Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 42
42 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblað DV Einstök húsgögn með heillandi sögu. Úrval fallegrar og óvenjulegrar gjafavöru Pearl Jam er ein af fáum hljómsveitum Seattle-rokkbylgju tíunda áratugarins sem er enn starfandi og enn að gera góða hluti. Trausti Júlíusson rifjaði upp sögu hennar í tilefni af útgáfu fyrstu safnplötu sveitarinnar, Rearviewmirror (Greatest Hits 1991-2003). Pearl Jam er ein þeirra hljómsveita sem komu upp á yfirborðið í grunge- rokkbylgjunni eftir að Nirvana-platan Nevermind sló í gegn í lok árs 1991. Margar helstu hljómsveitir þessarar bylgju eru hættar stöfum, þ. á m. Nirvana, Soundgarden og Smashing Pumpkins, en Eddie Vedder og félagar í Pearl Jam láta liins vegar engan bii- bug á sér finna. Nýlega kom út þeirra fyrsta safnplata með bestu lögunum á ferlinum. Hún heitir Rearviewmirror og hefur fengið góðar viðtökur, enda er hvergi dauður punktur í þessum 33 lögum. Rifjum upp söguna. Stofnuð á rústum Mother Love Bone Pearl Jam var stofnuð í Seattle á rústum hljómsveitarinnar Mother Love Bone. Eftir að söngvari hennar, Andrew Wood, dó úr of stórum skammti af heróíni 19. mars 1990 ákváðu gítarleikarinn Steve Gossard og bassaleikarinn Jeff Ament að stofna nýja hljómsveit. Þeir fengu gít- arleikarann Mike McCready til liðs við sig og gerðu demó-upptökur ásamt trommuleikaranum úr Soundgarden, Matt Cameron. Upptökurnar komust í hendur á 25 ára strák ffá San Diego í Kalifomíu, Eddie Vedder. Eddie söng inn á þær og var í framhaldi af því boðið að ger- ast meðlimur í sveitinni sem var á þessum tíma kölluð Mookie Baylock eftri leikmanni í NBA-deildinni. Dave Kmsen var fenginn á trommumar og þannig skipuð byrjaði hljómsveitin að koma fram. í ársbyrjun 1991 spiiaði hún m.a. á 12 tónleikum með Alice In Chains. Hljómsveitin fór í hljóðver til þess að taka upp sína fyrstu plötu í mars og á meðan á þeim upptökum stóð var nafninu breytt í Pearl Jam. Það em til nokkrar tilgátur um nafnið. Samkvæmt einni þeirra heitir hljómsveitin eftir heimalagaðri sultu sem langamma Eddies, Pearl, var vön að gera. Samkvæmt annarri er þetta slanguryrði yfir ofskynjunarlyf. Pearl Jam gerði samning við fyrirtækið Epic og gaf út sína fyrstu plötu, Ten, í ágúst 1991. Hún fór þó ekki að seljast neitt að ráði fyrr en í ársbyrjun 1992 eftir að Nevermind með Nirvana hafði opnað Billborad-listann fyrir grunge-rokk- inu. í mál við Ticketmaster Þegar Ten kom út var Dave Kmsen trommuleikari hættur. í hans stað kom Dave Abbruzzese. Hann átti eftir að vera í sveitinni fram á árið 1994 þegar hann var rekinn og Jack Irons kom í staðinn. Ten náði mildum vin- sældum og lögin Alive, Even Flow og Jeremy fengu mikla spilun á MTV. Meðlimir Pearl Jam komu fram í kvik- mynd Cameron Crowe, Singles, sem sló rækilega í gegn. Hljómsveitin var fljótlega sökuð um að vera ofurseld markaðsöflun- um, m.a. af Kurt Cobain sem hélt því margoft ffam í viðtölum. Þær ásakan- ir kunna að hafa átt þátt í því að þegar önnur platan, Vs., kom út árið 1993 þvertók hljómsveitin fyrir að gera myndbönd við lög af henni. Það kom samt ekki í veg fyrir mikla sölu. Tvær fyrstu Pearl Jam-plötumar seldust í yfir 10 milljón eintökum. Pearl Jam hefur alltaf gert það sem henni sýnist. Þegar sveitin fór á tón- leikaferðalag árið 1994 ákvað hún að sleppa stóru íþróttaleikvöngunum, en spila þess í stað á minni stöðum. Hún aflýsti samt sumartónleikaferðinni þar sem fyrirtækið Ticketmaster sem sá um miðasöluna hvatti sölustaði sína til að selja miðana á hærra verði en hljómsveitin gat sætt sig við. Eftir- spurnin var mikil og staðimir litlir. Pearl Jam fór í mál við Ticketmaster út af þessu. Þau málaferli stóðu ffam á árið 1995 og enduðu með því að Pearl Jam Það er hægt að teysta á ákveðin gæði og heiðarleika hjá PearlJam þó að hún sé ekki lengur sú rokksveit sem selur mest af piötum I Bandarikjunum. G A L L E R í % TÚ TÚ SÍÐUMULA 34 (Á H□ RNI SÍÐUMÚLA □ G FELLSMÚLA) SÍmi 588 7D 22 Opiðfrá 12:00-18:00 virka daga og 13:00 -17:00 laugardaga. rýnendum. Næsta plata, Yield, sem kom út í febrúar 1998 var rokkaðri, en náði samt ekki að seljast neitt í lfkingu við fyrstu plötumar. Ein af ástæðun- um er sú að vegna málaferlanna við Ticketmaster hefur það reynst hljóm- sveitinni erfitt að skipuleggja stór tónleikaferðalög. Stórfyrirtæki em sein til að fyrirgefa. Síðustu ár hefur Pearl Jam haldið áfram að þróa sína tónlist á nýjar slóð- ir og þó að hljómsveitin sé ekki lengur sú roklcsveit sem selur mest af plötum í Bandaríkjunum þá má treysta á ákveðin gæði og heiðarleika hjá henni. Þetta er hljómsveit sem hefur elst vel, ólíkt svo mörgum öðmm rokkhljómsveitum frá tíunda áratugn- um. Síðasta stúdíóplatan, Rior Act, sem kom út fyrir tveimur ámm var þeirra rokkaðasta í nokkum tíma. Hún fékk ftna dóma. Árið 2000 varð Pearl Jam fyrir miklu áfalli þegar m'u manns tróðust undir á tónleikum sveitarinnar á Hróarskeldu. Upphaf- lega ásakaði danska lögreglan hljóm- sveitina um að bera a.m.k. að liluta til ábyrgð á atvikinu, en þegar rannsókn lauk var fallið frá þeim ásökunum. Barist gegn Bush Meðlimir Pearl Jam hafa verið duglegir við að mótmæla innrás Bandaríkjamanna í írak og þeir hafa barist ötullega gegn stjórn Bush for- seta. Á tónleikum í Denver í fyrra stjaksetti Eddie Vedder mynd af Bush og hélt ræðu um mikilvægi tjáningarfrelsinsins. Nokkrir tugir áhorfenda gengu út og í framhald- inu var sveitin gagnrýnd harðlega af fylgismönnum forsetans. Meðlimir Pearl Jam voru líka á meðal þeirra tónlistarmanna sem tóku þátt í Vote For Change-tónleikaferðinni fyrir forsetakosningarnar í haust. Stone Gossard er í forsvari fyrir hluta af þeim tónlistarmönnum sem tóku þátt í Vote For Change og sem vilja halda áfram að styrkja góð mélefni. Hugmyndin er að safna fé til þess að koma á fót umhverfisvænum orku- verum í þeim fylkjum sem Vote For Change-tónleikaferðin náði til. 75 plötur á þremur árum Það þykir ágætt hjá rokkhljómsveitum i dag að koma út plotu á tveggja ára fresti. Það eru ekki nema þær allra duglegustu sem gefa út á hverju ári. Pearl Jam verður að teljast yfir meðal lagi þar sem sveitin er buin að gefa út nalægt 80 tvofaldar plöt- ur rneð nyjum upptökum siðustu 3 ár. Ástæðan fyrir þessari miklu útgáfu er samt ekki sú að Eddie og félagar sitji sveittir allan sólarhringinn og semji ný lög i akkorði, heldur ákvað sveitin aðgefa sjálf út alla sina helstu tónleika í staðinn fyrir aðiáta sjóræningjafyrirtæki sitja ein að þeirri útgáfu. Hljómsveitin hefur aldrei sett sig upp á mótiþviað áhorfendur taki upp tónleikana þeirra en til þess að tryggja að þeir aðdáendur sem eru á annað borð að kaupa upptökur af tónleikum fái þær ágóðu verði og með viðunandi hljómgæð- um ákváð hún að prófa þetta árið 2000. Upphaflega var stefnan sett á 28 tvöfaldar tónleikaplötur. Þær mældust það vel fyrir að þessar tónleikaplötur eru nú farnar að nálgast 80 og fleiri eru áformaðar. Óvenjulegar jólagjafir frá Persíu og Afríku frá kr. 450. Stofuborð í öllum stærðum frá kr. 28.000. kom fyrst fram með honum á fjáröfl- unartónleilcum í San Francisco 1. nóv- ember 1992. Árið 1995 fóru Pearl Jam og Neil Young saman í hljóðver og tóku upp plötuna Mirrorball. Hún kom út þá um sumarið, en vegna samningsmála var hún eingöngu skrifuð á Neil Young, en meðlima Pearl Jam eingöngu getið sem hljóð- færaleikara. Mirrorball var umdeild - aðdáendur hljómsveitarinnar voru ekki allir lirifnir. Það sama var uppi á teningnum með fjórðu eiginlegu Pearl Jam-plöt- una, No Code, sem kom út árið 1996. Á henni var hljómsveitin að gera til- raunir með austurlenska tónlist. Hún seldist mun minna en fyrri plötur þó að hún fengi góða dóma hjá gagn- ■ fi miðasölufyrirtækinu var dæmdur sigur. Pearl Jam tók upp sína þriðju plötu, Vitalogy, sumarið 1994. Hún kom út í lok þess árs og seldist í millj- ónavís eins og fyrstu tvær plötumar. Misjafnt gengi Meðlimir Pearl Jam eru miklir aðdáendur Neil Young. Hljómsveitin . t——rr - ■s?:>■ \í| Jarrahúsgögnin frá Suður-Afríku eru safngripir. Borð í öllum stærðum, stólar og margt fleira. Sérsmíði og pantanir. Hljóðversplötur Pearl Jam O Ten (1991) O Vs. (1993) O Vitalogy (1994) O No Code (1996) o Yield (1998) O Binaural (2000) O Riot Act (2002) Og l(ka: o Mirrorball - ásamt Neil Young (1995) o Lost Dogs: Rarities & B-Sides (2003) <D Rearviewmirror - Greatest Hits 1991-2003 (2004)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.