Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblaö DV Muffe Vulnuz er ekki eins og fólk er flest og þaö er ekki ofsögum sagt. Það er ekki á hverjum degi sem maður mætir manni með horn og tíu sentimetra göt í eyrunum. Muffe er eigandi Body Extremes í mið- bæ Kaupmannahafnar sem var opnuð fyrir tveimur árum. Þar geta viðskiptavinir látið kljúfa í sér tung- una, fengið grædd í sig djöflahorn úr sílikoni, gat á milli tánna, brennimerkingar og húðflúr svo fátt eitt sé nefnt. Muffe segir að meðalmennska sé böl og óttast ekki eftirsjá á efri árum. Fékk mér ekki horn og étal hólér og göt til aö þéknastöörnm Muffe byrjaði að skreyta ffkama sinn þegar hann var tíu ára og bjó á landsbyggðinni. „Þá fékk ég mér göt í eyrun. Skömmu síðar byrjaði ég að húðflúra sjálfan mig eftir að hafa séð það gert í kvikmyndinni sem gerð var eftir sjálfsævisögu Kristjönu F. - Dýragarðsbörnin. Þetta varð mikil tíska á þessum tíma. Það voru ailir í því að húðflúra sig og enn fleiri byrj- uðu að nota heróín. Myndin sem átti að fæla ungmenni frá heimi fíkni- efnanna hafði þveröfug áhrif." Eitt leiddi af öðru og í dag er Muffe með hringi og göt vítt og breitt um líkamann, húðflúr hér og þar og alls staðar, djöflahorn út úr enninu og þau allra stærstu göt í eyrunum sem blaðamaður hefur séð. „Þau eru afrakstur 15 ára strekkingarvinnu," segir Muffe og svarar því aðspurður að hann viti til þess að einn í heiminum sé með stærri göt, grípur í vasareikni, um- reiknar tommur yfir í sentimetra og kemst að þeirri niðurstöðu að sá sé meira að segja með helmingi stærri göt. Mannskepnan hefur skreytt sig frá örófi aida Fyrir skömmu birtist mynd- skreytt grein í dönsku dagblaði þar sem fylgst var með aðgerð á stofu Muffe. Atvinnulaus, 35 ára Kaup- mannahafnarbúi að nafni Allan lét græða í sig horn og kljúfa á sér tung- una nánast framan frá og aftur úr. Sá sagðist í viðtalinu vilja skera sig úr til þess að ögra fólki. f dag dygði ekkert minna þar sem tíundi hver maður væri kominn með gat í tunguna og húðflúr væru álíka sjaldgæf og fæð- ingarblettir. Sjálfur segist Muffe ekki vera svona útlítandi til þess að stuða fólk. „Ég geri þetta einfaldlega til þess að skreyta lfkama minn. Ég get ekki tjáð mig fyrir hönd annarra en þetta er mín skýring. Mannskepnan hefur alla tíð skreytt sig á einhvern hátt. Neanderthalsmenn gerðu það og aflar þjóðir heims gera það enn í dag. Fæstar þessara skreytinga eru sársaukalausar eða þægilegar. Tök- um sítt hár sem dæmi. Þú ert með fléttur og allskonar spennur og vesen í hárinu til þess að halda því frá andlitinu af því það er dauð- óþægilegt að haifa það hangandi niður í augu. Af hverju klippirðu það ekki af eins og ég? Þegar þú ferð út á lífið ferðu út í skóm með pinnahæl- um. Hvernig ffður þér í fótimum daginn eftir? Ekkert sérstaklega vel, er það?“ Sáttur í dag Muffe var óánægöur meö húö- flúrá vinstri framhandiegg sínum. Hann lét þess vegna„máia“ allt svæöiö svart og skar útjogo" stofunnar sinnar I handlegginn. Engum sama um útlit sitt Þú viltlíkja þessu saman? „Já, auðvitað. Þú átt örugglega ffka galiabuxur sem þú kemst varla í þegar þær eru nýkomnar úr þvotti. Af hverju kaupirðu þér ekki buxur sem eru númerinu stærri? Ég gæti haldið endalaust áfram. Ef þú fftur í kringum þig sérðu ekki marga sem er alveg sama um útlit sitt. Lang- flestir gera eitthvað til þess að líta út á ákveðinn hátt. Og það er nákvæm- lega sama hvað þú gerir og hvernig þú lítur út, það mun alltaf einhveij- um mislíka það. Ef ég væri í jakka- fötum með bindi get ég lofað þér því að það væru einhverjir sem kynnu ekki að meta það. Maður á ekki að velta sér upp úr því hvað öðrum finnst." Muffe þvertekur fyrir það að samanburðurinn á klæðaburði og varanlegum líkamsskreytingum sé langsóttur. „Af hverju? Þetta er mitt val, að líta svona út. Ég geri þetta ekki til að þóknast öðrum. Ég skipti ekki um skó á morgun til þess að fara í aðra sem eru meira í takt við nýjustu tískustraumana, eða fer í klippingu af því að mín klipping er úrelt. Þetta er visst „statement"." Ný gleraugu Komdu • Mátaðu • Upplifðu LINSAINJ Aðalstræti 9 • 551 5055 Minn líkami - mitt hulstur Muffe á kærustu sem er húðflúr- ari og starfar með honum á stofunni. Þau hafa unnið saman í ein 8-9 ár en stofuna hafa þau átt saman í nærri 2 ár eða jafnlengi og hann hefur verið með hornin. Hann veit þess vegna ekki almennilega hvernig gripimir ganga í kvenþjóðina. En hvað finnst ömmu hans og afa, eða foreldmm hans? „Ömmur mínar og afar em öll dáin. Foreldrar mínir - ja, ég skal ekki segja," segir Muffe og klórar sér í hausnum. „Hvað ættu þau svo sem að segja við þessu? Þetta er minn lrk- ami og mér er gert að búa í þessu hulstri í þann tíma sem ég er hér á jörð. Fólk spyr mig oft hvort ég óttist það ekki að koma til með að sjá eftir öllu saman. Af hverju ætti ég að gera það? Bara af því að meðaljóninn er svo óömggur með sjálfan sig að hann getur varla ákveðið hvort hann langi í bláa eða rauða bolla? Ég tala nú ekki um hvort jólatréð eigi að vera rauðgreni eða sitkagreni. Ef það er líf eftir þetta fff og mér verður gert að deyja í dag þarf ég ekki að sitja til eifffðamóns og sjá eftir þeim hlutum sem ég gerði ekki. Það finnst mér mun skelfilegri tilhugsun." Fjórir með eðlutungu og þrír með djöflahorn Þótt þjónustan sé í boði hafa aðeins fjórir Danir látið kljúfa á sér tunguna og þrír em með djöflahorn. DV veit ekki til þess að íslendingar hafi látið ffamkvæma á sér slíkar aðgerðir en þeir em velkomnir á stofuna til Muffe. „Það þarf bara að hringja og panta tíma, ekki flóknara en það. Það er hægt að koma sílikoni fyrir undir húðinni hvar sem er á ffk- amanum," segir Muffe og bætir því við að í raun hafi þetta fyrirbæri byrjað með brjóstastækkunum. „Við stálum bara hugmyndinni frá lækn- unum. Reyndar hafa Filippseyingar komið perlum fyrir undir húðinni til skreytingar í ein 500 ár." Gatanir em langtum vinsælli en stóm aðgerðirnar. „MTV stjómar því algjörlega hvað er í tísku á þeim vett- vangi. Eftir að Spice Girls slógu í gegn á sfnum tíma var hér röð út úr dyrum af stelpum sem vildu fá gat í tunguna. Nýjasta æðið er að fá sér gat undir neðri vörina eins og Christina Aguilera. Ætli það undar- legasta sem ég hef lent í sé ekki að gera gat milli tánna á einstaklingi sem var með nokkurs konar sund- fit." Muffe segir að í raun ffamkvæmi þeir allar aðgerðir sem ekki em beinfinis hættulegar. „Við gerum ekki gat f snípinn og það er reyndar algengur misskilningur að það sé hægt. Gatið er gert í húð sem Iiggur ofan við sm'pinn. Ef sjálfur snípur- inn er gataður á maður á hættu að það sama gerist og við umskurð, þ.e.a.s. að ffkamshlutinn rifiii af.“ Eyrað rifið af í heilu lagi Muffe viðurkennir að það geti verið þreytandi að skera sig jafnmik- ið úr fjöldanum eins og hann aug- ljóslega gerir. „Ég verð oft fyrir miklu áreiti og einu sinni var eyrað á mér rifið af nánast í heilu lagi. Ég sting í augun á þessu meðalmennskuliði og margir fá illt í rassgatið við það eitt að sjá mig á götu. En þetta er ekkert nýtt. Það má enginn vera öðruvísi. í barnaskóla var það sá feiti, eða þessi með gleraugun og rauða hárið sem lenti í öllu vesen- inu. H.C. Andersen skrifaði meira að segja heimsfrægt ævintýri um þetta sem heitir einfaldlega Litli, ljóti and- arunginn. En ég valdi mér þetta hlutskipti - svona er ég og svona vil ég vera," segir Muffe að lokum. Copenhagen Body Extremes er með heimasíðu á slóðinni bodyextrem- es.com. sigrunosk@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.