Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2005, Side 31
DV Síðast en ekki síst
MÁNUDAGUR 17.JANÚAR2005 31
Halldór gegn Alfreð
í síðustu viku héldu Framsóknar-
menn í Reykjavík uppi mikilli
skemmtidagskrá í fjölmiðlum. Yfir-
lýsingar, stóryrði og persónulegar
árásir blossuðu upp úr nánast engu
uns allur Framsóknarflokkurinn í
Reykjavík nánast logaði stafnanna á
milli.
Spilltur eiginhagsmunasegg-
ur
Fyrstur steig fram á sviðið Gestur
Kr. Gestsson formaður Framsóknar-
félagsins í Reykjavík norður. Gestur
er fremsti fótgönguliði Halldórs Ás-
grímssonar og vart hægt að líta á
hann öðruvísi en byssu sem Halldór
miðar og heldur um gikkinn á. Byss-
unni var miðað á Alfreð Þorsteins-
son og síðan hófst stórskotahríðin.
Alfreð hugsaði einungis um eigin
hag og makaði krókinn hjá Orku-
veitunni, en léti hagsmuni heildar-
innar og þá alveg sérstaklega Fram-
sóknarflokksins lönd og leið.
Gestur gerði að vísu í brókina
samdægurs, þegar hann aðspurður
gat ekki nefnt neitt einstakt dæmi
um meinta fyrirlitningu Alfreðs á
hagsmunum annarra en sinna eigin.
Þetta virdst meira spurning um Al-
fredó hinn spillta, hina demónísku
og undirförlu ffgúru sem Sjálf-
stæðisflokkurinn elskar að hata og
hefur nú í áróðri sínum gert að yfir-
borgarstjóra í Reykjavík. Alfreð Þor-
steinsson er sem sagt svo gegnum-
sýrður af spillingu og eiginhags-
munabröltí að ekki er hægt að
greina hið sértæka frá hinu al-
menna. Það virðist, ef ég skil Gest
Kjallari
rétt, duga að benda á manninn og
þá sjá menn hið augljósa.
Fylgishrun Framsóknar
I raun snýst þó málið ekki um
persónu Alfreðs, heldur um það
hver beri ábyrgðina á fylgishruni
Framsóknarflokksins í Reykjavík. í
síðustu skoðanakönnun mældist
flokkurinn með minna fylgi en
frjálslyndir og nú vill Halldór Ás-
grímsson fyrir alla muni að Alfreð
Þorsteinsson taki á sig sökina. Mis-
tökum Halldórs sjálfs - ekki síst
íraksmálið og fjölmiðlamálið - óvin-
sældum ríkisstjórnarinnar eða held-
ur sofandalegri frammistöðu í for-
sætísráðuneytinu má ekki blanda
inn í þetta mál. Hið lævísa glott
stjórnarformanns Orkuveitunnar er
undirrót alls ills sem hent getur
Framsóknarflokkinn!
Fjandsamleg yfirtaka?
Ekki stóð á svörunum hjá Alfreð,
sem voru með því fýndnara sem sést
hefur í stjórnmálum um langa hríð.
Hvítasunnusöfnuðurinn stjórnar
ekki Framsóknarflokknum! Allir
aðrir en innvígðir Framsóknarmenn
urðu forviða við þennan málflutn-
ing, enda kannaðist enginn við að
um það væri deilt. Málið er þó dá-
lítið flóknara.
Gestur er hvítasunnumaður og ef
haft er í huga hversu veikburða
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík
er, þá er augljóst að vel skipulagður
hópur hvítasunnumanna getur auð-
veldlega tekið hann yfir. Alfreð var
því að grafa skotgrafirnar þar sem
honum hentaði; gróið Framsóknar-
fólk gegn yfirtökulýðnum sem
smalað væri á flokksfundi eða próf-
kjör. I raun má segja að Framsókn-
arflokkurinn í Reykjavík sé afar
freistandi til fjandsamlegrar yfir-
töku.
Valdaþreyta
í vikunni heyrðust einnig þær
raddir Framsóknarmanna sem
hældu Alfreð fyrir gott starf, en töldu
að nú væri kominn tími til að hætta
eftir 35 ár í borgarmálum. Alfreð
svaraði kurteislega með því að
benda á að hann hefði ekki starfað
að stjórnmálum lengur en Halldór
Ásgrímsson og ekki væri flokksfólk
að krefjast þess að hann hætti. Það
má nærri geta að Halldóri og hans
klíku hefur sviðið þessi athugasemd.
Enda þótt Alfreð hafi einungis litið á
þetta sem málsvörn fyrir sig, þá
bendir hún á stærsta vandamál
Halldórs: valdaþreytu eftir langan
stjórnmálaferil og ráðherradóm. Ef
Alfreð er þreyttur, hvað á þá að segja
um Halldór?
Upphitun
Deilurnar í Framsókn snúast um
meira en Alfreð og Orkuveituna. Þær
snúast einnig um Halldór Ásgríms-
son, stefnu hans og stjórnunarstíl og
hvaða ábyrgð hann beri á minnk-
andi fylgi flokksins. Síðast en ekki
síst verður deilt um Reykjavíkurlist-
ann. Skemmtidagskrá Framsóknar-
flokksins síðustu vikuna var því vart
annað en upphitun fyrir hasarinn
næsta árið.
„íraun má segja að Framsóknarflokkurinn í
Reykjavík sé afar freistandi til fjandsamlegrar
yfirtöku."
Ríkisstjórnin magnar spillinguna
Einar Sigfússon skrifar
Þar sem ég er öryrki og niður-
setningur á heimili mínu og sveitar-
félagið mitt hefur lagalega ábyrgð á
framfærslu minni til nauðþurfta, hef
ég þráleitað skriflega til þess ásamt
því að ganga á fund æðstu manna
stjórnsýslunnar þar, varðandi það
að fá aðstoð til þess að geta lifað
mannsæmandi lífi í þessu samfélagi.
Lesendur
Þau málefni voru til umræðu á átta
bæjarráðsfundum án þess að ég
fengi nokkra fyrirgreiðslu. Ég hef
krafið þá um að fella niður fast-
eignagjöldin af húsadraslinu á jörð
minni, sem ég varð að hætta búskap
á fyrir mörgum árum vegna van-
heilsu og hefur sveitarstjórnin eftir
það féflett konuna mína sem aðeins
hefur getað unnið hlutastarf sökum
heilsu sinnar.Hefur hún ekki haft
neinn afgang til að borga fasteigna-
gjöld fyrir mig og átt nóg með að
framfleyta sjálfri sér. Enda hefur
verið sýnt ffarn á það með hæsta-
réttardómum að ríldð eigi að sjá fyrir
öryrkjum en ekki makar þeirra.
Eftir hæstaréttardóma þá um að
ekki megi m'ðast á mökum öryrkja
og láta þá sjá fyrir þeim, ásamt
þriggja ára rannsókn félagsfræð-
ingsins Hörpu Njáls um fátækt á ís-
landi, þar sem hún sýndi glögglega
fram á það að niðursetninga þjóðar-
innar vantaði 40% upp á að ríkið
skaffaði þeim lágmarksaura til
nauðþurfta, neitaði ég að láta konu
mína borga fasteignagjöldin lengur
fyrir mig, eftir að hafa þrautreynt að
fá sveitarfélagið til þess að hætta að
brjóta á mannréttindum mínum á
siðlausan hátt.
En auðvitað eru flest öll vand-
ræði fólksins sprottin af ólögum
brjálaðra stjórnmálamanna í
áraraðir. Þeir þykjast bara góðir á
meðan þeir fá að skammta sjálfum
sér margfalt kaup láglaunamanna,
hversu óvinnufær ómenni sem þeir
annars eru sjálfir. Þessa einkunn vil
ég alla vega gefa meirihluta þeirra
sem starfar á Álþingi núna og líta svo
stórt á sig að þeir telja sig alveg
hafna yfir alla gagnrýni.
Svo er verið að spauga með skít-
legt eðli!!! Háttvirtur fjármálaráð-
herrann virðist tekinn að undirbúa
innkomu sína í formannsstól Sjálf-
stæðisflokksins með ruddalegri
ósvífni sinni í ræðustóli Alþingis að
mínu viti. Alla vega hef ég ekki séð
neitt verra í sjónvarpinu mínu til
langs tíma og hefur hann auk alls
annars neitað því að ríkisstjórnin
hafi vitað hvað hún var að gera í
sínum manméttindaafbrotamálum.
Trúi ég því að ósvífni hans eigi að
virka sem aðgöngumiði að for-
mannssæti Sjálfstæðisflokksins,
sem sporgöngumanns fyrri for-
manns í níðherferð gegn öllum
þeim sem minnst mega sín í land-
inu. Eftir að hafa séð innum dauð-
ans dyr og sloppið, trúlegast að ég
tel fyrir það eina að enginn vildi taka
við honum, er sá nauða grófi fantur
orðinn svo bljúgur að hann leggur
nú til að féð úr sölu Landsímans
verði látíð renna í sjúkrahús.
Góður!!! Hafið þið heyrt hann betri!!!
Hann hefði þurft að lenda í hjólastól
líka og verða öryrki svo að hann
fengi loks vilja tfl þess að gera eitt-
hvað tO úrbóta fyrfr þá.
Ég skora enn einu sinni á Alþingi
að taka sig á og lagfæra öll siðlaus
ólög sem eru í gOdi og stangast á við
gengna hæstaréttardóma eins og
þetta sem ég fjalla um hér og fleira
með sama hætti, sem ég hef sent tO
þeirra og fjallað um áður!!!
Það er á ábyrgð stjórnvalda að
menn vinni sín skyldustörf jafnt fyrir
alla þegna landsins. En virðingar-
leysið við almenna borgara virðist
mér vera algjört svo að ég tali nú
ekki um sjúklinga. Ríkisstjórnin
gengur fýrir í spOlingunni og
magnar hana upp með vondu for-
dæmi eins og tO dæmis að neita að
virða stjórnarskrána jafnt sem
hæstaréttardóma og hefur alla vega
komist upp með það hingað tíl, án
þess að nokkuð réðist við það.
Með gagnstæöri vkðingu!!!
Einar Sigfússon Skálateigi 2
Ath. BréfEinars hefur veriö stytt.
Krossgátuverðlaun aldrei út á land
Kona utan af landi hringdi
„Mig langar að koma dálitlu á
framfæri við þá sem sjá um kross-
gátuna á Dagblaðinu. Ég hef fylgst
með og tekið þátt í krossgátunni
aflt frá því blaðið gekk í endurnýjun
lífdaga. Við höfum ekki orðið vör
við það að nokkur lifandi maður úti
á landi hafi fengið verðlaun fyrir
þessa krossgátu, þetta er allt á
Reykjavíkursvæðinu. Erum við ekki
með í dæminu hérna útí á landi?
Það er ekki bara ég sem er að spyrja
að þessu, það er fleiri að tala um
þetta.“
Ritstjóm DV vfll taka fram að
dregið er úr öllum réttum lausnum
á verðlaunakrossgáttmni sem ber-
ast blaðinu. Hending ein ræður því
hver hlýtur verðlaunin.
Sandkorn
með Kristjáni Guy Burgess
• Það var sagt frá
því hér í þessum
dálki fyrir skömmu
að Fjármálaeftirlit
Páls Gunnars Páls-
sonar væri að herða
tökin á íslensku fjár-
málafyrirtækjunum
til að auka gagnsæi. Eftirlitið vill að
málum sé þannig háttað að þeir
sem stunda viðskipti með hlutabréf
viti hverjir eigi önnur bréf í
viðkomandi félagi hverju sinni. Með
þetta að markmiði, er eftirlitið að
athuga hverjir standi í raun á bak
við félög þar sem hlutir eru til að
mynda skráöir á Landsbankann
Lúxemborg fyrir hönd nafnlausra
eiganda...
*
• Annað sem er til skoðunar, er
hvernig mál standi með eignar-
haldið á íslands-
banka. Þegar síðast
var kosið í banka-
ráðið leit helst út
fyrir að BjamiÁr-
mannsson
bankastjóri væri
kominn með stjórn-
ina á bankanum
eftir langvarandi
átök við öfl í banka-
ráðinu. Þá hafði
Straumur keypt
stóran hlut í bank-
anum. í krafti þess
hlut-
ar fékk Bjarni völdin
og gat tfl að mynda
rekið Jón Þórisson
sem aðstoðarbanka-
stjóra en Jón hafði
notið stuðnings
þeirra sem voru
ósáttir við Bjarna í ráðinu, þeirra
fremstir Víglundur Þorsteinsson,
sem kenndur er við BM-Vallá, og
Helgi Magnússon...
• Nú velta menn í
viðskiptalífinu fyrir
sér hvort Straumur,
þar sem
olíuforstjórinn
fyrrverandi Kristinn
Bjömsson og Magn-
ús Kristinsson fara
með mest völd, hafi í raun náð að
virkja eignarhlut
sinn í íslandsbanka.
Reglurnar eru
þannig að eignar-
hlutur banka í
öðrum banka, skuli
dragast frá eigin fé
og um það er talað í
fjármálaheiminum að þetta hafi
ekki verið hugsað til enda. Ef •
Straumur þarf að selja sinn hlut í fs-
landsbanka getur allt aftur farið á
fullt, og þeir sem síðast voru keyptir
út, gætu safnað liði á ný tfl að ná
undirtökum í bankanum...
"T
• Gestur Kr. Gests-
son formaður fram-
sóknarmanna í
Reykja-
víkurkjördæmi
norður hefur
undanfarið komið
fram sem einn allra
helstí andstæðingur R-lista sam-
starfsins. Þetta er þó ekki í fyrsta
sinn sem Gestur veldur R-listanum
erfiðleikum. Fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar var hann bæði í
kosningastjórn og frambjóðandi.
Sem frambjóðandi þurftí hann að
skrifa undir framboðslistann en
vildi það ekki, þar sem hann taldi
sig vera að takast á fjárhagslegar
skuldbindingar með því. Það var
ekki fyrr en á síðustu stundu að
tókst að sannfæra Gest um að und-
irskrift hans hefði hreint ekkert með
peningamál listans að gera...