Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblað DV Auður Jónsdóttir rithöfundur er tilnefnd til ís- lensku bókmenntaverölaunanna í þriðja sinn, nú fyrir skáldsögu sína Fóikið í kjallaranum Þar ger ir söguhetjan meðal annars upp við frjálslynda hippaforeldra og hafa menn lesið nokkuð frjálslega úr skálduðum persónunum. Auðvitað mælir blaðamaður DV sér mót við Auði á kaffihúsi í kjallara í miðbæ Reykjavíkur og byrjar á að skella á hana spurningunni um for- eldrana. „Þetta eru ekki foreldrar mínar, ekki ffekar en aðrir ættingjar eða vinafólk. Auðvitað nota ég smávegis krydd úr eigin reynslu- heimi í bókum mínum en ég geri AFSLATTU R AF OLLUM SKENKUM til JÓLA. þar sem stíllinn byrjar! Bæjarlind 4 - Sími: 544 5464 Opið: mánudaga til föstudaga Id. 10-18, laugardaga Id. 11-16. Opið alla sunnudaga til jóla frá kl. 13-16. hann aldrei að yrkisefni mínu, heldur skálda upp sögu, enda rithöfundur. Og það er kjarni máls- ins, skáldsagnahöfundurinn er ekki ævisagnaritari eða skrásetjari. Hann gerir hins vegar stundum ýmislegt úr eigin lífi að sínu yrkisefni, rétt eins og sólin verður mönnum yrkis- eftii en afraksturinn er allt annað en sólin sjálf. Ef fólk leggur annan skilning í skáldsögur þá er það óhæft til að lesa þær og ætti ff ekar að halda sig við Séð og heyrt." Rótlaus unglingur á flakki Auður viðurkennir að hafa þó stolið ýmsu úr umhverfinu. „Ég er að fjalla um fólk af þeirra kynslóð svo auðvitað notfæri ég mér smáatriði til þess að krydda söguna, eins og til dæmis timburhús í sveit. Héðan og þaðan, en útfærslan hefur farið gegnum mig og smáatriðin meira að segja skrumskæld. Þessi saga getur gerst í hvaða sveit sem er og sögusviðið er ekki mín sveit frekar en önnur. En þegar ég var að alast upp í Mosfellsdalnum var hann fullur af litríku og skemmtilegu fólki, mannlífið var bókstaflega iðandi og ég á ekkert nema góðar minningar þaðan. Þar var ekki borin mikil virð- ing fyrir kynslóðabilinu, allar kyn- slóðir voru alltaf saman og ffelsi barna mikið í yndislegri sveitasæl- unni samanborið við lífið í borginni. Ég átti svo ákaflega lífleg ung- lingsár sem ég hef mikið pælt í síðar. Hætti í tveimur menntaskólum, féll í báðum vegna slælegrar mætingar og fór að flakka um landið og vinna við uppvask og í fiski. Hápunktinum náði ég 24 ára, giftist mér eldri manni í einhverri unglingauppreisn og upp úr því byrjaði ég að skrifa fyrstu bókina mína." Sáluhjálpin í skrifunum Auður segist sjálfsagt alltaf hafa ætlað sér að verða rithöfundur þótt hún hafi verið mismeðvituð um það. „Ég byrjaði ung að skrifa, sjálfri mér til sáluhjálpar eiginlega á þessu flakki mínu. Maður tekur nefnilega til í kollinum þegar maður skrifar, jafnvel þótt maður sé ekki að skrifa beinlínis um sjálfan sig. Þegar ég var lítil fann ég töluvert fýrir afa, fólk sem maður kynntist vildi gjarnan heyra af honum og rnaður var nokk- uð meðvitaður um hann. Ég man að ég sníkti mér meira að segja sælgæti út á afa en á unglings- árunum fór maður náttúrlega í ákveðna uppreisn gegn þessu. Þegar ég byrjaði að skrifa gerði ég það al- gjörlega á mínum forsendum og átt- aði mig á að það hafði ekkert með hann að gera. Enda hafði nóg af æv- intýralegum hlutum átt sér stað í mínu lífi og mitt var að vinna úr þeirn." Til Kaupmannahafnar Maður Auðar, Þórarinn Böðvar Leifsson, er alinn upp í Kaupmanna- höfn. „Við erum bæði með mikið flækingsblóð í æðum og var farið að leiðast nokkuð hér, enda töluvert nýtt fyrir hann að vera svona lengi í einu á íslandi. Mig langaði mikið í burtu, ýmis leiðindamál tengd afa voru farin af stað og mér gekk illa að einbeita mér að skrifum. Komast í annað umhverfi, aðra pólitík, annað tungumál. Við förum aftur út núna milli jóla og nýárs og ég á ekki von á að flytja heim í bráð, nema eitthvað óvænt komi upp á. Mér finnst ég ákaflega lánsöm, við Tóti höfum verið saman upp á dag síðan við kynntumst og vinnum mikið saman, nú vinnum við að bók fyrir Námsgagnastofhun ætlaðri börnum með lestrar- erfiðleika, ég sé um textann og hann myndskreytir. Ég hlakka til að kom- ast á hjólið mitt í Höfti." rgj@dv.is yrir döjnuna pennandi jólagjafir fyrir dömurnar á öllum aldri. i Daman ívegi 32 Lau S: 551 77
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.