okkar mat líkari öðrum, bakað brauð og kökur úr ffæjum, spíruðu korni og hnetum. Hjá mér verða sem sagt gleðiieg jól í mat og drykk, á matsölustöðum heldur maður sig við salötin, lætur gestgjafa sína vita af mataræðinu í tíma eða hefur bara með sér nesti. Við hráfæðuætur erum um 40 talsins og hittumst reglulega og berum saman bækur okkar. Eg og fleiri höldum úti netsíð- unni www.lifandi.net og þar er hægt að nálgast upplýsingar og uppskrift- ir af ýmsu tagi. Á þriðjudag verðum við með sérstakt námskeið í jólahrá- fæði,“ segir María Óskarsdóttir og eldar ákaflega einfaldan en gómsæt- an pastarétt úr zucchini eða kúrbít. rgj@dv.is Asía ★ Veitingarýni Asía aflraunamanna Kvöldmatur var vondur á Asíu við Laugaveg. Svínakjötið og lambakjöt- ið var hvort tveggja ofsteikt og bein- línis seigt, svínakjötið á tréteinum undir þykku lagi af ótilgreindri sósu, sem huldi kjötið og vel það. Meira að segja kekkjuð hrísgrjónin voru léleg eins og þau væru upphituð eða frískuð undir heitri vatnsbunu. Bezt var sterka hoisin-sojabaunasósan kínverska,'sem fylgdi lambakjötinu í hóflegu magni. Ég borða yfirleitt það, sem mér er rétt, sérstaklega þjóðlega rétti úr ýmsum heimshornum, jaftivel ís- lenzka, en hér gafst ég upp. Samt voru viðskiptavinir utan ferða- mannatímans að meirihluta Austur- Asíufólk. Staðurinn ætti því að vera góður, samkvæmt reglunni um, að slíkt fólk hljóti að laðast að ekta stöðum, sem minna á heimalandið. En ég gat með engu móti séð, hvað slíkir gestir sáu í matreiðslunni. Ég kann vel við indónesíska og japanska matreiðslu og ýmsar kín- verskar og indverskar matreiðslur, en ekki þessa. Hún líkist engri þeirra, ættuð einhvers staðar af skaganum, þar sem eru Víetnam og Laos, Kampútsea og Taíland, Malasía og Burma. Ég hef ekki kom- ið til þessara landa og er ekki nógu kunnugur fáséðum veitingahúsum þessara landa í heimsborgunum til að staðsetja matreiðsluna. Samkvæmt fræðibókum er mat- reiðslan í ofangreindum löndum öðruvísi en matreiðslan í veitinga- húsinu Asíu, mun fínlegri og tillits- samari við hráefni. Meðan annað kemur ekki í ljós verð ég að álykta, áð matreiðslan hér sé ekki etnísk, heldur einfaldlega vond. Kokkurinn sé á sérleið, sem stríði gegn einföld- um lögmálum í matreiðslu, hvar sem hún er í heiminum. íslenzkir súmókappar og afl- raunamenn voru staðarsómi í há- deginu, þar sem þeir gátu étið nægju sína úr hitakassaborði á 950 krónur. Ekki leizt mér á hnausþykkar sósur og sfzt á djúpsteiktar rækjur, sem voru belgdar af miklu hveiti og mikilli feiti. Hins vegar mátti fá fram- bærilegan freðfisk með grænmeti, hvort tveggja steikt í hóf- samri ostrusósu og kostaði bara 750 krónur. Sá ljósi punktur gaf eina stjörnu. Jónas Knstjánsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.