Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Blaðsíða 32
J~* J* ^ j t ílj)A í 0 t Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. w* q ^íai |STOFNAÐ1910] 690710 111117' • Fyrir helgi var mikið v' rætt um að Sigurjón Sighvatsson og Bjöm Steinbekk ætluðu að stofna sjónvarpsstöð sem næði til allra Norðurlandanna. Stöðin á að heita Big TV. Eitt þeirra fyrsta verk hlýtur að vera að tryggja stöðinni vefslóðir, því nú er enginn búinn að festa sér vefsetur fyrir stöðina sem á að notast við miðlun á netinu... • Þá er líka spurt hvort áætlanirnar um afþreyingarsjónvarp fyrir unga fólkið á Norðurlöndunum bitni á áformum Björns, sem ásamt Ingvari Sverrissyni, Kára Sturlusyni og Gunnlaugi Þráinssyni stefnir að því að fá MTV til að veita tónlistar- verðlaun sín á íslandi. Það virðist nefnilega einkum vera MTV sem þarf að óttast samkeppni frá nýju Keflvíkingap í Amazing Race Vel í glnsi nn nkki sknkkir „Það kemur fyrir að það er fjör í Keflavík," segir Eyþór Árni Úlfars- son, einn af Keflvíkingunum kátu sem keppendur í Amazing Race hittu fyrir á ferð sinni um ísland. „Það er alls ekki óalgengt að tjúttið standi lengi hér í Keflavík enda eru nokkrir skemmtistaðir opnir fram undir morgun." Eyþór var með vini sínum og tveimur stelpum úti á götu í miðbæ Keflavíkur milli sjö og átta að morgni þegar Amazing Race-kepp- endurnir birtust. Þau voru að koma úr afmælisveislu í heimahúsi þar sem glatt var á hjalla. „Fólkið spurði okkur til vegar. Fyrst spurði það okkur hvar fossarnir væru. Við vissum ekkert hvað þau voru að tala um enda lítið um fossa á Suður- nesjunum. Svo fóru þau að reyna að bera fram Seljalandsfoss sem olli miklum misskilningi. En þau fundu svo fleira fólk, sem var nú reyndar líka á tjúttinu, og fékk réttar leið- beiningar þar.“ Þótti keppendunum í Amazing Race furðulegt að hitta fyrir skemmtanaglatt fólk svo snemma morguns. A heimasíðu Amazing Race segir einn áhorfenda sem hef- ur heimsótt landið að svona skemmti íslendingar sér; maður geti átt von á því að hitta fólk á tjúttinu alla tíma sólarhringsins. Eyþór segir þau hafa verið í miklu stuði en er ekki sáttur við að- dróttanir bandarísku keppendanna um ástand hópsins. „Ég sá í þættin- um að fólkið var að minnast á að við værum skökk. Við vorum það ekki, ég er á móti kannabisefnum og finnst slíkt vera asnalegt. Við vorum hins vegar vel í glasi." Eyþór er ekki viss um að atriðið hafi verið góð landkynning. „Ég veit nú ekki hvort það er jákvætt að sýna fullt fólk niðri í bæ. Kiefer Suther- land var nú að tala um það í Letter- man hvað íslendingum fyndist gaman að skemmta sér. Svona er þetta bara hér á íslandi," segir hann. Það leynir sér ekki að áhorfið á íslenska Amazing Race-þáttinn var gríðarlegt. „Ég tók eftir því þegar ég fór í Smáralindina að fólk var að gefa mér auga. Var eins og það væri að rifja upp hvar það hefði séð mig." EyþórÁrni Úlfarsson. Varmeð hópi Kefvikinga sem Amazing Race- keppendur spurðu til vegar. Eyþór segir algengt að fjörið i Keflavík standi fram undir morgun. T* Orkuveitan á Palace Sífellt fleiri skemmtistaðir hafa tekið upp þann sið að birta ljós- myndir frá helgarskemmtunum á heimasíðu sinni. Enginn þeirra sýn- ir þó eins mikið af gestum sínum og kastalinn Palace við Hafnarstræti á heimasíðu sinni palace.is. Svo virðist sem mikill dans og talsverður hiti geri það að verkum að æ fleiri kjósa að dansa án fata að ofan. Svo var að minnsta kosti að sjá af myndum sem teknar voru á staðnum um liðna helgi, líkt og þeim fyrri. Staðurinn er til húsa í Hafnar- strætinu í einu af gömlu húsum miðbæjarins, frá 1875 eða svo, og þar dansa nú ungir sem gamlir allar helgar við dúndrandi danstónlist. græðir vel Sjáðu sætu... Leiða má likur að þviað mik- ill hiti hafi orðið til þess að þessi unga dama kaus að bera brjóst sin - likt og fleiri stöllur hennar - á skemmtistaðnum De Palace þessa helgina. Alfreð og Orkuveitan gleðst væntanlega en feministar siður. Sagt er frá því á heimasíðu staðarins að plötusnúðar helgarinnar hafi ver- ið þeir DJ DHD og DJ Extreme og er í auglýsingu sérstaklega tekið fram að hvorugt kvöldanna yrði fyrir viðkvæma. Kálfurinn Villimey kominn úr útlegð á fjöllum „Hún er komin í hús og er nokk- uð hress bara,“ segir Ragnar Þor- steinsson, bóndi í Sýrnesi í Aðaldal. Ragnar hafði frá í haust gert árangurslausar tilraunir til að koma í hús ársgömlum kálfi sem hafði kom- ist á fjall og ekki viljað aftur í hús. „Hún komst í trjálendi hérna á Fljótsheiðinni og var svo stygg að það var vonlaust að ná henni," segir bóndinn sem naut aðstoðar björg- unarsveitarmanna við að koma heyi til kálfsins sem lét ekki sjá sig við heyið fyrr en leitarmenn voru á bak og burt. Það var því ekki fyrr en í síðustu viku sem tókst að ná böndum á kálfinn, sem nágrannar Ragnars hafa gefið nafnið Villimey. Hún dvelur því nú í fjósi á bænum og hef- ur að sögn Ragnars sýnt litla tilburði til frekara stroks. „Nei, við skulum Kýrskýr á fjöllum Ársgömul kviga strauk á fjöll ihaust og gerði Fljótsheiðina og kjarrið þar að heimili sinu. Kálfurinn á myndinni tengist ekki efni greinarinnar - að öðru leyti en því að hann er kálfur. vona að hún finni sig í fjósinu núna, að minnsta út veturinn, “ segir bónd- inn á Sýrnesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.