Bræðrabandið - 01.01.1979, Blaðsíða 8
ur sonur hins hæstaj og Drottinn Guð
mun gefa hon\am hásæti Davíðs föður hans.
Og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að
eilifu." Lúk.1,32-33. Og María hafði
geymt þessi orð í hjarta sínu; en þó
að hún tryði því að barn hennar ætti að
verða Messías ísraels, skildi hún ekki
ætlunarverk hans. En hún vissi að hann
hafði afneitað skyldleika við JÓsef og
hafði lýst sig son Guðs.
Jesús afrækti ekki skyldurnar við
jarðneska foreldra sína. Frá Jerúsalem
sneri hann heim með þeim og var þeim
stoð í daglegu lífsstriti þeirra. Hann
duldi í hjarta sínu leyndardóminn um
ætlunarverk sitt og beið í undirgefni
hins ákveðna tíma að hefja starfið.
í átján ár, eftir að hann hafði opin-
berað að hann væri sonur Guðs við\xr-
kenndi hann böndin sem bundu hann við
heimilið í Nazaret, og rækti skyldu
sonar, bróður, vinar og þegns.
Eftir að ætlunarverkið hafði opnast
Jesú í musterinu, forðaðist hann
samneyti við fjöldann. Hann óskaði að
snúa aftur frá Jerúsalem í kyrrþey
ásamt þeim sem þekktu leyndardóm
lífs hans. Með páskaþjónustunni vildi
Guð kalla þjóð sína burt frá veraldar-
vafstri sínu og minna hana á dásemdar-
verk sitt er hann leysti hana undan
kúgun Egypta. í þessu starfi óskaði
hann að hún sæi fyrirheitið um endur-
lausn frá syndum. Svo sem blóð slátur-
lambsins verndaði heimili ísraels, eins
skyldi blóð Krists bjarga sálum þeirra.
En þeir gætu aðeins frelsast fyrir
Krist með því að gera í trú líf hans að
sínu lífi. Gildi hinnar táknrænu þjón-
ustu var í því einu fólgin að beina
tilbiðjendunum til Krists sem hins
persónulega frelsara þeirra. Guð vildi
að þeir tækju upp bænrækna könnun og
íhugun varðandi ætlunarverk Krists. En
þegar fjöldinn tók sig upp frá Jerú-
salem beindist athyglin of oft að ný-
stárleika ferðalagsins og dægrastytt-
ingu með samferðafólkinu, og guðsþjón-
ustan sem menn höfðu tekið þátt í
gleymdist. Frelsarinn laðaðist ekki
að þeim félagsskap.
Þegar Jósef og María skyldu snúa
aftur frá Jerúsalem, ein ásamt Jesú,
vonaðist hann til að geta beint hugum
þeirra að spádómunum um hinn þjáða
frelsara. Á Golgata reyndi hann að
létta sorg móður sinnar. Hann var að
8
hugsa um hana nú. María átti eftir að
verða vitni að síðustu þjáningu hans,
og Jesús óskaði að hún skildi ætlunar-
verk hans til þess að hún öðlaðist
styrk þegar sverðið nísti sál hennar.
Svo sem Jesús hafði skilist frá henni
og hún hafði leitað hans harmþrungin
í þrjá daga, þannig mundi hann, þegar
honum yrði fórnað fyrir syndir heimsins,
verða henni týndiir í þrjá daga. Og
þegar hann kæmi aftur upp úr gröfinni,
mundi sorg hennar aftur snúast í fögnuð.
En hversu miklu betur hefði hún af-
borið angistina yfir dauða hans ef
hún hefði skilið ritningarnar sem
hann var að reyna að vekja athygli
hennar á.
Ef Jósef og María hefðu stöðvað hug
sinn við Guð með hugleiðingum og bæn,
hefðu þau skilið heilagleik trúnaðar-
starfs síns og þau hefðu þá ekki misst
sjónar á Jesú. Fyrir eins dags van-
rækslu höfðu þau týnt frelsaranum.
En það kostaði þau þriggja daga harm-
þrungna leit að finna hann. Eins er
okkur farið. Með fánýtu tali, ill-
mælgi eða vanrækslu í bænahaldi kunnum
við á einum degi að varpa frá okkur
návist frelsarans og það getur kostað
margra daga harmþrungna leit að finna
hann og endurheimta þann frið sem okkur
hvarf.
í samskiptunum hver við annan ættum
við að gæta þess að gleyma ekki Jesú,
að ana ekki áfram án þess að taka eftir
að hann er ekki í fylgd með okkur.
Þegar við sökkvum okkur niður í verald-
leg viðfangsefni svo að við höfum enga
hugsun á honum, sem vonin um 'eilífa
velferð okkar byggist á, fjarlægjum við
okkur Jesú og hinum himnesku englum.
Þessar heilögu verur geta ekki haldist
þar sem nærveru frelsarans er ekki
óskað og fjarveru hans er ekki gaumur
gefinn. Vegna þessa ríkir svo oft
sinnuleysi meðal þeirra sem í orði játa
Krist.
Margir sækja guðsþjónustur og
endurnærast og huggast af orði Guðs. En
vegna vanrækslu á hugleiðingu, gaum-
gæfni og bænahaldi missa þeir af bless-
uninni og finnst þeir vera ráðvilltari
eftir en áður. Oft finnst þeim Guð
hafa verið þeim harðhentur. Þeir sjá
ekki að sökin er þeirra sjálfra. Með
því að fjarlægja sig Jesú hafa þeir
lokað úti birtuna af nálægð hans.
14---►