Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 53

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 53
DV Helgarblaö LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2004 53 Margar persónur úr Eyjabókum Einars Kárasonar eiga sér fyrirmyndir í ættingjum mínum. af fuglum og ævintýrum. Allt þetta svæði gjörbreyttist með komu hers- ins, frelsið sem við höfðum notið hvarf eins og dögg fyrir sólu. Bret- amir höfðu að vísu ekki girðingar um sína kampa en Amerflcanarnir girtu sig af. Vígi voru svo reist við sjóinn. Atvinnuleysið hvarf vissulega og fólk hópaðist á mölina. Eftir stríðið fylltust svo braggamir af aðkomu- fólki og þeim sem ekki gátu byggt meðan byggingarefni var allt skammtað. Margar persónurnar úr Eyjabókum Einars Kárasonar eiga sér fyrirmyndir í ættingjum mínum á Grímsstaðaholtinu." Nauthólsbrennan Karóhna spákona Eyjabókanna á sér fyrirmynd (Jósefínu Eyjólfsdótt- ur frá Nauthól. „Hún var föðursystir mín,“ heldur Eyjólfur áfram. „Árið 1902 bjuggu afí minn og amma með börnum sínum á Nauthól og þar átti sér stað mikil harmsaga. Tíðarand- inn var annar þá og þegar talið var að þar væri komin upp taugaveiki var bærinn brenndur. Gömul hjón höfðu látist þar með stuttu miilibili og ungur frændi ömmu, sem hafði fylgt þeim til grafar, dó síðan. Þá var hörku norðanbál og pilturinn fékk lungnabólgu og dó. Þá kom upp þessi saga um að taugaveiki væri í bænum, þá var fólk álíka hrætt við taugaveiki og það er við alnæmi í dag. Afi minn og amma voru bláfá- tækt fólk, áttu ekki annað en Naut- hól og bát og í þá daga fékk fólk ekki bætur fyrir að þurfa að rýma hús sín. Auðvitað voru þau treg til þess en í bók minni vitna ég um þetta allt í ævisögu Sigurðar Briem póstmeist- ara. Þar segist hann hafa verið aðal- hvatamaðurinn að þessari brennu, segir jafnframt að Eyjólfur hafi ekki viljað yfirgefa staðinn en hafi skriðið út úr brunanum með hyski sitt eins og hann orðar það.“ Taugaveiki eða hafnarstæði? Eyjólfur segir Einar Benedikts- son, skáld og athafnamann, hafa vakið athygli manna á hugsanlegri höfn í Nauthólsvík. „Enda styttra til útíanda úr Skerjafirði en Kollafirði. Bæjaryfirvöld sáu ef til vill framtíð- arhöfii Reykjavíkur fyrir sér þarna en bæjarsjóður átti ekkert fé og fyrir var aðeins einn bær, Nauthóll. Afi minn var mikill maður vexti og heljarmenni að burðum en mein- laus. Þegar hreppsnefnd Seltjarnar- ness, bæjarstjóm Reykjavíkur og landlæknir höfðu samþykkt brenn- una, höfðu menn uppi njósnir því afi minn var mikill vextí og heljar- maður að burðum. En ákaflega meinlaus og ljúfur. Þeir þorðu þó ekki að koma nálægt bænum fyrr en hann hafði róið til fiskjar. Þá komu brennumenn ríðandi með kyndla sína og lögðu eld að bænum. Jósefína var þá 10 ára, hún slapp frá þeim og faldi sig í klettaskoru í öskjuhlíðinni þar sem Perlan stend- ur í dag. Pabbi var 12 ára og komst á bak hesti sínum, reið í hendingskasti að Leynimýri með brennumenn á eftir sér. Þeir mddust þar inn en Gísh bóndi sagði þá „Hingað og ekki lengra drengir. Þið takið ekki Jón af mér." Þá fóm þeir í burtu en fjöl- skyldunni var tvístrað en afi kom að bænum brenndum. Hann endur- byggði Skildinganeskot og kom fjöl- skyldunni saman á ný en hokxið gekk ilia og bærinn var tekinn upp í skuldir og fjölskyldan varð að flytja." Saknar afkomendanna Eyjólfur hefur þegar bmgðið sér á kaffihúsið sem kennt er við bæ afa hans úti við Nauthólsvík. „Þar fer ljómandi vel um mig en vissulega er þetta ægileg saga. Einari Kárasyni þykir þetta efni í stórmynd hef ég heyrt. Þegar ég er búinn að fagna jólum og áramótum hér held ég í fjörutíu stiga hitann um hásumar suður í Ástralíu. Við Mary höfum ferðast heilmikið um Ástralíu sjálfa, Tasmaníu og Nýja Sjáland. Ég hef töluvert stundað garðyrkju þar syðra því þar grær allt sem gróið getur al- veg látlaust. Maður þarf að taka garðana þrisvar í viku. Sambýhs- kona mín á lflra lúxusíbúð á Gull- ströndinni í Queensland og þar höf- um við verið töluvert. Auðvitað sakna ég afkomend- anna en ég á góða dóttur og barna- börn og þau em dugleg að heim- sækja okkur. Ég skrepp líka oft hing- að heim í heimsóknir, nú á dögum er ekki erfitt að vera í stöðugu sam- bandi heimsendanna á milli," segir Eyjólfur sundkappi Jónsson, eld- hress og tæplega áttræður. rgj@dv.is Spennan getur lagt heimilið í rúst! RAFIÐNAÐARSAMBAND tSLANDS Láttu fagmenn skoða hjá þér raflögnina fyrir jólin. Gleðilega hátíð!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.