Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Síða 77

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Síða 77
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 71. DESEMBER 2004 77 Ráðist á Alþingi Reiður maður braut rúðu á Alþingishúsinu í gær. Sam- kvæmt upplýsingum frá Alþingi var lögreglan kölluð á staðinn og viðgerðarmenn fengnir til að gera við rúðuna. í desember á síðasta ári fjallaði DV um það þegar eggjum var kastað í Al- þingishúsið. Þá lá frammi um- deilt eftirlaunafrumvarp sem skók samfélagið. Ekki Uggur fyr- ir hvað reitti rúðumanninn til reiði í gær. Hann var tekinn höndum af lögreglunni. Kaupa ekki tilfinningar Sjálfstæðismennimir Gísli Marteinn Baldursson og Rúnar Freyr Gíslason í Menningar- málanefnd Reykjavíkur studdu ekki sér- staka ákvörðun nefndarinnar um að veita El- ísabetu Jökuls- dóttur 400 þús- und króna styrk fyrir Til- finningatorg í miðbænum. Þeir sögðu að gæta þyrfti jafnræðis. Erindi Eh'sabetar ætti að afgreiða sem verk- efnastyrk sem nefndin út- hluti árlega. „Hundruð Reykvikinga hafa á eigin spýtur fengið sambærilegar hugmyndir og hrint þeim í framkvæmd af eigin ramm- leik,“ bókuðu þeir. Verðbólgan sleikir þol- mörk Verðbólgan er nú 3,9% og jókst frá því í nóvember þegar hún var 3,8%. Verð- bólgan er því vel yfir 2,5% verð- bólgumarkmiði Seðlabankans og mjög nærri efri þolmörkum pen- ingasteftiunnar sem em 4%. Seðla- bankinn hefur þegar bmgðist við verðbólgu- vánni með því að hækka stýrivexti sína sex sinnum á þessu ári. Standa vextir bankans nú í 8,25% eftir hækkun um heilt prósentu- stig í byrjun mánaðar. Greining íslandsbanka seg- irfrá. Arnþórsmál ídóm Guðjón Marteins- son héraðsdómari mun á næstunrú gera upp við sig hversu þungan dóm Arn þór Jökull Þor- steinsson fær fyrir| vopnað rán í Hringbrautarapóteki og fyr ir tvö brot á vopnalögum sem hann hefur játað. Arn- þór hafði ekki hlotið refsi- dóma áður en hann réðst uppdópaður og vopnaður loftbyssu inn í apótek við Hringbraut og hafði þar á brott með sér 480 töflur af ofvirknilyfinu Rítalín. Lyfið hefur Arnþór tekið sam- kvæmt læknisráði um nokkurt skeið vegna of- virkni. Héraðsdómur Suðurlands þingfesti í gær mál gegn Christopher Mamelin og Guðmundi Helga Rögnvaldssyni vegna tveggja vopnaðra rána í Hveragerði í febrú- ar. Christopher og Guðmundur rændu Hótel Örk og veittu starfsmanni áverka með hnífi. Sama dag tóku félagarnir þátt í einu lélegasta bankaráni sögunnar. Seinna ránið Hnefahögg landlit fímm- | tugrar konu og hótun með hnlfi var 113 þúsund króna virði að mati Christophers Mamelin og Guðmundar Rögnvatdssonar. Svo virðist sem ónefnda iögreglumanninum hafí ratast satt orð á munn þegar hann notaði orðin litlir gangsterar um piltana, því þegar fé- lagarnir ætluðu að læsa Ágúst inni ígeymslu á hótelinu yfirsást þeim að hurðin væri opnan- leg innan frá. Rændu banka ng börðu limmtuga knnu Atburðunum í Hveragerði febrúarmorguninn fyrr á þessu ári var lýst í DV sem allsherjar skrípaleik eða atriði í teiknimynd. Þannig rak hver klaufaskapurinn annan í ránsöldu félaganna tveggja og má heita heppni að fórnarlömb þeirra hafi ekki stórslasast í hamagangnum en rúmlega fimmtug kona, gjaldkeri í KB-banka, var lamin af Christopher í ráninu. Drengimir tveir voru í alræmdri klíku í Reykjanesbæ sem lýst var af ónefndum lögreglumanni þar sem „óskipulagðri glæpastarfsemi lítilla gangstera“.„Þetta er einn dæma- lausasti skrípaleikur sem ég hef nokkurn tímann upplifað," sagði Ágúst Ólafsson, einn rekstraraðila Hótel Arkar í Hveragerði, í samtali við DV daginn eftir ránsferð tví- menninganna um blómabæinn. Ágúst varð óvænt fórnarlamb fyrra ráns Christophers Mamelin og Guðmundar Helga Rögnvaldssonar. Skáru næturvörð Samkvæmt frásögn Ágústar, og því sem fram kemur í ákæru, komu félagarnir tveir á hótelið snemma morguns sama dag og ránið var framið. Ung stúlka, Guðrún Mika- elsdóttir, var sömuleiðis í för með piltunum, en hún sætir nú ákæru vegna hylmingar þar sem hún tók við hluta ránsfengs þeirra félaga. Munu drengirnir fljótlega eftir komu á hótelið hafa komið í af- greiðslu hótelsins og ógnað Ágústi með hnífi. Skarst Ágúst lítillega á fingri í hamagangnum. Hrifsuðu drengirnir því næst peninga úr af- greiðslu og af bar hótelsins auk þess sem þeir neyddu Ágúst til að af- henda sér peninga úr vösum sínum og úr herbergi á hótelinu, ails rúmar 60 þúsund krónur. Svo virðist sem ónefnda lögreglu- manninum hafi ratast satt orð á munn þegar hann notaði orðin litlir gangsterar um piltana, því þegar fé- lagarnir ætluðu að læsa Ágúst inni í geymslu á hótelinu yfirsást þeim að hurðin væri opnanleg innanfrá. Lamdi konu Eftir að hafa látið greipar sópa um Hótel Örk héldu mennirnir rak- leiðis út í KB banka sem er í sömu götu og hótelið. Christopher og Guðmundur hafa líklega ekki gert sér grein fyrir að þegar var búið að óska eftir aðstoð lögreglu enda Ágúst fljótari út úr geymslunni en inn í hana að sögn. Var því stutt að fara þegar tilkynnt var um bankaránið. Þegar í bankann var komið neyddu tvímenningarnir fimmtugan starfs- mann bankans til að hleypa sér inn í bankann og notuðu til þess hnífinn, sem Christopher mun hafa haldið á samkvæmt ákæru. Samkvæmt ákæru ógnaði Christopher því næst starfsfólki með hnífnum og sló fimmtuga konu sem starfaði í bankan- um Jmefahöggi í andlit- ' ið áður en þeir hlupu á brott með ránsfenginn úr bankaráninu - 113 þúsund krónur í smá- mynt. Báðir náðust þeir svo á hlaupum stuttu síðar. Frægur að endemum Christopher Mamelin er 19 ára gamall en hefur þó komið ítrekað við sögu lögreglu í heimabæ sínum vegna refsilagabrota. Þannig er talið að hann og sjö aðrir félagar hans hafi staðið á bak við mikla ránsöldu sem gekk yfir Reykjanesið fyrir rúmu ári. í einu af þeim innbrotum var stolið nokkrum haglabyssum sem síðan voru notaðar tii að ræna Bón- usverslun í Kópavogi stuttu síðar. Aðalmeðferð í máhnu mun fara Fokk jú! Christopher Mameiin á leið ígæslu- varðhald fyrr á þessu ári. Hann sló fimmtuga konu hnefahöggi I andiitið þegar hann rændi peningum úr KB banka I byrjun árs fram eftir áramót en félagarnir gætu átt von á að þurfa að kæla sig í nokkra stund í fangelsi sannist á þá^ sök. heigi@dv.is Dóttir mannsins sem flúði Grund Undrast ummæli hjúkrunarforstjóra „Varðandi föður þinn, þá hefur verið reynt að gera honum til geðs, eftir því sem hjúkrunarforstjórinn tjáir okkur," segir Hrafn Pálsson, skrifstofurstjóri í heilbrigðisráðuneyt- inu, í svari til Bryndísar Magnúsdóttur. Faðir Bryndísar gekk út af elliheimilinu Grund á miðvikudagskvöld, að sögn niðurlægður vegna þess að- búnaðar sem á heimilinu er. Bryndís segist hissa á svari ráðu- neytisins sem barst henni á fimmtu- dag eftir að hún beindi erindi til ráðuneytisins stuttu áður. Hún segir það vera umhugsunarefni fyrir aldr- aða og aðstandendur þeirra að þjónusta við aldraða sé álitin vera einhvers konar ölmusa. „Ég veit satt best að segja ekki hvað átt er við með að reynt hafi verið að gera honum „til geðs,“ eins og það er haft eft- ir hjúkrunarforstjór- anum. Þarna er verið að vinna með fólk þó mér sýnist og heyrist á þessu sem litið sé á athuga- semdir aldraðs fólks sem hvert ann- að tuð og þjónusta við þá sé háð geðþótta," segir Bryndís Magnús- dóttir um svar ráðuneytisins. helgi@dv.is Farinn heim Bryndfs segirekki einleikið hvernig máium aldraðs fólks sem leyfir sér að gagnrýna samfélag sitt sé svarað. Ibúar húss sem kveikt var í krefjast bóta Brennuvargar borgi brúsann Fólk sem bjó í húsi sem kveikt var í í Laugardalnum sumarið 2003 hef- ur krafið þrjá menn um rúmlega tvær milljónir króna fyrir tjón sem það varð fyrir í brunanum. Guðjón Þór Jónsson, Sig- urður Ragnar Kristinsson og ívar Björn ívarsson voru á fimmtudag dæmdir í Hæstarétti í tveggja ára fangelsi. Skaðabótakröfu íbúa hússins var vísað frá dómi. Þeir hafa nú ákveðið að krefja mennina sjálf um bæt- ur fyrir tjónið. Matsfyrirtækið Frumkönnun metur fata-, skó og munatjón fólksins á rúmlega 1,6 milljónir króna. Fólkið vill fá tjónið bætt ásamt dráttarvöxtum og innheimtuþóknun. . Helgi Birgisson lögmaður segir í innheimtubréfi að borgi mennirnir ekki innan tíu daga ffá 3. des- ember megi þeir búast við því að krafan verði inn- heimt með aðstoð dóm- stóla. Einn íbúi hússins, Jón Guðmundsson, sagði fyrir rétti að verðmæt föt hefðu verið í anddyri hússins; fjallaföt og mótorhjólaföt. Þá skemmdust ryksugur af Rainbow-gerð og 150 ára gamall speg- ill sem Jón sagði vera ættar- griP-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.