Bræðrabandið - 01.01.1979, Qupperneq 5
Tólf ára
drengur fræóir
fræÖimenn
Ellen G.White
Meðal Gyðinga var tólfta aldursárið
markalínan á milli bernsku og æsku. Að
náðum þeim aldri var hebreskur drengur
nefndur sonur lögmálsins og einnig son-
ur Guðs. Honum voru veitt sérstök tæki-
færi til uppfræðslu í trúarefnum og
honum var ætlað að taka þátt í heilögum
hátíðum og trúarathöfnum. í samræmi
við þessa verrju fór Jesús í páskaheim-
sókn sína til Jerúsalem í lok bernsku-
áranna. Eins og allir guðræknir ísra-
elsmenn fóru þau JÓsef og María á hverju
ári til að taka þátt í páskahátíðinni,
og þegar Jesús hafði til þess aldur,
tóku þau hann með sér.
Árlegar hátíðir voru þrjár, páskar,
hvítasunna og tjaldbúðahátíðin, en þá
var öllum karlmönnum í ísrael skylt að
koma fram fyrir Drottin í Jerúsalem.
Af þessum hátíðum var páskahátíðin
fjölsóttust. Þá komu margir frá öllum
þeim löndum sem Gyðingar voru dreifðir
um. Frá öllum hlutum Palestínu flykkt-
ust tilbiðjendurnir að. Ferðin frá
Galíleu tók nokkra daga, og ferðamenn-
irnir slógu sér saman í stóra hópa til
að njóta félagsskaparins og í öryggis-
skyni. Konur og aldraðir karlmenn
riðu uxum eða ösnum eftir hinxam bröttu
og grýttu vegum. Hinir þróttmeiri með-
al karlmannanna, svo og unglingarnir,
fóru fótgangandi. Páskana bar upp á
einhvern síðustu daga marsmánaðar eða
fyrstu daga apríl, og allt landið var
baðað í blómum og loftið kvað við af
fuglasöng. Öll var leiðin vörðuð'mark-
verðum stöðum úr sögu ísraels, og
foreldrarnir sögðu börnum sínum frá
þeim dásemdum sem Drottinn hafði unnið
þjóð sinni á liðnum öldum. FÓlkið
stytti sér stundir á leiðinni með
söng og hljómlist, og þegar turnar
Jerúsalem komu loks í ljós, tóku allir
undir fagnaðarljóðið:
"Fætur vorir standa
í hliðum þínum Jerúsalem.,,.
Friður sé í kringum múra þína
heill í höllum þínum." Sálm.122,2-7.
Páskahaldið hófst með tilkomu hinnar
hebresku þjóðar. Þegar engin lausn
virtist í nánd síðustu nótt ánauðar
hennar í Egyptalandi, bauð Guð Gyðingum
að búa sig undir tafarlausa frelsun.
Hann hafði kunngjört Faraó lokadóm yfir
Egyptum, og hann bauð Hebreum að hafast
við innandyra, með fjölskyldur sínar.
Er þeir hefðu stökkt blóði úr slátruðu
lambi á dyrastafi sína skyldu þeir eta
lambið steikt við eld með ósýrðu brauði
og beiskum jurtum. "Og þannig skuluð
þér neyta þess", sagði hann, "þér skul-
uð vera gyrtir um lendar yðar, hafa
skó á fótum og stafi í höndumj þér
skuluð eta það í flýti; það eru páskar
5