Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 57

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 57
I DV Helgarblað LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 57 ” en Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður hjólar hér í tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna sem hann telur skrípaleik og höfundum til lítillar sæmdar að vera tilnefndir þegar fyrirliggjandi er, augljóslega, að þar eru fráleitt bestu bók- menntirnar. Aldrei áður hefur verið lagst eins lágt með kvótahugsun og tjónkun við markaðinn þegar íslensku bókmenntaverð- launin eru annars vegar. setja á langa tölu um fræðiritin í þetta sinn, ég spyr einfaldlega: Hvar var ævisaga Héðins Valdi- marssonar eftir Matthías Viðar Sæ- mundsson? Hvernig stendur á því að sú bók var ekki tilnefnd? Er hugsanlegt að íslendingar séu svo vel staddir í fræðiritunum að á þessu ári hafi komið út heilar fimm bækur í flokki fræðirita, sem taka bók Matthíasar Viðars fram að gæð- um? Ágætu hlustendur, ég tel það vafasamt, nei annars, ég tel það ekki vafasamt, ég tel það raunar al- gerlega út í hött, og ég mun segja ykkur hvers vegna, hér á þessum vettvangi, áður en langt um líður. „Lamaðar kennslukonur" ná völdum En þá að flokki fagurbókmennta - það er skemmst frá því að segja áð við íslensku bókmenntaverðlaunin hefur lengi loðað íhaldssamur smekkur, maður hefur alltaf á til- finningunni að við stjórnvölin séu náungar sem vilja ekkert rugl, vilja ekki að hlutirnir fari um of á flot, vilja hafa bókmenntirnar í skorð- um, ekki hleypa neinu upp. Val dómnefndarinnar í gær var því miður þessu marki brennt: þar réði íhaldssamur smekkur, og eins og svo oft áður þá voru það ekki bæk- urnar á téðum tilnefningarlista sem vöktu athygli manns, heldur miklu fremur, þær bækur sem ekki voru á listanum. Undarlegt er að ganga framhjá Braga Ólafssyni, en skáldsaga hans Samkvæmisleikir, er í senn ágeng og vel skrifuð, hún kemur lesanda í opna skjöldu, og leynir á sér, Bragi er einfaldlega einn fremsti skáldsagnahöfundur landsins um þessar mundir. Það er sömuleiðis undarlegt að ganga framhjá Steinari Braga, en skáld- saga hans Sólskinsfólkið ber vitni um að þar fer fremsti höfundur ungu kynslóðarinnar, kannski er Steinar of beittur, of mikið skáld, og ekki líklegur til að rúlla upp jóla- markaðnum, jafnvel þótt Sólskins- fólkið fengi á sig miðann góða, sem gefur til kynna að bókin hafi verið tilnefnd til íslensku bókmennta- verðlaunann. Og það er undarlegt að ganga framhjá Guðbergi Bergs- syni og skáldsögu hans um Löm- uðu kennslukonurnar. En kannski er svarið við þessu öllu saman að finna nákvæmlega í þeirri bók - skáldsögu sem fjallar um fjarlægð íslands frá öðrum löndum, sögu sem fjallar um væntingar lesenda, og það þegar höfundar villast af leið við rúmstokkinn hjá lömuðum og klúrum kennslukonum kannski myndu einhverjir segja að lömuðu kennslukonurnar hefðu náð öllum völdum í íslensku bók- menntalífi. Ég nefni þessar þrjár bækur, en tek fram að ég hef ekki lesið jafn- margar bækur og dómnefndin hef- ur lesið, nefndin sem skipuð var þeim Sölva Sveinssyni, Jóhanni Sig- urðarsyni, og Margrét Eggertsdótt- ir. Samkvæmisleikur fyrir markaðinn Ég tek fram að allir höfundarnir sem tilnefndir voru til hinna ís- lensku bókmenntaverðlauna eru góðra gjalda verðir, Auður Jóns- dóttir einhver efnilegasti höfundur landsins og ríflega það, um Einar Val dómnefndarínnar í gær var því miður þessu marki brennt: þar réði íhaldssamur smekkur, og eins og svo oft áður þá voru það ekki bækurnar á téðum tilnefningar- lista sem vöktu at- hygli manns, heldur miklu fremur, þær bækur sem ekki voru á listanum. Má þarf maður af minni kynslóð ekki að hafa mörg orð, söguhetja hans, Jóhann Pétursson stendur manni miklu nær en flestar aðrar sögupersónur sem skapaðar hafa verið á íslandi, Guðrún Helgadóttir var um það bil fyrsti höfundurinn sem maður las, Sigfús Bjartmarsson magnaður höfundur en vanmetinn, og Arnaldi Indriðasyni hefur auð- vitað tekist það sem engum hefur teldst á íslandi - að skrifa góðar Hinn tilnefndi hópur höfunda Með fullri virðingu en þarna vantar einfaldlega bestu höfunda þessa árs til að fögnuðurinn geti verið fölskvalaus. glæpasögur, aftur og aftur. Sumsé, allt góðir höfundar og ekki þeim að kenna að þeir skuli lenda saman á þessum lista, lista sem er EKKI rétt- ur, vegna þess að á hann vantaði höfunda sem voru sprúðlandi í ár, listinn var beinlínis RANGUR og ís- lenskt bókmenntasamfélag hefur einfaldlega ekki efni á því að ganga framhjá þeim höfundum sem hér hafa verið nefndir. Kannski féll nefndin í þann pytt að halda að ís- lensku bókmenntaverðlaunin væru verðlaun fyrir einhvers konar „lifetime achievement”, áður unn- in afrek á bókmenntasviðinu, en svo er auðvitað ekki. Og kannski féll nefndin í pytt jafnaðarmennskunn- ar sem er bein leið til glötunar þeg- ar bókmenntir eru annars vegar, og beygði sig um leið undir vilja hins lamaða lesanda, nefndin valdi eina ljóðabók, einn reyfari og eina barnabók, líkt og tif að gera öllum til geðs, líkt og um væri að ræða málamiðlun frá helvíti. En ágætu hlustendur, ég er auð- vitað öðrum þræði að gera bókaút- gefendum greiða, fslensku bók- menntaverðlaunin hljóta að þrífast á andófi og umræðu. Þetta andóf hefði gjarnan mátt koma fram í sjónvarpssal I gærkvöldi, því ljóst mátti vera af umræðunni í Kastljósi að gagnrýnendurnir voru ekki sáttir við listann, að minnsta kosti ekki Jón Yngvi Jóhannsson. En íslensku bókmenntaverðlaunin eru og verða samkvæmisleikur handa markaðn- um, hannaður af lömuðum kennslukonum - maður vonaði að þetta snerist um bókmenntir, litter- atúr, en það er líklega rétt sem Matthías Johannessen, gamli rit- stjórinn, segir í sinni nýjustu bók, að bókmenntir eru ekki I tísku. Það er eitthvað annað í tísku, eitthvað ALLT annað! Og það kemur aldrei betur í ljós en þegar þrenningin djöfullega - bókmenntir, markaður og fjölmiðl- ar - spandéra „enn einum degi á the City”. Millifyrirsagnir eru blaðsins en pistill þessi var fyrst fluttur í útvarpsþættinum Víðsjá á Rás J síðastliðinn mánudag.) Þegar íslensku ostarnir eru bornirfram, einir sér, á ostabakka eða til að kóróna matargerðina — þá er hátíð! ■ Gullostur -A R Bragðmikill W&&\\ hvítmygluostur, 1L glœsilegur AJhtíl <í ueisluborðið. ” Dala-Yrja Sígildur veisluostur sem fer vel á ostabakka Höfðingi BragðmUdur hvítmygluostur sem hefur slegið ígegn. Gráðaostur Tilvalinn til matargerðar. Góður einn og sér. ^ ítalskur ostur með sólþurrkuðutn tómötum Steyptur lúxusostur tilvalinn á ostabakkann. Camembert Einn og sér, á ostabakkann og í matargerð. Stóri-Dímon Ómissandi þcgar vanda á til veislunnar. Lúxus-Yrja Bragðmild oggóð eins og hún kemurfyrir eða í matargerð. Dala-Brie A ostabakkann og með kexi og ávöxtum. fcpJ Ostakaka með liindhcrjum 7» Kœtir bragðlaukana r svo um munar. Blár kastali Með ferskum ávöxtum eða einn og sér. Rjómaostur A kexið, brauðið, í sósur og ídýfur Hrókur w Nýr Ijúffengur \ hvítmygluostur eð gati {miðjunni íslenskir ostar - hreinasta afbragð Enginjól án þeinra! I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.