Bræðrabandið - 01.03.1979, Side 3
gerist. TÍminn er kominn. Ástandió
krefst þess. Allt sem við höfum verið
að tala um áratugum saman er nú að
uppfyllast. Málefnið er til staðar.
Skipulagið er til scaðar. Fólk Guðs
er um alla jörðina. Hví hefst Guð
ekki handa og fullnar verk sitt? Hví
bíður hann?
Getur verið að fólk hans sé ekki
tilbúið til þess að hann geri bað?
Getur það verið að Sjöunda dags aðvent-
istar séu í slíku ásigkomulagi að Guð
geti ekki hætt á að beina athygli
heimsins að þeim? Getur það verið að
andlegt líf þeirra sé á svo lágu stigi
að það yrði fremur til skaða en til
hjálpar fyrir mikinn fjölda þeirra,sem
eru ekki aðventistar að koma inn á
meðal þeirra? Getur það verið að við
- þau okkar sem lesa þessi orð - séum
að hindra Guð, halda aftur af verki
hans, kollvarpa ætlun hans um að binda
dýrðlegan endi á þennan boðskap? Getur
það verið að við séum í rauninni í
vegi fyrir vexti Guðs starfs í stað
þess að hjálpa til að auka á framgang
þess?
Siðbót mótmælenda
Guð hefur gert mikla hluti á
liðnum árum. Fyrir fjórum öldum komst
hann í snertingu við kaþólskan kennara
að nafni Marteinn LÚter og fyrir hann
og hina helguðu samstarfendur hans
kom hann af stað siðbót mótmælenda. Á
næstu öld kom endurvakning PÚrítana.
Því næst kom á næstu öld endurvakning
Wesley. Svo á nítjándu öldinni kom
lokaboðskapur fagnaðarerindisins í
heiminn með William Miller og aðstoð-
armönnum hans.
Og sá boðskapur hefur vaxið og
náð út um allan heim, til ystu endi-
marka veraldar. Mikil skipulagning
hefur orðið til undir handleiðslu
Guðs, guðleg leiðsögn hefur verið
veitt, sannleikurinn hefur verið
gróðursettur og fest rætur alls staðar,
söfnuðir hafa sprottið upp í öllum
löndum, skólar og heilsuhæli og út-
gáfufyrirtæki eru vxða. Baskurnar
streyma út í milljónatali og boðskap-
urinn berst á öldum ljósvakans um alla
jörðina.
Og samt snúast hjólin þunglama-
lega. Sálirnar streymta ekki inn í
söfnuðinn eins og við gætum með góðri
ástæðu búist við. Starfið hefur ekki
eins góðan framgang sem skyldi þrátt
fyrir allan þroska þess. Það er nóg
af starfi og fjöri en lítið um fram-
farir. Það er deyfð, næstum dauði í
mörgum söfnuðum, festuleysi í prédikun
okkar og skortur á krafti og jafnvel
lífi í vitnisburði okkar, og er það
sláandi hvað það hefur mikið að segja.
Ástand Guðs fólks
Allt annað í heiminum er í því
ástandi, sem hinir fornu spádómar sög
sögðu fyrir viðvíkjandi enda mannkyns-
sögunnar - allt nema fólk Guðs. Spá-
dómarnir hafa uppfyllst eða eru að
uppfyllast. Eins og fyrir hafði verið
sagt um er aukning mannlegrar þekking-
ar í hverri grein orðin - vísindaleg,
tæknileg, félagsleg og í iðnaði. Efna-
leg aukning er orðin gífurleg. Þjóð-
irnar og lýðurinn eru orönar ríkari
á fimm síðustu öldum en á öllum öldum
mannkynssögunnar fram að þeim tíma.
Það frávik frá hinni sönnu trú,
sem sagt hafði verið fyrir um, er orð-
ið,.hið mikla fráhvarf, tilkoma anti-
krists og fráfall fjöldamargra mót-
mælandahreyfinga frá trúnni. Aukist
hafa fölsk trúarbrögð, djöfullegur
hugarburður og uppfinningar, árásir
gegn Biblíunni og grundvallarsann-
leiksatriðum hennar, höfnun kenninga
kristinnar trúar í hinum svokölluðu
kristnu kirkjum.
Ég segi aftur, að allt er tilbúið
og við því búið að Drottinn komi aftur,
nema fólkið sem er að segja heiminum
frá því, hvað koma hans er nálægt.
Það er ekki tilbúið. Það er ekki til
neins góðs að neita því. Það er ekki
til neins góðs að sniðganga þetta.
Það er betra að horfast í augu við það.
Þegar við játum þörf okkar getum við
af skynsemi farið af stað til að upp-
fylla hana. Það er tilgangur þessara
greina - að hjálpa okkur til að gera
okkur grein fyrir og skýrgreina þörf
okkar, og leita til Guðs í þann gilda
sjóð, sem hann hefur til að veita af.
Það er til lyf. Syndina er hægt
að afnema úr lífi okkar. Það lyf get-
um við fengið. Viðbúnaður okkar til
að mæta Guði getur verið fullkominn
og algjör. □
3