Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblað DV Hann verður áttræður á næsta ári, er í jólafríi á íslandi en dvelur að öllu jöfnu hinum megin á hnettinum hjá sambýlis- konu sinni í Ástralíu. Eyjólfur Jónsson, fyrrverandi lögreglu- maður og sundkappi, hefur látið skrá sögu sína og hlýtur hún að teljast ævintýraleg saga drengs af Grímstaðaholtinu. Eyjólfur Jónsson er hávaxinn maður og ber árin með afbrigðum vel. Hann dvelur hjá dóttur sinni og börnum hennar í Reykjavík um jól og áramót en heldur síðan heim til Ástralíu í hásumarið og 40°C hitann í janúar. Jón Birgir Pétursson skráði sögu Eyjólfs sem heitir einfaidlega Eyjólfur sundkappi, ævintýraleg saga drengs af Grímstaðaholtinu. „Ég velti aldrei fyrir mér að skrá- setja ævisögu mína,“ segir Eyjólfur. „Fannst ég ekki hafa lifað það merki- legu lífi en tengdasonur minn heit- inn var alltaf að hvetja mig til þessa. Og svo tóku forlögin í taumana." Til Ástralíu með semingi Eyjólfur hallar sér aftur og rifjar upp liðna daga. „Þegar breski herinn kom hingað í maí 1940 kynntist ég breskum sjóliða og lofskeytamanni, Joe Walsh að nafni. Hann vann í gömlu loftskeytastöðinni á Melun- um, þar sem nú heitir Suðurgata. Hann var afburða málamaður og lærði íslensku á ótrúlega skömmum tíma. Við urðum góðir vinir og sú vinátta hélst í rúm sextíu ár eða Hjónaband okkar varði i rúmlega 40 ár og var einstaklega gæfuríkt og innilegt. Joe hvatti mig mjög til að koma út til sín en ég var míður mín af sorg og söknuði og taldi mig því ekki geta ráðist í slíkt ferðalag. meðan hann lifði. Eftir stríð flutti hann til Ástralíu og við og fjölskyld- ur okkar vorum alltaf í góðu sam- bandi. Frá 1981 kom Joe liingað svo að segja annaðhvort ár og dvaldi í þrjá mánuði hjá okkur hjónunum. Hann var einmitt að undirbúa ferð hingað þegar konan mín, Katrín Dagmar Einarsdóttir, lést úr krabba- meini árið 1996. Hjónaband okkar varði í rúmlega 40 ár og var einstaklega gæfuríkt og innilegt. Joe hvatti mig mjög til að koma út til sín en ég var miður mín af sorg og söknuði og taldi mig því ekki geta ráðist í slíkt ferðalag. Dótt- ir mín og tengdasonur sögðu að ég yrði að drífa mig, hótuðu til dæmis að flytja mig í handjárnum út á flug- völl, enda bæði lögreglumenn. Þá ákvað ég að drífa mig og fór með semingi." Vegirnir órannsakanlegu Eftir tveggja sólarhringa ferðalag fögnuðu þeir Joe Walsh endurfund- unum í Adelaide í Ástralíu sunnan- verðri. „Ég vildi vera í tíðu sambandi við fjölskyldu mína hér heima og ei- líf símtöl voru nokkuð dýr. Ná- grannakona Joes, Mary Pilgrim, hafði faxtæki á sínu heimili vegna atvinnurekstrar og bauð mér að faxa heim til dóttur minnar og ég þáði það. Hún hafði misst mann sinn um sama leyti og ég missti konuna mína og við fundum huggun í samvistun- um og urðum góðir vinir. Konan mín heitin og Mary eru merkilega andlega skyldar en ólíkar í útliti, vináttan jókst og eftir að ég kom hingað heim komu hún og bróðir hennar hingað í heimsókn. Og nú er ég með lögheimili sitt hvor- um megin á hnettinum, hér hjá dóttur minni í heimsóknum en svo hjá Mary í Ástralíu. Þar hef ég nóg tækifæri til sjósunds, hef meira að segja reynt við brimbrettin en geng- ur illa að ná tökum á þeirri list, get ekki haldið mér uppi og dett alltaf í hafið,“ segir Eyjólftir hlæjandi. Sjósund fyrir tilviljun Eyjólfur var orðlagður fyrir sjó- sund sín, hann synti Skerjafjörðinn til Bessastaða, upp á Ákranes, Drangeyjarsund, Viðeyjarsund og er þá fátt eitt upp talið. „Allt kom þetta til af tómri tilviljun," útskýrir Eyjólf- ur. „Ég stofnaði Þrótt með vini mín- um, Halldóri Sigurðssyni fisksala, í ágúst 1949. Ég vildi endilega að unga fólkið æfði fleira en handbolta og knattspyrnu, frjálsar íþróttir til dæmis. Þetta gekk ágætlega framan af en eftir smá tíma voru strákarnir orðnir leiðir. Ég gaf þeim þá peninga í bíó gegn því að þeir æfðu og það gekk um hríð. Þá kvörtuðu þeir undan að- stöðuleysi, í Þróttarbragganum voru engar sturtur. Þá hvatti ég þá til að fara í sjóinn að æfingum loknum en þeir sögðust fara ef ég kæmi með. Ég sagðist gera það ef það væri algjört skilyrði, því ég vildi endilega að þeir tækju þátt í drengjahlaupi Ármanns sem var ffamundan. Þá gáfust þeir upp og sögðust ekki hafa áhuga en ég minnti þá á að þeir hefðu gert mig næstum gjald- þrota með bíómiðakaupum og þeg- ið þannig mútur. Þeir væru kolólög- legir atvinnumenn. En ég fór ósynd- ur í sjóinn og fann hvað það gerði mér gott." Lán í óláni Eyjólfur hafði stundað hrogn- kelsaveiðar með föður sínum og unnið með Halldóri fisksala en með komu hersins jókst atvinnan í bæn- um og hann fékk vinnu hjá bænum og taldi sig kominn á gott ról en ör- laganornirnar höfðu annað í huga. „Við vorum að moka sandi úr gryfjum með skóflum en þessir bílar voru margir snúnir í gang með sveif- um. Ég þurfti að snúa einum í gang, hann var gamall og það var hak þar sem sveifinni var skotið inn svo hún festist þar. Ég tók hins vegar á að öllu afli og handleggsbrotnaði. Þá fór ég á fund Skúla Þórðarsonar, magister í Ingimarsskólanum, og vildi komast í skólann þar sem ég gæti ekki unnið þann veturinn. Hann tók vel í það og Ingimar líka og ég lauk gagnfræðaprófi. Handleggs- brotið var því sannarlega lán í óláni en svona er lífið fullt af tilviljunum.“ Kynntist eiturlyfjaneyslu og heimilisófriði í bæjarvinnunni voru gerðar skipulagsbreytingar sem Eyjólfur kunni ekki að meta. „Ég var flokk- stjóri í hreinsunardeild eins hverfis og það þótti aldeilis græn grein fyrir lífið. Eftir nokkur ár vildi drengur nokkur með góð sambönd verða yf- irmaður í hreinsunardeild og ég mátti mín einskis. Ég sagði því upp en var boðið sumarstarf hjá lögreglunni, þar var ég í 36 ár. Lögreglumenn upplifa ýmislegt í sínum störfum, þurfa að þola margt en með því að líta já- kvæðum augum á starf sitt og um- hverfi, vera yfirvegaðir og ákveðinn er hægt að þola allt. Jafnvel óhæfu- verk, heimilisófrið og ofbeldi, drykkjuskap, eiturlyfjaneyslu og vanrækslu barna af þeim sökum." Lífið á Grímstaðaholtinu Þegar Eyjólfur fæddist á Grím- staðaholtinu tileyrði það Seltjarnar- neshreppi. „Þar var dásamlegt að al- ast upp, þar var einstaklega litrfkt og sérstakt mannlíf. Fálkagatan var að- algata þessarar húsaþyrpingar og svo opin svæði, bændabýli og sjór- inn en 16 bátar gerðu þaðan út. Melarnar þar sem Háskólabíó er nú og austan núverandi Suðurgötu var Vatnsmýrin í öllu sínu veldi, full lslenskur sundkappi á ástralskri strönd Þessi vaski maður verður áttræður á næsta ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.