Bræðrabandið - 01.01.1979, Side 16
SÁLMABÓKIN NÝJA
Alltaf er eitthvað unnið við nýju
sálmabókina. Búið er að ljúka setningu
á nær öllum textun\am og verið er að
setja nótur. Einnig er verið að líma
texta inn á nóturnar. Þetta allt er
undirbúningsvinna áður en myndataka og
prentun getur hafist. Þetta er allt
mikið þolinmæðisverk og nákvæmnisverk
og er erfitt að segja hvenær verkinu
verður lokið.
BÆNAVIKA
Þann 26.jan.-4.feb. er áætlað að
halda bænaviku á Hlíðardalsskóla.
Harald Wollan, æskulýðsleiðtogi í
Norður-Noregi er væntanlegur til lands-
ins vegna bænavikunnar. Bænavika á
skólum. okkar hefur orðið afdrifarík
í lífi margra ungmenna. Til slíkrar
viku geta margir rakið afturhvarfsitt.
GUYANA:
FIMMTÍU SAMKOMUSERÍUR LEIKMANNA
LEIÐA TIL ÞESS AÐ 246 SAMEINAST SÖFN-
UÐINUM.
Haldnar voru 50 samkomuseríur þar
sem yfir 300 safnaðarmeðlimir í Guyana
tóku þátt og skírðust 246 inn í söfnuð-
inn í mars 1978.
Snemma í mánuðinum fóru prestarnir
Gordon 0.Martinborough og Reynold Howell
af stað með samkomur í nær öllum hverfum
x Georgetown-borg. Prestarnir tveir
höfðu sett saman ræður fyrir hvert kvöld
og höfðu fræðslusamkomur fyrir safnaðar-
fólk á undan og eftir samkomuseríunni
fyrir almenning.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu Sam-
takanna í Guyana sem svo margir leik-
menn tóku þátt á sama tíma. Meir en
helmingur leikprédikaranna var konur
sem margar hverjar voru að koma fram í
fyrsta sinn í ræðustóli. Yngsti leik-
prédikarinn var 13 ára sonur safnaðar-
formanns.
Tuttugu aðrar samkomuseríur byrjuðu
30.apríl.
Hilton E.Garnett,Blaðafulltrúi
Samtaka aðventista í Guyana.
KENYA:
SDA NEMENDUR VINNA AÐRA:
Margir af meir en 300 ungum aðvent-
istum í þrem háskólum í Afríku hafa
snúist til aðventtrúar eftir að hafa
verið leiddir af samnemendum sínum til
Krists í útibúum hvíldardagsskóla og
fyrir Biblíurannsókn.
Harald Knott leikmannaleiðtogi
Evrópu og Afríku-deildar segir eftir að
hafa sótt leikmannamót í Naíróbí í
Kenya s.hl. júlí (1978) að M.J.Mutinga,
sem kennir við Naíróbí háskóla, hafi
sagt á mótinu að lítill hópur aðvent-
ista, nemenda við háskólann, hafi
stofnað félag fyrir sjö árum. Mark-
miðið var að uppörva hver annan með
því að lesa orð Guðs saman og að
leitast við að vinna aðra til Krists.
Reglulegur þáttur í starfi þeirra
er árlegt mót sem nemendur og útskrif-
aðir sækja og ræða þá leiðir í sálna-
vinnandi starfi og boðun og hvernig
megi leysa ákveðin vandamál.
Leikmenn styðja hópinn, margir
þeirra eru fyrrverandi nemendxir og sjá
nemendunum fyrir bókum, blöðum og
aðventritum til að dreifa meðal samnem-
enda.
Edward E.White,Menntamálaritari
Evrópu og Afríku-deildar.
TIL ÍHUGUNAR:
"Allir ættu að minnast þess að
kröfur Guðs á okkur koma á undan öllum
öðrum kröfum. Hann gefur okkur af
gnóttum sínum og sá samningur sem hann
hefxir gert við manninn er að tíunda
hluta af eignum hans sé skilað aft\ir
til Guðs. Drottinn felur í náð sinni
fjársjóði sína ráðsmönnum sínum en um
tíunda hlutann segir hann: Hann er minn.
í hlutfalli við það sem Guð hefur gefið
manninum af eignum sínum á maðurinn að
skila Guði aftur trúverðugri tíxind af
öllum eigum sínum. Þetta greinilega
fyrirkomulag gerði Jesús Kristur sjálf
sjálfur." BS.322