Bræðrabandið - 01.03.1979, Page 7
MEÐGUÐI
D. BAASCH
A ÖLD SIÐFERÐISMYRKURS SEM VAR
SVARTARA EN ÞAÐ ER I DAG UPP-
GÖTVAÐI MAÐUR EINN LEYNDARDÓM
RÉTTLÆTISINS.
Hann lifói á tímabili begar lífið
var auðveldara og umhverfið fábrotnara.
Það var ekki svo margt sem seiddi hug-
ann, sem kallaði á athyglina - engin
litskrúðug timarit, ekkert hljóðvarp
eða sjónvarp til að hella heimslegu
efni yfir hlustandann.
Er þessi mynd af tíma Enoks sönn?
Eða leggur hún of mikla áherslu á
"fábreytni" lífsins í fortíðinni?
Ellen White svarar: "Það hefur aldrei
verið sá tími og mun aldrei verða er
siðferðismyrkrið verður jafn svart og
á dögum Enoks er hann lifði flekklausu
lífi réttlætisins." The S.D.A.Bible
Commentary l.bindi bls. 1088.
Ef það samfélag sem Enok lifði í
fyrir meira en 4000 árum var myrkara
siðferðislega en okkar öld ættum við að
líta náið á líf hans til þess að læra
það hvernig lifa má á tímabili sem var
á lægra siðferðisstigi en okkar öld en
gat samt verið nógu réttlátur fyrir
himininn.
Við rannsökum oft ekki ævisögu
Enoks sem Móse skrifaði því hún er svo
Harold D.Baasch starfar við Columbía
Union College.
Grein úr Review 28.desember 1978
stutt. En sú setning sem er athyglis-
verðust er þessi: "Enok gekk með Guði"
(1.Mós.5,22.24).
Enok gekk með Guði. Orðið með
opinberar traust Enoks á Guði. Hann
hljóp ekki á undan Guði til þess að
reyna að vera með forspár um áform
Guðs fyrir hann. Ekki gekk hann held-
ur á eftir til þess að draga í efa
leiðsögn Guðs. Hann var við hlið Guðs,
næmur fyrir leiðsögn hans, fús til þess
að breyta til eftir því sem Guð gaf til
kynna.
Enok gekk með Guði. Orðið gekk
lýsir því hvernig sambandið milli Guðs
og Enoks var - samband sem var þess
virði að breytt væri eftir því.
Af hverju göngum við með einhverj-
um? í fyrsta lagi af því að við erum
að fara í sömu átt. Þannig var það
með Enok. Enok og Guð voru á leið
til himins.
Önnur ástæða fyrir því að við
göngum með einhverjum er að hann er
vinur. Ef við erum á gangi og sjáum
vin þá annað hvort bíðum við eftir hon-
um,förum yfir götuna og sláumst í för
með honum eða hlaupum yfir götuna til
þess að ná honum svo við getum gengið
saman. Þegar við göngum saman tölum
við um vonir okkar, starf okkar, drauma,
vandamál,velgengni,mistök eða eitthvað
sem kemur okkur í huga af því að við
erum vinir.
Þannig var það með Enok. Enok tal-
aði við hann xm vandamál sín, vinnu,
vonir, drauma, árangur, mistök eða hvað
eina af því að þeir voru vinir.
Þriðja ástæðan fyrir því að við
göngum með einhverjum er að við elskum
hann. Hafið þið einhvern tímann tekið
eftir því hvernig tvær ungar manneskjur
sem eru ástfangnar ganga saman? í
skóla, úr skóla, x kirkju, úr kirkju.
Oft er áformum breytt og aftur breytt
og enn aftur breytt til þess að hinar
ungu persónur geti verið saman. Eru
orðin þægilegt eða óþægilegt tekin til
íhuganar? Naumast,það er ef persónurn-
ar tvær eru sannarlega ástfangnar. Það
er ekkert jafn þýðingarmikið og sú
gleði að eiga stundir með þeim sem
maður elskar.
Þannig var það með Enok og Guð það
var alltaf tími fyrir Guð á hverjum
degi af þvi að Enok elskaði Guð. □
7