Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Qupperneq 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 17.JANÚAR2005 21
Steelers og
Falcons
áfram
Pittsburgh Steelers tryggði sér
sæti í úrslitaleik Ameríkudeild-
arinnar í ameríska fótboltanum
aðfaranótt sunnudags en liðið bar
sigurorð af New York Jets, 20-17,
eftir framlengingu. Doug Brien,
sparkari Jets, fékk tvö guilin
tækifæri til að tryggja sínum
mönnum sigur en brást bogalistin
í bæði skiptin. Pittsburgh hefur
nú unnið fimmtán leiki í röð á
tímabiiinu en liðið vann fimmtán
af sextán leikjum sínum í
deildarkeppninni. Lið Pittsburgh
mætir annað hvort meisturum
tveggja síðustu ára, New England
Patriots, eða Indianapolis Colts,
með leikstjómandann frábæra,
Payton Manning innanborðs, í
úrslitum en leikur þessara liða í
gærkvöld var ekki hafinn þegar
DV fór í prentun. Adanta Falcons
er komið í úrslit Þjóðardeildar-
innar eftir að hafa níllað yfir St
Louis Rams, 47-17, í leik liðanna í
fyrrinótt Michael Vick, leik-
stjómandi Falcons, fór fyrir
sínum mönnum en hann gerði
sér lítið fyrir og hljóp rúmlega 100
metra með boltann í leiknum
Falcons mætir annað hvort
Philadelphia Eagels eða
Minnesota \fikings í úrslitum
Þjóðardeildarinnar en leik þeirra
var ekki lokið þegar DV fór í
prentun.
Hinn árlegi Stjörnuleikur í karla- og kvennaflokki í körfubolta fór fram í
Valsheimilinu á laugardaginn. Mikið var um dýrðir, frábær tilþrif sáust og voru
leikirnir góð auglýsing fyrir körfuboltann.
plifton Cook bestur
Utlendingarnir unnu
Hinn árlegi stjörnuleikur Körfuknattleikssambands íslands fór
fram í Valsheimilinu í gær. Þar mættust úrvalslið íslenskra og
erlendra leikmanna. Nokkrir leikmenn kepptu í þriggja stiga
skotkeppni fyrir leik og boðið var upp á troðslukeppni í hálfleik.
Leikurinn var mjög dæmigerður
af stjörnuleik að vera; lítið um varn-
ir, mikið af troðslum og ennþá meira
af mistökum. Eftir aðeins fáeinar
sekúndur gaf að líta „alley-oop"-
troðslu frá Anthony Glover eftir
sendingu frá Clifton Cook en sá
síðarnefndi hélt áhorfendum við
efnið - sprellið aldrei langt undan.
Þá var einnig gaman að fylgjast
með samherjum kljást sfn á milli og
t.d. tróð Nick Bradford með tilþrif-
um yfir félaga sinn, Gunnar Einars-
son, hjá Keflavík.
Leikmenn voru léttíeikinn upp-
málaður og h'tið um áreynslu, sér-
staklega varnarmegin á vellinum.
Fjölmörg ótímabær skot, ævintýra-
legar sendingartilraunir og þar fram
eftir götunum. Prýðisskemmtun í
smástund en ekki þegar á leið. Eftir
fýrsta fjórðung var staðan 37-28
erlenda hðinu í vil en staðan í hálf-
leik var 76-55.
Lætin héldu áfram í seinni hálf-
leik; troðslur, þriggja stiga körfur og
fleira, og lokatölur urðu 134-113,
erlenda liðinu í vil. Þegar upp var
staðið var þetta fullmikið af hinu
Ísland-Erlendir 134-113
Stig íslands: Sigurður Þorvalds-
son 22 01 frák.), Páll Axel Vil-
bergsson 19 (10 stoðs.), Gunnar
Einarsson 19, Friðrik Stefánsson
13, Magnús Þór Gunnarsson 9,
Eiríkur Önundarson 8, Svavar
Birgisson 7, Lárus Jónsson 6,
Hjalti Vilhjálmsson 4, Egill
Jónasson 4, Sævar Haraldsson 2
(lOstoðs.).
Stigahaestir Eriendra: Chris
Woods 29, Clifton Cook 20,
joshua Helm 13, Darrel Lewis
13, Grant Davis 13.
góða, sem er alveg í takt við stjörnu-
leiki annars staðar í veröldinni og ef-
laust fínasta skemmtun fýrir fólk
sem hefur gaman af þannig körfu-
bolta. Hins vegar er það nokkuð sem
þreytir augað á svipstundu, saman-
ber And-1 körfuboltamyndböndin
þar sem menn eru ekkert nema
tilþrifin en eru ófærir um að taka
sniðskot með vinstri hendi.
Tilþrifin voru mörg og erfitt að
finna eitt atvik sem stóð upp úr í
leiknum. Hjalti Vilhjálmsson, Fjöln-
ismaður, átti glæsilega vörslu á
Darrel Lewis hjá Grindavík, sem var
sérstaklega minnisstæð.
Glover troðslukóngur
Troðslukeppni leikmanna fór
ffarn í hálfleik stjörnuleiks Körfu-
knattíeikssambands fslands í Vals-
heimilinu í gær. Nick Bradford og
Anthony Glover frá Keflavík, John
Waher úr Haukum, Cliris Woods úr
Hamri/Selfossi, Matthías Ásgeirsson
og Richard Pryor úr Val, Sigurður
Þorvaldsson úr Snæfelli og Clifton
Cook úr Skallagrími kepptu um titil-
inn eftirsótta.
Það var hins vegar Anthony
Glover sem stóð uppi sem sigurveg-
ari. Hann notaði ýmis hjálpartæki í
troðslunum og fékk Clifton Cook
þann vafasama heiður að sitja í stól
meðan Glover stökk yfir hann og
tróð. Einnig fékk hann þrjú ung-
menni til að standa í hnapp náiægt
körfunni og náði hann að stökkva
yfir þau og troða. Fékk hann fullt
hús stiga frá dómnefndinni og vann
keppnina.
Magnús hittnastur
A milli Stjömuleikjanna fór fram
þriggja stiga skotkeppnin og líkt og í
troðslukeppninni var það Keflvík-
ingur sem stóð uppi sem sigur-
vegari. Magnús Þór Gunnarsson
Cook bestur Clifton Cook, hinn bandariski leikstjórnandi Skallagrims, fór fyrir úrvalsliði
ertendra leikmanna i Stjörnuleiknum og var valinn maður leiksins. DV-mynd Stefán
vann keppnina þrátt fyrir að fá það
erfiða hlutverk að skjóta fyrstur.
Magnús fékk 13 stig og þótt níu aðrir
reyndu sig á eftir honum tókst
engum að jafna árangur hans. Matt
Sayman úr Njarðvík var næstur því,
hann fékk 12 stig en síðasta skot
hans sem fór rétta leið og hefði
tryggt honum sigurinn, kom eftir að
tíminn rann út og var því dæmt
ógilt. John Waller úr Haukum varð
þriðji með 11 stig og fjórði var síðan
Baldur Ingi Jónasson úr KFÍ með 10
stig.
Ísland-Úrvalslið 62-83
Stigahaestar hjá fslandi: Birna
Valgarðsdóttir 10, Signý Her-
mannsdóttir 8, Rannveig Rand-
versdóttir 7, Þórunn Bjarna-
dóttir 7, Bryndís Guðmunds-
dóttir 6.
Stlgahæstar hjá úrvalsliði:
Ebony Shaw 22, Jerica Watson
20 (10 frák.), Myriah Spence 12,
Anna María Sveinsdóttir 9, Vera
Janjic 8.
Stjörnuleikur kvenna fór fram í fyrsta sinn á laugardaginn
Úrvalsliðiðvann landsliðið
Úrvalslið Sverris Þórs Sverris-
sonar vann 21 stigs sigur á kvenna-
landsliðinu, 83-62, í Stjömuleik
kvenna sem fram fór í Valsheim-
ilinu á Hlíöarenda. íslensku stelp-
umar héldu f við þær erlendu í
fyrsta leikhluta en eftir það var
leikurinn í ömggum höndum
úrvalsliðsins.
Þetta var £ fyrsta sinn sem KKÍ
stóð fyrir stjömuleik kvenna en f
fyrra fór fram fyrsti slflá leikurinn
fyrir stelpumar þegar ÍR-ingar settu
á laggimar Stelpuslag með góðum
árangri.
Vera Janjic úr Njarðvík var
valinn besti leikmaöur kvenna-
leiksins en hún var með 8 stig, 5
stoðsendingar og 5 fráköst á þeim
24 mínútum sem hún spilaðL Janjic
átti mörg af bestu tílþrfium leiksins
en hún fékk þó mikla hjálp frá þeim
Jaime Woudstra, Ebony Shaw og
Jericu Watson sem allar áttu góðan
leik Ifkt og Anna María Sveinsdóttir
sem hefúr lagt landsliðsskóna á
hilluna og spilaði því með úrvals-
liðinu f gær.
Shaw skoraði 14 af 22 stigum
sfnum f fjórða leikhluta en Watson
var með 20 stig og 10 fráköst á þeim
23 mínútum sem hún sptíaðL Þá var
Woudstra með 11 fráköst og 4
stoðsendingar auk 6 stiga.
Bima Valgarðsdóttir var stiga-
hæst hjá fslenska landsliðinu með
10 stig en Signý Hermannsdóttir var
með 8 stig og 6 fráköst. Þá skomðu
þær Rannveig Randversdóttir og
Þórunn Bjamadóttir sjö stig hvor.
íslenska landsliðið lék án Helenu
Sverrisdóttur, sem var að skoða
aðstæður hjá bandarískum háskóla
um þessa helgi.
Bima hitti best
Bima Valgarðsdóttir úr Keflavfk
vann þriggja stiga skotkeppnina hjá
konunum, fékk alls 13 stig, tveimur
stigum meira en félagi hennar f
Keflavfkurliðinu, Anna María
Sveinsdóttir.
Þær Alda Leif Jónsdóttir úr ÍS og
Sólveig Gunnlaugsdóttir úr Grinda-
vík vom síðan jafnar f þriðja sætinu
með tíu stig hvor.