Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 66
66 LAUGARDAGUR 77. DESEMBER 2004
Sport DV
Ósigraðir frá stofnun félagsins, styrktir af tveimur erlendum leikmönnum, þjálfaðir af einum sigur-
^ælasta þjálfara íslenska körfuboltans og með gamlar stjörnur Ljónagryfjunnar í fararbroddi. Nýstofnað
2. deildarlið frá Njarðvíkum ætlar sér stóra hluti gegn Skallagrími í bikarnum um helgina.
Ljónin setla að bíta
frásér
16 liða úrslit bikarkeppni KKÍ og Lýsingar hefjast um helgina og
einn athyglisverðasti leikurinn hefði örugglega oftast fyrirfram
Verið talinn formsatriði fyrir úrvalsdeildarlið Skallagríms úr
Borgarnesi. En með tilkomu tveggja erlendra leikmanna og ein-
stakri sigurhefð og reynslu liðsmanna Ljónanna er aldrei að vita
nema að Ljónin í Ljónagryfjunni muni bíta vel frá sér á sunnu-
daginn.
Ljónin hafa kallað í tvo banda-
ríska körfuboltamenn sér til liðsinn-
is fyrir leikinn gegn Skallagrími á
sunnudaginn, þá Anthony Q. Jones
og Steve Smith. Jones var með rétt
tæplega þrefalda tvennu að meðal-
tali með Grindavík í úrslitakeppn-
inni í fyrra, skoraði þá 18,9 stig, tók
9,1 frákast og gaf 9,5 stoðsendingar
að meðaltali í átta leikjum. Smith er
hinsvegar nýútskrifaður úr Iowa-há-
•tkólanum, 197 sentimetra framherji
sem hjáipar Ljónunum inni í teig.
Smith var með 10,6 stig og 5,5 frá-
köst á 27,6 mínútum að meðaltali á
sínu lokaári í fyrra. Munu þeir félag-
ar mæta bara í þennan bikarleik
enda lítil þörf fyrir þá á fslandsmót-
inu þar sem Ljónin virðast vera á
hraðferð upp í 1. deildina. „Velunn-
arar“ hins nýja félags leggja hins
vegar sitt á vogarskálarnar til þess að
Ljónin geti mætt einu af betri liðum
landsins á jafnréttisgrundvelli.
Ósigrað í 2. deildinni
' Ljónin úr Njarðvík hafa unnið
alla sjö leiki sína i 2. deildinni það
sem af er og liðið vann sannfærandi
31 stigs sigur á Dalvík, 91-60, í 32
liða úrslitum bikarsins. Þar skoraði
Ragnar Ragnarsson mest, 24 stig, en
bróðir hans og þjálfari Njarðvíkinga
á árunum 2000-2004, Friðrik Ragn-
arsson, er að spila vel í leikstjórn-
endahlutverkinu, Jóhannes Krist-
björnsson hefur litlu gleymt og þá
eru í liðinu menn eins og Sævar
Garðarsson og Örvar Þór kristjáns-
son sem hafa verið tengdir meist-
araflokksliði Njarðvíkur á
'tmdnaförunum árum.
Jón Júlíus Árnason, þjálfari
kvennaliðs Njarðvíkur, hefur
verið spilandi þjálfari liðsins í
vetur en í bikarleiknum mun
hann fá góða aðstoð frá liliðar-
línunni því einn kunnasti þjálf-
ari landsins ætla að leggja
sitt af mörkum til
ýramgöngu
"Ljónanna.
Friðrik
Ingi Rún-
arsson, ,
fyrrum
lands-
liðsþjálfari og þjálfari Njarðvíkur og
Grindavíkur, er nefnilega búinn að
taka fram þjálfaraspjaldið á nýjan
leik og stjórnar Ljónunum gegn fyrr-
um félaga sínum og þjálfara í Njarð-
víkurliðinu, Vali Ingimundarsyni.
Friðrik Ingi lék undir stjórn Vals
tvö tímabil á árunum 1986 til 1988
en síðan hafa þeir félagar verið tveir
af þrautseigustu þjálfurum landsins.
Valur myndi reyndar sóma sér vel í
liði Ljónanna við hlið margra af sín-
um góðu félögum. Hann kannski
skiptir í Ljónin fyrir úrslitakeppnina
í vor, ekki síst þar sem ísak Tómas-
son hefur ákveðið að taka fram
skóna og eins og körfuboltaáhuga-
menn muna vel þá naut Valur góðs
af góðum sendingum ísaks sem
stjórnaði Njarðvíkursókninni á sig-
ursælum árum liðsins ffá 1983 til
1995 þegar Njarðvík vann sjö fs-
landsmeistaratitla.
Verður gryfjan troðfull?
Ljónagryfjan í Njarðvík hefur oft
verið troðfull í tíð þessara vösku
manna og það er von félagsins nú
þegar Ljónin eru loksins komin í
Ljónagryfjuna að Njarðvíkingar fjöl-
menni á leikinn við Borgnesinga,
sem hafa unnið sex af tíu leikjum
sínum í Intersportdeildinni og töp-
uðu sem dæmi með aðeins einu stigi
fyrir toppliði Njarðvíkur á dögunum
í hörkuleik í Borgarnesi. Liðsmenn
Njarðvíkinga dreymir um ná-
grannaslag í Laugardalshöllinni í
febrúar og þá er ég ekki að tala um
— ieiic gegn erkifjendunum
úr Keflavík. Njarðvík-
Ljónin væri vissulega
sögulegur bikarúrlsita-
leikur en aðeins
draumur, að minnsta
kosti fram yfir leikinn
gegn Sköllunum á
sunnúdaginn.
ooj@dv.is
DV-mynd Vilhelm
Njarðvikinga
dreymir um ná-
grannaslag
inni í febrúar og
þáerég ekki að
tala um leik gegn H
erkifjendunum úr
Keflavík.
§Jö bikar-
lelkírum
helgina
Það fara alls fram sjö bikarlei
um helgina, fjórir í karlaflokki <
þrír í kvennaflokki.
f dag spila Njarðvlk og KR
kvennaflokíd í Njarðvík klukka
14.00 ogklukkan 17.00 mætast KI
og Breiðablik. A- 0g B-li
Keflavikur mætast síðan
sunnudaginn í síðasta kvennalei
he garmnar en sá fyrsti fór fran
SÍSrannS/ÞrÓttar0gGrÍnda
. AUir fjórir karlaleikir helgar-
innar fara fram á sunnudaginn
Ljómn taka á móti Skallagrími
klukkan 16.30, KFÍ tekur á móti
Grmdavík klukkan 18.00 oe
Wukkan 19.15 mætast Keflavik og
iIankar í Keflavík og Hamar tekur
a móti Ttndastól á Selfossi
Njarðvíkingar eru þeKÍ
komntr inn í átta liða úrslitir
unnu Stjörnuna 63-115 í vikunr
en siðustu þrfr leikir 16 lið
urslitanna fara fram í næstu viku
m rI0gUr ílð sit'a hins vegar hjá
16 hða urshtum hjá konunum.
Mættir aftur til leiks
Friðrik Ingi Rúnarsson, til vinstri, og Anthony Q. Jones eru mættir til leiks á nýjan leik í
íslenska körfuboltann. Friðrik Ingi mun stjórna Ljónunum gegn Skallagrími í 16 liða
úrslitum bikarkeppninnar um helgina og Jones mun spila með liðinu en hann lék mjög vel
undir stjórn Friðriks Inga með Grindavík í úrsiitakeppni Intersportdeildinnar í körfubolta.
Ljónin ætla sér stóra hluti í bikarleiknum gegn Borgnesingum en þau hafa unnið alla átta
opinbera leiki í sögu félagsins sem var stofnað ■ haust. DV-mynd Teitur