Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2005, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2005, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 Fréttir DV Júlíus Kemp fyrir dómi DHL flutn- ingar stefndu kvikmynda- framleiðandum Júlíusi Kemp fyrir vangoldn- ar flutningsnót- ur í tengslum við stórsýningu flamengódans- arans Joaquíns Cortés. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í vilcunni en fellt niður þar sem ekki var rétt að stefna Júlíusi Kemp persónulega vegna málsins. „Það var fyrirtæki sem sá um að halda sýninguna og því á að senda slculdina á réttan Jögaðila," segir Júlíus Kemp sem var greinilega stefrit fyrir misskilning. Alvarleg læknamistök Linda Dröfn Gunnars- dóttir gekkst sautján ára undir kjálkaaðgerð til að lagfæra yfirbit með þeim afleiðingum að hálft andlit hennar lamaðist. Iinda er 29 ára og hefur höfðað mál gegn Landspítala - háskóla- sjúkrahúsi. Fyrirtaka var í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudaginn. Lögfræðing- ur Lindu, Stefán Geir Þóris- son, segir lítið hafa gerst í réttarsalnum. Rfldð hafi fengið frest til 31. janúar til að leggja fram gögn. Svo verði málið flutt. Hættirað leita gjör- eyðingar- vopna StaMest hefúr verið að Banaaríkjamenn hafa hætt leit að gjöreyðing- arvopnum ílrak. Þetta kom fram á fréttavef BBC í gær. Jafnframt var þess getið að sá sem stjómað hefur leitinni, Charles Duelfer, myndi ekki snúa aftur til frak eftir frí. Enn eiga þeir sem leitað hafa vopn- anna eftir að fara í gegn- um fjölda af skjölum og gögnum en engar lflcur eru taldar til að það beri árangur frekar en sjálf leitin hingað til. Sem lcunnugt er var meint gjöreyðingarvopnaeign Saddams Hussein höf- uðástæðan fyrir íraks- stríðinu. Frásögn Eiríks Bjarnar Kjartanssonar, sakbornings í Víöinesmálinu, kom flestum í opna skjöldu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Eiríki er gefið að sök að hafa gengið í skrokk á háaldraðri konu, fyrrum vistmanni á elliheimilinu. Eiríkur sagðist hafa klappað henni á kinnarnar og lék það með látbragði í salnum. Hjúkrunarkona sem bar vitni sagði gömlu konuna hafa hrópað á hjálp meðan Eiríkur lamdi hana í þremur lotum. „Hjálp, hjálp, hjálp! Eg er aö deyja!" „Ég klappaði henni nokkuð hressilega á kinnarnar," sagði Eirík- ur Bjarnar Kjartansson, sakborningur í Víðinesmálinu. Eiríkur er ákærður fýrir að hafa gengið í skrokk á konu á níræðisaldri í febr- úar á síðasta ári. Gamla konan lést fyrir nokkru en við réttar- höldin í gær sagði Eiríkur að hróp og köll konunnar hefðu ýtt honum fram á brúnina. „Um eittleytið byrjaði [...] að hrópa og kalla. Hún var búin að kúka í bleyjuna sína,“ útskýrði Eirlkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. „Ég fór með hana inn á klósett en eftir smástund fór hún aftur að hrópa. Ég gaf henni róandi töflu og beið í tuttugu mínútur.“ Eiríkur sagði að lyfið hefði ekki haft nein áhrif. Gamla konan hafi aftur byrjað að kaila; hann hafi ætl- að að hjálpa henni þegar hún sló hann, fálmaði og hélt áfram að öskra. Ég klappaði henni nokkuð hressilega á kinnarnar. Þá varð hún ró- leg. Klappaði henni „Ég klappaði henni nokkuð hressilega á kinnamar. Þá varð hún róleg,“ sagði Eirflcur og lék það eftir með því ao smella saman höndun- um ítrekað. „Því næst reisti ég hana við og kúkurinn fór framhjá bleyj- unni, niður við fótinn, og á gólfið. Eg setti hana niður í klósettið og verkaði það sem var á gólfinu." Eirflcur sagði að þegar hann hefði ætlað að hjálpa henni hafi hún Hjúkrunarheimilið að Viðinesi Eirlki var sagt upp störfum Ikjölfar atburöarins. Eirfkur Bjarnar Kjartans- son sjúkraliði Sagðisthafa 7 rf klappað gömlu konunni hressilegaákinnarnarog lék þaö eftir með því að slá sam- 1 f—; an höndunum ítrekað. V aftur brjálast. Hann hafi látið hana standa við klósettið en sjálfur hafi hann legið á gólfinu og teygt sig í ruslafötu til að koma hægðunum fýrir. Rann til í hægðum „...þá rann hún til í hægðum á gólfinu. Hún datt ekki, heldur lak meira á vinstri hiuta líkamans með höndina undir sér,“ útskýrði Eirflcur og bætti við að á þessum tímapunkti hefði gamla konan orðið snælduvit- laus. „Ég setti höndina yfir munn- inn á henni og ætíaði að lyfta ý henni upp. Þá hefur höfuðið kannski marist en að lokum tókst mér að koma henni í rúmið. Ég verkaði það sem eftir var og svo komu hjúkkumar niður." „Ég er að deyja!" önnur hjúkrunarkonan bar vitni fyrir héraðsdómi í gær. Hún sagðist hafa staðið á bmnastiga og reykt með sam- starfskonu sinni þegar hún heyrði öskur. „Við heyrðum bara kallað: Hjálp, hjálp, hjálp, ég er að deyja!" sagði hjúkrunarkonan og bætti við: „Þetta var angistarvein." Hjúkmnarkonan sagðist hafa séð Eirflc halda í gömlu konuna og ógna henni. „Hann stappaði niður fætin- um og sagði henni ógnandi að hætta þessu: „Hættu þessu!" Svo lamdi hann hana utanundir. Þetta voru nokkur högg. í þremur lotum," sagði hjúkrunarkonan. Rauð í framan Dóms er enn að bíða í réttarhöld- unum yfir Eirfld Bjamar. Honum var vikið úr starfi eftir að Víðinesmáhð kom upp en sagði í Héraðsdómi í gær: „Ég hefði átt að fá tækifæri til að útskýra mitt mál í staðinn fyrir að vera bara rekinn." Þá vakti dómar- inn athygli á því að Eiríkur hefði ekki skráð tilfellið niður eftir vaktina. Eirflcur svaraði því til að hann hefði ekki sé mikla áverka á konunni. „Htín var bara svolítið rauð í framan," sagði hann. simon@idv.is Stjörnuleit í Reykjavík Svarthöfði var á Rex í fyrrakvöld. Reyndi að sýnast áhugalaus um aðra gesti. Faldi sig bak við DV úti í horni. En á blaðinu var gat. Svarthöfði var á veiðum - á höttunum eftir fræga fólkinu. í gegnum gatið á blaðinu sást hvernig mannskapurinn streymdi um gólfið á Rex í óskipulagðri fylk- ingu sem vatt sér um sjálfa sig. Allir höfðu augun opin. Flestir mændu þó vonaraugum á dyrnar enda virt- ist enginn innandyra líkjast alvöru kvikmyndastjörnu þrátt fyrir að kvenpeningurinn væri svo sem uppstrflaður eins og sjónvarps- þulur á gamlárskvöld. Viðburða- leysi kvöldsins reyndist algert. Það næsta sem Svarthöfði komst því að hitta stjörnu var þegar honum sýndist hann sjá Danny Devito í kunnuglegu andliti á barnum. En það var bara gamall bekkjarfélagi sem hafði víst dagað uppi sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Það síðasta sem Svarthöfði heyrði þegar hann mismunaði sér út í gegnum þvöguna var Devito að panta lakk- ríslflcjör. Hvernig hefur þú það? „Ég hef það alveg Ijómandi fínt enda kominn I frí og til höfuöborgarinnar vegna Broadway-sýningar Brján á föstudagskvöldiö," segir Guðmundur Gíslason, einn aðstandenda stórsýningar hinnar austfirsku Brján á Broadway á föstudag.„Ann- ars var flugið fínt, þrátt fyrir smá ókyrrð ílofti. Iþessum töluðu orðum er ég að bíða eftir restinni affólkinu sem er nú I rútunni á leið suður." Hvar gat allt fræga fólkið verið? Fyrir utan mætti Svarthöfði manni sem sagðist heita Sverrir og eiga búlluna. Hann spurði hvort Svart- höfði hefði nokkuð séð Danny Devito inni. Þegar Svarthöfði staulaðist fram úr daginn eftir kom sjokkið. DV sagði að Hollywood-leikkonan geð- þekka - sem eigandi Rex hafði áður sagt hafa skemmt sér konunglega en þó af yfirlætisleysi á staðnum helg- ina áður - hefur aldrei til íslands komið. Svona hefur Svarthöfða ekki liðið síðan hann ók með stórfjöl- skyldunni austur fyrir fjall fyrsta dag aprflmánaðar hérna um árið að fylgjast með Vanadísinni sigla upp Ölfusá. Þrátt fyrir þetta verður Svarthöfði aftur á Rex um helgina. Til öryggis. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.