Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Qupperneq 29
r
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 29
DV Sjónvarp
Leikkonan Hilary Swank segist
hafa steftit lífi sínu í hættu fyrir hlut-
verk í boxmyndinni Million Dollar
Baby. Leikkonan var illa haldin af
blóðeitrun, eftir að hafa æft eins og
brjálæðingur fyrir myndina. Hún
segist hafa lagt einstaklega mikið á
sig svo leikstjórinn, Clint Eastwood,
myndi ekki missa trúna á henni. „Ég
fékk eitrunina eftir að hafa kreist
bólur á baðherberginu mínu. Eftir
stuttan tíma var allur fóturinn minn
eldrauður og ég gat ekki gengið,"
sagði Hilary og bætti við að sam-
kvæmt lækni, hefði hún dáið ef sýk-
ingin hefði komist í hjartað. „Ég vildi
ekki að Eastwood héldi að ég væri
ekki nógu góð fyrir hlutverkið. Ég er
ekkert sérstaklega sterkbyggð og
hafði lagt svo mikið á mig til að
byggja upp massa og vildi ekki
klúðra málunum núna.“ Fyrir utan
alla líkamsræktina borðaði leikkon-
an 4000 kaloríur á dag og vaknaöi
meira að segja upp á nóttunni til að
fá sér skammt af fæðubótarefnum.
Hvað vetstu
um Stellu
McCartney?
Taktu prófið _
1. Hvaða hönnuði hjálpaði Stella
þegar hún var 15 ára?
a. Jean Paul Gaultier
b. Christian Lacroix
c. Karl Lagerfeld
d. Yves St Laurent
2. Fyrir hvaða poppstjörnu hannaði
Stella brúðarkjól árið 2000?
a. Jennifer Lopez
b. Madonnu
c. BritneySpears
d. Whitney Houston
3. Hvaða fatahönnuður varð at-
vinnulaus, er Stella varð aðal hönn-
uðurinn hjá tískuhúsinu Chloe árið
1997?
o. Karl Lagerfeld
b. Phoebe Philo
c. Tom Ford
d. Kenneth Cole
4. Fyrir hvaða merki er Stella að
hanna íþróttaskó handa konum?
a. Adidas
b. Nike
c. Reebok
d. Wilson
5. (hvaða mynd, sem kom út á síð-
asta ári, hannaði Stella búningana?
o. BridgetJones:The Edge OfReason
b. Alfie
c. Collateral
d. Sky Captain And The World Of
Tomorrow
6. Hvenaer kom hennar eigin Ifna
út?
a. Veturinn 2002
b. Vorið 2002
c. Sumarið 2002
d. Haustið 2002
7. A hvaða hjálparsamtökum hefur
Stella sérstakan áhuga?
a. People For The Ethical Treatment
OfAnimals (PeTA)
b. Dian Fossey Gorilla Fund
International
c. Land Mine Survivorís Network
d. Greenpeace
8. Hverjum giftist hún árið 2003?
a. Royston Langdon
b. Lenny Kravitz
cAlasdhairWillis
d.DominicDeSole
SHIIM J<otipsoiv s (V13d) spuiiuy
JO IU3UJ103J1 lOMpg 3g± JOJ 3ld03d
í ZOOZ OPOA •9 mojjoíuojjo p/JOM ei/l
pu\y u/otdoo Áys 'S sopipv -p piajjaBoj
/joy •£ nuuopoyj z xiojjoj uoijsuiq •/
Metpomenn vilja
alvöru konur
„Já, hlæðu bara, helvítið þitt,“
sagði Mensi og horfði á mig með
manndrápsaugnaráði þegar hann
sá að ég var að draga hann á enn
aðra rómantíska gamanmynd.
Einhvern veginn lendir það alltaf
á honum að koma með mér á
rómantískar gamanmyndir. Mér
var þó ekki hlátur í huga þegar
myndinni lauk, enda hvorki róm-
antísk né gamanmynd.
Fyrir hverja Saddest Music in
the World sem maður loks finnur,
þarf maður að kyssa heilan djöful-
dóm af Jude Law. Jude reynir hér
að feta í fótspor Michael Caine
sem flagarinn Alfie. Ekki er þó
hægt að segja að það gangi vel.
Caine stjórnaði fótboltaliði með
Pele og Sly Stallone í Escape to
Victory og barði breska smá-
krimma í Get Carter. Maður vill að
hann fái á broddinn. Það sama er
ekki hægt að segja um Law, sem
hefur helst unnið það sér til afreka
að vera kynlífsvélmenni í Artificial
Intelligence. Ekki það að maður
láti hann fara í taugarnar á sér,
það er frekar að manni standi á
sama. Enda myndin hvorki glæpa-
né íþróttamynd.
Jude er Metromaður dauðans,
gengur um í bleikum skyrtum og
les Vogue fyrir karlmenn. Hann er
límmósínubflstjóri sem serðir
eldri og heldri konur í aftursæt-
inu, stendur stundum og stund-
um ekki og enn stendur manni á
sama. Það er helst gaman að sjá
hina 58 ára Susan Sarandon, sem
maður varð fyrst skotinn í í
Witches of Eastwick fyrir næstum
20 árum síðan, hina fertugu
Marisu Tomei sem maður varð
fyrst skotinn í í My Cousin Vinnie
fyrir rúmum 15 árum síðan og
hina 35 ára gömlu Jane Krakowski
sem maður varð fyrst skotinn í í
Alfie
Sýnd i Sambióunum og Há-
skólabiói. Leikstjóri: Charles
Shyer. Aðalhlutverk: Jude
Law, Susan Sarandon og
Marisa Tomei. Handrit:
Bill Naughton, Elaine
Pope og Charles Shyer
★ ★
Valur fór í bíó
Ally McBeal fyrir næstum 10 árum
síðan, allar glæsilegar eins og
endranær. Eftir allt barnaklámið
undanfarin misseri, er léttir að fá
loks að sjá konur á besta aldri í
bíó. Að sjálfsögðu heillast
metromaðurinn af alvörukonum,
sem eiga þó sumar hverjar erfitt
með að taka hann alvarlega, enda
myndin hvorki klám né drama.
Það má helst túlka hana sem
örvæntingafulla tilraun framleið-
andans Mick Jagger til að eiga eitt
lokahitt um ævina, enda ekki
komist nálægt topp tíu-listum
síðan Start Me Up árið 1981. Og
hví ekki að gera mynd sem er
kannski fyrir börn og unglinga,
endurgerð á ræmu frá 1966 þegar
Mick Jagger var kynþokkafyllsti
maður í heimi og var að gefa út lög
eins og Paint It Black og Under My
Thumb. Þá var nú gaman að lifa.
En lög hans bæta litlu við mynd-
ina, og hann forðast freistinguna
að koma sjálfur fram, þrátt fyrir að
hafa nýlega átt góðan leik sem
öldruð karlhóra ásamt Andy
Garcia í The Man From Elysian
Fields. En það er ólíklegt að hann
skori hitt hér, enda myndin hvorki
unglinga- né fullorðinsmynd.
Og Alfie ráfar um New York,
þar sem myndavélarnar sveima
um þau háhýsi sem enn standa og
reyna að festa á filmu Sex and the
City fyrir metromenn, en myndin
er þó hvorki fyrir metromenn né
konur. Greyið hann Alfie er eitt-
hvað óánægður með lífið og til-
veruna, án þess að gera mikið til
að breyta ástandinu og því breyt-
ist lítið hjá honum frá byrjun til
enda í mynd, sem er hvorki vond
né góð.
Valur Gunnaisson
Leikkonan Hilary Swank lagði of hart að
sér til að sanna sig fyrir Clint Eastwood
Lagöi líf sitt að veði
Hilary Swank Fyrir
utan alla líkamsrækt-
ina borðaði leikkon-
an 4000 kaloriur á
dag og vaknaði
meira að segja upp á
nóttunni til aö fá sér
skammt affæðubót-
arefnum.
Stjörnuspá
Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, er 57
ára í dag. „Innri þrá mannsins birtist
heit hérna og hún gagntekur vitund
hans í jákvæðum skilningi og þar með
bægir hann frá mótstöðunni og því
_ hrjúfa úr sálarkjarnanum. Hann
getur treyst því að kjarni hans
talar til hans og vísar hjartanu
í rétta átt, því hugur hans er í
ótta sínum stjórnsamur og
. einmitt þá fer dýpra eðlið
[að hvísla sannleikanum,"
^segir í stjörnuspánni
ihans.
Davíð Oddsson
\A, Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.)
v ■
Til þess að finna, upplifa og nýta
kraftinn sem býr innra með þér, þarft þú að
viðurkenna þig eins og þú ert núna. Leyfðu
þér að viðurkenna alla gallana og litlu
leyndarmálin sem þú óttast. Ekki hika við að
segja upphátt: Þetta er allt í lagi, og reyndu
að sætta þig við sjálfa/n þig.
F\skm\( (19Jebr.-20.mars)
Þó þú standir örlítið betur að
vígi þessa dagana, er ekki þar með sagt að
þú þurfir alltaf að færa það þér í nyt. Þú
ert einnig minnt/ur á að gleðin býr innra
með þér.
H
T
Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Hér stendur hrúturinn í samn-
ingaviðræðum á einhvern hátt. Þú ert ef-
laust meðvituð/meðvitaður um að allir
samningar byggja á aðal- og aukaatriðum
og þú virðist þurfa að útkljá öll mál. Það er
kaldhæðnislegt að það eru oft á tíðum
minnstu smáatriðin sem geta komið í veg
fyrir gott samkomulag.
ö
Nautið (20. apríl-20. mai)
II
Hér hugar þú að fortíðinni ef
marka má stjörnu þína. Þú virðist hafa það á
tilfinningunni að þú hafir jafnvel verið yfir-
gefin/n eða vanrækt/ur. Ekki leyfa þessum
neikvæðu tilfinningum að draga þig niður.
Mundu að vængir vaxa á fuglunum, svo
þeir verði færir um að fljúga á eigin vegum.
Þér er ráðlagt að horfa stöðugt fram á veg-
inn og hætta að líta stöðugt í bakspegilinn.
Wlbmm (21.mal-21.júnl)
Hér kemur fram að þú hefur til-
hneigingu til að missa sjónar af tilgangi til-
veru þinnar. Þú ert án efa yfirburðamann-
eskja sem státar af afburðahæfileikum. Sér-
staða þín er kostur.
faM'm(22.júni-22.júli)
Þú ert fær um að lýsa viðfangs-
efni sem þú tekst á við hverju sinni í einni
málsgrein, þegar aðrir þurfa tvær eða þrjár
síður og þar felst kostur þinn vissulega. Þú
hefur náð valdi á því að deila með öðrum
en gleymir oft á tíðum að nota kosti þína
sem felast í fyrrnefndri færni þinni.
Ljóniðpi .júli-22.ógúst)
Hér er minnst á mikið stolt í fari
þínu. Stoltið er ekki óvinur þinn, kæra Ijón.
Þú veist jú að þeir sem kenna stolts, hafa
áðurfundið fyrir niðurlægingunni.
n
Meyjan 0. ágúst-22. septj
Hérfærðu útrás. Tilfinningar
meyjunnar ólga þessa dagana og vikuna
framundan og þú ættir að fagna því. Því
þegar þú ert óyfirveguð/-vegaður, þá opn-
ast hjarta þitt líka.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Að vilja eitthvað táknar ekki
græðgi, kæra vog. Þú getur fengið allt sem
þú þráir á veraldlega sviðinu en gleymdu
fyrir alla muni ekki að gefa af þér af heil-
indum.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Mikil alvara þjónar alls engum til-
gangi. Kjánaskapur og gamanið sem fylgir
því að láta eins og smábarn eru guðdóm-
iegir eiginleikar og af einhverjum ástæðum
ert þú sérstaklega minnt/ur á það í dag.
Gleymdu ekki barninu sem býr innra með
þér og leyfðu þér að hlæja oftar.
/
Bogmaðurinn (22.ndv.-21.daj
Fastheldni á vel við bogmann um
þessar mundir. Það er alls ekkert athuga-
vert við fastheldni ef hún setur þér ekki
skorður.
Steingeitin0.tfH.-r9.jiMj
Hér setur þú reglurnar sjálf/ur,
minntu þig reglulega á það. Hvernig sem
þú ferð að þvi, þá er þér á óskiljanlegan hátt
eðlilegt að draga að þér jákvæða athygli því
útgeislun þín er áberandi öflug vikuna sem
erframundan.
SPÁMAÐUR.IS
1