Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Side 11
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 7 7
Pitsur kosta
ráðherrastól
Judy Sgro, ráðherra inn-
flytjendamála í Kanada,
neyddist til að segja
af sér í síðustu viku
eftir að Harjit
Singh, eigandi
pitsasölustaðar,
sagði að ráðherr-
ann hefði lofað sér því að
hann yrði ekki rekinn úr
landi ef hún fengi ókeypis
pitsur í staðinn. Þetta gerð-
ist síðastliðið sumar í miðri
kosningabaráttu. Þá hefur
rúmönsk nektardansmær
sagt að ráðherrann hafi
útvegað sér atvinnuleyfi í
Kanada gegn nokkrum
greiðum en nektardans-
mærin vann einnig fyrir
Sgro í kosningabaráttunni.
Stórsvindl í
leigubílum
Tékkneskir leigubílstjór-
ar láta erlenda ferðamenn
borga mun
meira fyrir öku-
túra en eðlilegt
er. Pavel Bem,
borgarstjóri í
Prag, fór í dular-
gervi og tók
leigubíl milli
tveggja vinsælla
áfangastaða
ferðamanna.
Bem varð heldur
undrandi þegar
bilstjórinn fór fram á að
hann greiddi rúmar 2 þús-
und krónur fyrir. Reyndist
álagið vera um 500%. „Ég
bjóst við að leigubílstjórar
legðu milli 50 og 100% á
ferðina en ekki 500%,"
sagði Bem og hvetur fólk að
semja um verð áður en ekið
er af stað í leigubíl.
Fangelsi fyrir
draugagang
Pólsk kona í Austurríki
hefur verið send í fjögurra
mánaða fangelsi
fyrir að reyna að
hræða yfirmann
eiginmanns síns
með því að búa
til draugagang á
heimili hans.
Konan eyddi
mörgum vikum í
felum á heimili mannsins
og þóttist vera draugur.
Manninum var ekki farið
að lítast á blikuna og óskaði
eftir hjálp yfirvalda til að
leysa ráðgátuna og komu
þau fyrir upptökuvél þann-
ig að konan náðist á mynd.
Konan reyndi að hræða
manninn með því að skella
hurðum og ganga um húsið
í hvítu laki seint á kvöldin.
Drap konu
sínaafást
Aldraður Breti gengur
laus eftir að hafa myrt eig-
inkonu s£na með því að
skera hana á púls. Dómar-
inn taldi sannað að maður-
inn hefði myrt
konuna
að
hennar
eigin ósk e
átti aðeins
ur ólifaðar vegna krabba-
meins. Eftir að hafa horft á
meðan henni blæddi út
skar hann sig á púls en
hringdi á lögregluna áður
en hann lést. Konan hafði
þegar kvatt syni sína tvo og
báðu þeir föður sínum
griða. „Umbjóðandi minn
er himinlifandi. Hann gerði
þetta vegna ástar á konu
sinni," sagði lögfræðingur
mannsins.
Hrellandi heilbrigðiskerfi
Það er nú aldeilis slæmt að
komast að því að heilbrigðiskerf-
ið er ekki fullkomið. Ég komst að
þessu nýverið þegar ég fékk flens-
una, hún lagðist þungt á mig með
jafnvægisleysi og öllum tilheyr-
andi kvillum. Ég þurfti að kalla á
lækni með tilheyrandi kostnaði.
Og ég þurfti að fara til læknis um
miðja viku sem hafði í för með sér
myndatöku með tilheyrandi
kostnaði. Svo ekki sé talað um
kostnað við lyf og nefúða, sem
einn og sér kostaði 2.300 krónur.
Þannig að bara þessi flensa er
búin að kosta 17.000 krónur.
Áður en þessi ósköp dundu
yfir var ég búin að panta tíma hjá
tveimur öðrum læknum. Það
mun koma til með að vera nokk-
ur kostnaður þannig að ég hrósa
happi yfir því að það eru til af-
sláttarkort.
það
hendi
mér
hvernig
það væri
að vera
öryrki eða
ellilífeyr-
isþegi og
þurfa að
standa
undir öllum þessum læknis-
kostnaði.
Kostnaði sem ég tel að enginn
geti staðið undir af því fólki.
Þannig að ég yrði afskaplega
sæl ef þessir hlutir yrðu skoðaðir
betur og lagfærðir á einhvern
hátt.
Hnefaleikafrömuðurinn Don King hefur stefnt Qölmiðlaveldinu ESPN vegna umíjöll-
unar um persónu hans á síðasta ári. King fer fram á himinháar skaðabætur, eða 2,5
milljarða dollara. ESPN segir að aðeins hafi verið dregnar fram staðreyndir úr lífi
Dons sem öllum voru þegar kunnar.
Krelst 130 milljarða
í skaðabætur
Don King er ósáttur við að hafa verið kallaður morðingi, ofbeld-
isseggur og svindlari í sjónvarpsþætti.
Don King hefur stefnt fjölmiðla-
veldinu ESPN vegna umfjöllunar
þess um persónu hans £ ESPN
SportsCentury á si'ðasta ári. Hann
fer fram á himinháar skaðabætur
eða 2,5 milljarða dollara, jafnvirði
130 milljarða króna. Forráðamenn
ESPN furða sig á þessari stefnu þvi
umfjöllun þeirra hafi aðeins dregið
fram staðreyndir £ Iffi Kings sem öll-
um voru áður kunnar.
í stefnu Kings segir meðal annars
að ESPN hafi „...kallað hann snáka-
oh'usölumann, svindlara sem kunni
ekki að skammast si'n og verra". Þá
hafi komið fram að King hafi eitt
sinn svikið Muhammad Ali um 1,2
milljónir dollara og hafi verið
dæmdur fyrir manndráp 1967 en
sýknaður £ öðru manndrápsmáli
1954,...hann drap ekki einu sinni
heldur tvisvar".
Hefur fengið nóg
Sem fyrr segir er megnið af þeim
upplýsingum sem ESPN setti fram
þekkt en King hefur eytt drjúgum
hluta ævi sinnar £ réttarsölum. King
segir að nú sé hann búinn að fá nóg.
„Þetta var dropinn sem fyllti
mælinn," segir King. „Ég sætti mig
ekki lengur við svona umræðu um
persónu m£na og leita eftir réttlæti."
Þetta sagði King á blaðamannafundi
fyrir helgina er hann kynnti málsókn
sfna. Auk ESPN stefnir hann einnig
móðurfyrirtæki þess, Walt Disney,
ogABC Cable Networks, sem stjórn-
ar ESPN.
Hótaði að brjóta fætur Larrys
Holmes
Meðal þess sem fram kemur f
umfjöllun ESPN eru ásakanir um að
King hafi eitt sinn hótað Larry
Holmes þvf að brjóta á honum fæt-
urna og að hafa svikið hnefaleika-
manninn Meldrick Taylor um eina
milljón dollara. Þegar Taylor kvart-
aði á King að hafa hótað honum
dauða.
„Þetta var dropinn
sem fyllti mælinn.
Margir í mál
King hefur verið umboðs-
maður hnefaleikara allt frá
Muhammad Ali og að Mike
Tyson og margir skjólstæðinga
hans hafa farið £ mál við hann.
Tyson krafðist eitt sinn 100
milljóna dollara af King en mál-
ið endaði £ sátt þar sem Tyson
fékk 7,5 milljónir dollara
skaðabætur. Þá náði King
einnig sátt f
dómsmáli
Terrys Norr-
is gegn sér
árið 2003.
King hefur
einnig höfð-
að skaða-
bótamál
gegn Lennox
Lewis sem
hann sakar
um mein-
yrði.
*
Don King istefnu Kings segir m.a.
að ESPN hafi„... kallað hann snáka-
olíusölumann, svindlara sem kunni
ekki að skammast sin og verra".
JMikBTyfson Tyson krafðist eitt sinn lOOmilljóna
1 dollara afKmgen málið endaði isáttþarsem
YTyson fékk 7,5 milljónir dollara iskaðabætur.
Hermaðurinn Charles Graner dæmdur
Barnamorð talið tengjast nornum
Abu Graib-böðull
iðrast einskis
Bandariskur hermaður sem talinn
er einn af höfúðpaurunum i pynting-
um fanga f hinu alræmda Abu Graib-
fangelsi í írak fékk tíu ára fangelsis-
dóm fyrir þátt sinn í pyntingunum.
Charles Graner, 36 ára, frá Pen-
sylvam'u var meðal annars sakaður
um að neyða fraska stríðsfanga til að
stunda sjálfsfróun meðan teknar
voru af þeim myndir. Myndir af
pyntingunum vöktu mikinn óhug
um víða veröld þegar þær birtust í
fjölmiðlum fyrir ári.
Charles kvaðst ekki sjá eftir neinu,
sagði einfalt nei við þeirri spurningu,
og fúllyrti að með hegðan sinni og því
að skipta öðrum hermönnum að
pynta fanga hefði hann verið að
bregðast við þrýstingi frá félögum
sínum. Yfirmenn hans hafi þó alltaf
ædast til
þess að
eftir
reglum
yrði far-
ið að
hans
sögn.
Móð-
ir Garn-
ers, Irma Charles Garner Sérekkieftir
Jean að hafa pyntað fanga en
Garner mamma hans kennir George W.
„ „ Bush um -segirforsetann bera
allaábyrgð.
hins veg-
ar að rangur maður hefji nú afplán-
un tíu ára fagnelsisdóms. Hún sagði
við fréttamenn að nær væri að Geor-
ge W. Bush skammaðist sín fyrir
hryllinginn í Abu Graib.
Skáru tungu og kynfæri af
Unglingsstrákur og full
orðin kona eru í haldi lög-
reglunnar í Suður-Afríku
grunuð um að hafa myrt
níu ára stúlkubarn. Lík
stúlkunnar fannst undir tré
í almenningsgarði en hvarf
hennar hafði verið tilkynnt
rétt eftir áramótin.
Drengurinn, sem er 14
ára, segist hafa horft á
ára konu skera tungu
og kynfæri
stúlkunni
skilja hana eft-
ir blæðandi.
„Samkvæmt
drengnum
var barnið
aflimað
og skil-
ið eftir
til að
deyja," sagði lögreglan og bætti við
að líklega hefði konan ædað að láta
norn fá líkamshlutina í skiptum fýrir
jurtir og upplýsingar um galdra.
Lögreglan telur líklegt að fleiri teng-
ist málinu og að fleiri verði fljótlega
handteknir.
Á hverju ári eru framin um það
bil 100 morð í Suður-Afrfku þar
sem nornir og galdrar koma við
sögu. Flest morðanna eru
framin á þeim svæð-
um þar sem
gamlar hefðir
og siðir eru enn við lýði.
Norn Á hverju ári eru fram-
inum það billOOmorðí
Suður-Afríku þar sem nornir
og galdrar koma við sögu.