Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Blaðsíða 19
DV Sport MÁNUDAGUR 17.JANÚAR2005 19 Chelsea náði tíu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina - þegar liðið bar sigurorð af Tottenham, 2-0, á útivelli. Á sama tíma tapaði þeirra helsti andstæðingur, meistarar Arsenal, fyrir Bolton. i Það eru margir á því að spennan á toppi ensku úrvalsdeildarinnar sé fyrir bí og ljóst sé hvaða lið muni hampa enska meistaratitlinum í vor. Eins og staðan er í dag virðist ballið vera búið því það er fátt sem bendir til að Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chelsea muni misstíga sig á næstu mánuðum. Þeir, sem eru eldri en tvævetur í bransanum, benda þó að lið hafi áður klúðrað meiri forystu en Chelsea hefiur nú og ljóst er að þótt Chelsea hafi tíu stiga forystu, þá hafa leikmenn Arsenal og Manchester United ektó kastað ixm hvíta handklæðinu. Tottenham haföi veriö á miklu skriði áöur en liðið mætti Chelsea á heimavelli á laugar- daginn og voru taplausir í níu leikjum í röð. Sú ágæta leikjahrina fór þó fyrir lítið gegn toppliðinu sem bar sigur úr býtum. Meistarae&iin fengu reyndar hjálp frá dómara leiksins, Gra- ham Poll, við að komast yfir því hann dæmdi ansi hreint ódýra vítaspymu á 39. mínútu. Alexei Smertin, miðjumaður Chelsea, féll þá í teignum eftir viðskipti við Ledley King, vamarmann Tottenham. Frank Lampard skoraði af öryggi úr vítaspymunni en Martin Jol, knattspymustjóri Tottenham, var ekki sáttur við ákvörðun Poll. Röng ákvörðun „Eg held að þetta hafi ekki verið víti þótt það hafi verið erfitt að sjá þetta frá sjónarhomi dómarans. Mér fannst Smertin stíga á lappimar á sér og detta. Ég veit ekki hvort þetta er heppni en maridð kom upp úr engu," sagði Jol. Þessi hollenski herramaður, sem hefur gjörbreytt Tottenham- liöinu á undanfömum vikum, sagðist ekki hafa rætt viö dóm- arann eftír leikinn en Tottenham hefur fengið sinn skerf á undeildum ákvörðunum dómara gegn sér á síðustu vikum. „Ég ræddi ekki við dómarann eftír leikinn því að ég get ekki snúið klukkunni og breytt hlutum eftír á. Ég gerði það heldur ekki á Old Trafford á dögunum," sagði Jol og vísaði til atviksins þegar fullkomlega löglegt mark Pedro Mendes var ranglega dæmt af. Jose Mourinho, knattspymu- stjóri Chelsea, sá sér ekki fært að mæta á blaðamannafund eftír leikinn og sendi aðstoðarmann sinn, Steve Qarke, í staðinn. Erum ekki ósigrandi Qarke var ekki sammála Jol varðandi vítaspymudóminn og til að bæta gráu ofan á svart, fannst honum Tottenham hafa sloppið vel því að Chelsea hefði átt að fá tvær vítaspymur til viðbótar í leiknum. „Við fengum eina af þremur sem við áttum að fá þannig að þeir geta ekki kvartað," sagði Clarke sem hefur greinilega lært af sfhum manni Jose Mourinho hvemig á að svara fyrir sig á blaðamannafundum. Chelsea hefur aðeins tapað einum leik í ensku úrvalsdeild- inni á tímabilinu en Clarke sagði að leikmenn liðsins og þjálfarar séu með báða fætur á jörðinni. „Þetta var mjög erfiður leikur og það sást á fagnaðarlátunum eftír leikinn hversu miklu máli þessi sigur skiptí liðið. Við erum ekki ósigrandi því það getur ekkert lið haldið því fram, en við erum í toppformi með mikið sjálfstraust," sagði Qarke. Gerði Arsenal grikk Grikkinn Stelios Giannakopoulus gerði Arsenal prikk þegar hann skoraði sigurmark Bolton í leik liðanna á Reebok- leikvanginum á laugardaginn. Giannakopoulus skoraði markið með skalla fjórum mínútum fyrir leikhlé eftír sendingu ftá Sene- galanum El-Hadji Diouf sem tókst, aldrei þessu vant, að komast í gegnum heilan leik án þess að hrækja á einn einasta leikmann eða áhorfenda. Þetta tap gerir það að verkum ,4 að Arsenal er nú tíu stigum á eftir Chelsea og fátt sem bendir til þess að liðið veiji titil sinn frá því í fyrra. Arsene Wenger, knattspymustjóri Arsenal, viðurkenndi eftír leikinn að það væri á brattann að sækja fyrir hans menn. „Fólk getur sagt það sem það vill en það er mikiö eftír af tímabilinu og Chelsea er með frábæra stöðu. Þeir geta aðeins tapað títilinum úr þessu en við munum samt halda áfiram að berjast þar til yfir lýkur. Við þurfum að hætta að hafa áhyggjur af Chelsea og reyna að vinna okkar leiki. Það er eini möguleiki okkar," sagði Wenger. oskar@dv.is Frank Lampard Þessi frábæri miðjumaður skoraði bæði mörk Chelsea gegn Tottenham á laugardaginn og sést hér fagna fyrra markinu sem hann skoráði úr umdeildri vitaspyrnu. Reuters Ekki mark hjá Morient- es í fyrsta leik anHnlu^ Fem- Sfo MA°nentes Iék sinn fyrsta tk með Liveipool gegn Man- chester United á laugardaginn en hann var keyptur frá Real Madrid tæplega 750 milljónir f síðustu viku. Morientes tókst ekki að skora 1 leiknum en það er í fjrsta sinn á ferli hans sem hann skorar ekld ífrumraun sinni með Jði Hann hafði áður skorað í g^ta leik sínum með Albacete, Rea! Zaragoza, Real Madrid, Mónakó og spænska landsliðinu. Rafael Bemtez, knattspymustjóri Uveipool, var þó rólegur og sagði Monentes þurfa tíma. Hann hefiir lítið spilað í vetur og þSf tfina tfl að komast í form. Hann var dauðþreyttur þegar hann kom út af en Þegar hann er kominníform, á hanneftírað sýna hversu öflugur leik- maður hann er," sagði Benitez. Shearer íhugar að halda áfrani Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, hefur lýst því yfir að svo geti farið að hann spili eitt ár til viöbótar með félaginu en hann hafði áður gefið þaö út að hann myndi leggja skóna á hilluna í vor. Shearer, sem er orðinn 36 ára gamall, sagði við blaðamenn eftír sig- v'. ur- « leik- « inn gegn Sout- hamp- ton á laugardaginn aö hann myndi setjast niður með knattspymu- stjóra liðsins, Graeme Souness, á næstunniog fara yfir málin. „Ég mun viðra mínar skoð- anir og hann sínar og síðan sjáum við til,' sagði Shearer. V ^ Hooney fékk farsíma í hausínn —k ^nska knattspymusam- t Z 4 bandið bíður nú eftír ' skýrslum frá lögreglu til að metahvortþað eigi að aðhafast eitthvað eftír að Wayne Rooney, sóknarmaður Manchester United, fékk tarsfina í hausinn frá 0 reiðumstuðningsmanni sm IjveU5°ol þegar hann fagnaði sigurmarki sínu í leik liðanna á laugardag- rnn. Rooney er fyrrum leikmaður Liveipool og f ekki sá vinsælastí hjá % aðdáendum Liveipool. Ray Lewington, knattspyrnustjóri Watford, er himinlifandi með Heiðar Helguson. Heiðar er frábær alhliða leikmaður « Framherjinn Heiðar Helguson heldur áfram sínu striki í ensku 1. deildinni. Hann skoraði tvö mörk fyrir Watford í ensku 1. deildinni um helgina þegar liðið bar sigurorð af Crewe, 3-1. Hann hefur nú skorað tólf mörk fyrir Watford í deildinni og er í 6.-7. sæti yfir markahæstu menn 1. deildarinnar. Það er athyglisvert að skoða það að Heiðar var mjög rólegur til að byija með í deildinni og skoraði ekki í fyrstu sjö leikjum liðsins. Hann fór ekki almemíilega í gang fyrr en að íslenska landsliðið lauk keppni í undankeppni HM í haust og hefur skorað ellefu mörk í síðustu sautján leikjum liðsins í deildinni. Hann hefur auk þess skorað þijú mörk í deildarbikar- num og eina mark Watford í bikamum. Ray Lewington, knattspymu- stjóri Watford, hefur löngum verið aðdáandi Heiðars og hann sparaði ekki stóru orðin eftir leikinn gegn Crewe á laugardaginn. „H [eins og Lewington kallar Heiðar] verður bara betri og betri. Ég sagði fyrir nokkrum vikum að hann væri sennilega í besta formi sem hann hefur verið þessi fimm ár hér hjá Watford og frammistaða hans gegn Crewe staðfesti orð mín enn frekar. Bæði mörkin hans voru mikilvæg og það fyrsta var sérstaklega fallegt. Það kom snemma og færði liðinu sjálfstraust," sagði Lewington í samtali við vefsfðu Watford og hélt síðan áfram að hrósa Heiðari. á „Hann leit út fyrir að Æ vera alhliða leikmaður, rólegur á boltanum, Hr skoraði mörk og vann tm bolta. Það hefur aldrei verið hægt að efast um hugarfar hans en nú er hann orðinn frábær alhliða leikmaður." Heiðar Helgu- son Skoraði tvö ijjgí mörk fyrir Wat- IjlJ ford gegn Crewe fjK á laugardaginn g|l og hefur nú skorað Wi tólf mörk i ensku l.deildinni. 1 ”'0 l.deilc f i ; mi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.