Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Blaðsíða 24
4. 24 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 Menning BV menmng Umsjón: Páll Baldvin Baídwnsson pbb@dv.js >ýsk kvennalist í Gerðubergi Á laugardaginn var opnuð sýning i Gerðubergi á verkum Rosemarie Trockel, teikningar, skúlptúrar og myndbönd. Rosemarie er ein afvirt- ustu listamönnum Þýskalands og hefur skipað sér sess, sem ein afþekkt- ustu samtímalistmönnum heims með sínum margþættu og umdeitdu verkum. I verkum sínum tekur hún fyrir daglegt llfkvenna og stöðu konunnar innan þjóðfélagsins, með fókusinn á listheiminn. Rosemarie tekur einnig á stöðluðum hugmyndum um kynferði, menningu og Hstsköpun. Hún er fædd í Schwerte í Þýskalandi 1952. Hún lagði stund á mannfræði, félagsfræði, guð- fræði og stærðfræði í framhaldi af starfi sínu sem kennari. Síöar fór hún í málaranám við Wekkunstschule I Köln og var fyrsta einkasýning hennar árið 19831 Philomene Magars Gallerl í Bonn og Monika Spruth Gallerl I Köln. Hún býr og starfar I Köln. Gudrun Imboden er sýningarstjóri sýn- ingar Rosemarie Trockel. Hún heldur fyrirlestur I Listaháskóla Islands I dag kl. 12.30 og mun ræða um verk Ros- emarie og sýninguna. Gudrun hefur komið víða við. Hún er aðalumsjónar- maður samtímalistadeildar Borgar- listasafns Stuttgartborgar, Staats- galerie Stuttgart. Hún hefur komið að sýningum og útgáfum um stöðu módernismans (Ad Reinhardt, Guilio Paolini, Frank Stella, Daniel Buren) og um nýlegri list (JeffKoons), auk þess að skrifa um Mallarmé og Gauguin.Árin 1997 og 1999 hafði hún umsjón með framlagi Þýskalands til Feneyjatvíær- ingsins. Sýningin er samvinnuverkefni Menn- ingarmiðstöðvarinnar Gerðubergs, Goethe-Zentrum, Listaháskóla Islands og Vetrarhátíðar en unnin aflFA (Institut fiir Auslandsbeziehungen). Sýningin stendur til 27. febrúar 2005 oger opin virka dagafrákl. 11-19 og um helgar frá 13-17. Á laugardag var nýja danska óperan á Dokkeyju vígö með glæsilegri athöfn sem var að flestu leyti á þjóðlegum nótum. Nú skilur á milli sönglistar, danslistar og leiklistar í Konunglega leikhúsinu í fyrsta sinn í aldalangri sögu þess. Anddyri Óperunnar skreyta þrír risastórir ljósahjálmar eftir Ólaf Elíasson. Ljósahjálmarnir bera öll höf- undareinkenni Ólafs og sóma sér vel í fábrotnu en glæsilegu anddyri Óperunnar. Ólafur er einn þriggja listamanna sem eiga verk í anddyr- inu; samtímamáður Súmmarana, Per Kirkeby, á þar bronsmyndir og svo skreytir gólfið einkennismerki hússins eftir Per Arnolfini. Vígsluathöfnin var send út í heild sinni í margbrotinni og viða- mikilli útsendingu á aðalrás danska r sjónvarpsins og var ekkert til spar- að. Samkoman öll bar merki þess háborgaralega stíls sem Evrópubú- ar grípa til á tyllidögum. Hún var gamaldags í flestum skilningi, ólíkt vígslu Óperunnar í París fyrir ein- Ljósahjálmar Ólafs um og hálfum áratug. Húsið var vígt með forleiknum af Álfhól eftir Kuhlau, sem er nítj- ándu aldar verk og skipar í þeirra leikhússögu álíka stóran sess og Skuggasveinn gerir hjá okkur. Sí- ðan var dansaður stuttur paradans eftir Peter Martin, fyrrum dansara hjá Konunglega ballettinum, sem nú stýrir New York City Ballet. Þá var sungin sonnetta eftir Shakespe- are við tónlist Paul Ruders, sem einnig hefur samið kallstefm fyrir gesti í anddyri, þess merkis að sýn- ingar séu að heíjast. Síðasta atriði fyrir hlé var ballettinn Etudes eftir Harald Landers og var þá ballett- flokkurinn í heild sinni á sviðinu. Aðalsalurinn Etudes er afar erfiður fyrir dansara og byggir á þeirri klassísku dans- hefð sem dansflokkur Konunglega hefur verið þekktastur fyrir. Eftir hlé voru fluttir kaflar úr þriðja þætti óperunnar Maskarade eftir Carl Nielsen. tvísöngvar úr Lakme eftir Delibes og Óþelló Verdis, kafli úr Blómahátíðinni í Gensano eftir Bourneville, föður baflettsins í Konunglega. Flutt var brot úr Ferðinni til Reims eftir Rossini og Visse d’Arte úrToscu. Þá voru sextettar og þrísöngvar úr Luciau di Lammermoor og Rósa- riddaranum fluttir. Og loks Sigur- marsinn úr Aidu, sem verður einmitt opnunarsýningin þann 26. janúar. Óperuhúsið er gjöf Mærsk, skipakóngsins danska sem áttaði sig fyrstur manna á mikilvægi gámaflutninga og byggði veldi sitt á þeim. Hann hefur með gjöf sinni til þjóðarinnar skipað sér í sæti helstu listvina Evrópu. Verkið hefur hann skipulagt um nokkurra áratuga bil. Húsið olli miklum deilum en gamli maðurinn hafði sitt fram í flestu. Það er líldegast eitt af tíu tækni- væddustu óperuhúsum Evrópu. Það var enda tekið fram af dönsk- um ráðamönnum að bygging húss- ins skyldi marka danskri óperulist og danslist nýja mælikvarða á al- þjóðavettvangi: nýtt hús heimtaði nýja krafta. Nú skal Kaupmanna- höfn sett á kortið með auknum fjárframlögum og meiri myndar- skap en til þessa. Óperuhúsin eru líka að rísa víð- ar. Fyrr var nefnd ný bygging » Óvænt stjarna kvöldsins Þetta voru sérkennilegir tónleikar. Þeir byrjuðu á því að spiluð var tónlist m í korter fyrir hlé. Líklegá er þetta stysti flutningur fyrir hlé sem um getur í sögu Sinfómuhljómsveitarinnar. Það var þó bót í máli að verkið sem leikið var, San Francisco Polyphony eftir Ligeti, stendur vel fyrir sínu. Það er bæði speisað og margrætt og sándið er ekki til að spauga með. Allur popp- lýður bæjarins hefði því átt að mæta á tónleikana. En svo vel þekkir tónlistar- gagnrýnandinn sitt heimafólk, að hann getur svarið fyrir að popparar bæjarins voru alls ekki þarna. Áheyr- endur vom ósköp gamlir og lúnir. Eft- ir svona fimmtán ár deyja sinfóníu- tónleikar út vegna þess að áheyrend- urnir verða blátt áfram ellidauðir. Þetta er bara sú staðreynd sem við • blasir. En best er að fara ekki nánar út í þá sálma. Hljómsveitin spilaði vel og Áheyrendur voru ósköp gamlir og lúnir. Eftir svona fimmtán ár deyja sinfóníutón- leikar út vegna þess að áheyrendurnir verða blátt áfram elli- dauðir. skilmerkilega en þó vantaði virkilega fyllingu í himi þykka hljóm sem ein- kennir tónverkið. Sagt er að Sjö orð Krists á krossin- um skipi algjöra sérstöðu meðal verka Haydns. Allir sjö kaflamir utan um orð Krists eru lúshægir og em þeir allir í sama formi. Auk þess er Sinfóniuhljómsveit íslands. Efniskrá: San Francisco Polyphony eftir Ligeti, Sjö orð Krists á krossinum eftir Haydn. Upplestur: Pétur Gunnarsson. Stjórnandi: llan Volkov. Háskólabíó 13.janúar. Tónleikar inngangur og jarðskjálfti í lokin. Þrátt fýrir hugmyndaflug Haydns og snjallan hljómsveitarbúning, er þetta hálf leiðinlegt verk. Hljómsveitin spilaði síður en svo hnölaalaust og þó línur væm oft vel mótaðar og ein- stakir hljóðfærahópar lékju fallega, einkum flauturnar, skorti í heild hinn skæra ljóma, tærleikann og sjálfa leiksnilldina sem er innbyggð í tón- Frönsku Óperunnar á Place de la Bastille og fyrir tveimur árum var Konunglega Óperan í Covent Gar- den endurbyggð. Hollendingar byggðu nýtt hús á Waterloopplein 1986. Þá var að hefjast bygging Óp- eruhúss í Finnlandi sem var lokið sjö árum síðar. Norðmenn vígja nýtt Óperuhús 2008. Á öllum þessum stöðum er öllu til kostað. Það er litið á byggingu óperuhúss sem góðan bissness, nauðsynlegan þátt í alþjóðlegu umhverfl og stolt hverrar borgar. Og í öllum tilvikum hefur þurft ári breið bök og sterk bein til að koma byggingunum upp og í notkun. Það er ekki nóg að byggja hús, það þarf að reka þau. Nýja Óperan á Dokkeyju er glæsilegt hús fyrir dans og söng- deild Konunglega leikhússins. Les- endum er hollt að minnast að spor- in undir ljóshjálmum Ólafs Elías: sonar eru á slóð sem teygir sig langt aftur. Þá slóð gengu þau Anna Borg, Haraldur Björnsson, Stefán Guðmundsson, Þorsteinn Steph- ensen og Regína Þórðardóttir, Lár- us Pálsson og Sif Þórs, Róbert Arn- flnnsson og Helgi Tómasson. Kon- unglega leikhúsið í Kaupmanna- höfn var um langt skeið útungun- arstöð og í nokkrum tilvikum starfsvettvangur íslenskra lista- manna. Síðastur landa okkar til að starfa við Konunglega var Egill Heiðar Pálsson leikstjóri, sem setti þar upp leiksýningu í haust sem leið. Trúlega eiga margir íslenskir áhorfendur - og listamenn, eftir að leggja leið sína í þetta glæsilega hús. pbb Pátur Gunnarsson rithöfundur „Djúpurskilningur Péturs á textanum varpaði likt og birtu yfír salinn og lesturinn var algjörlega laus við tillærðan leikaraskap. “ DV-mynd GVA list Haydns. Þetta er verk sem verður að spila mjög vel. Stjama kvöldsins var tvímælalaust Pétur Gunnarsson rithöfundur sem las fyrsta erindi þeirra Passsíusálma sem fjalla um sjö orð Krists á krossin- um milli þátta tónverksins. Lesturinn var frábær. Ekki bara af því hve skýr hann var, heldur miklu ff emur vegna þess að djúpur skilningur Pétirrs á textanum varpaði líkt og birtu yfir sal- inn og lesturinn var algjörlega laus við tillærðan leikaraskap. Það er spuming hvort það hefði ekld verið meiri listviðburður fýrir áheyrendur ef Pétur hefði einfaldlega lesið þessa sjö sálma í heild, í stað þess að vera að spila verk Haydns. Þetta hljómar kannski fáránlega en breytir því ekki að upplesturinn var áhrifamesta atriði þessara tónleika. SigurðurÞ. Guðjónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.