Bræðrabandið - 01.03.1979, Side 10
NÍU HJÓNABANDSBODORD
EKKI ER TIL NEIN EIN LEIÐ TIL
SÆLU I HJÓNABANDI
R. M. CRISTENSON
Hjónabönd kristinna manna eru víða
að leysast upp. Er eitthvað sem hægt
er að gera - eitthvað markvisst - tii
þess að breyta þeirri þróun?
Ég er hér með níu boðorð sem gætu
að mínu áliti orðið til þess að bæta
mörg hjónabönd sem eru að fara í hund-
ana og líka bætt góð hjónabönd.
1. Bæði hjónin eigi þátt í því að
taka þýðingarmiklar fjölskylduákvarðan-
ir. Eiginmaðurinn kann að vera höfuð
heimilisins en ef hann elskar eiginkonu
sína sem sitt eigið hold mun hann gefa
henni jafnan rétt til þess að taka
ákvarðanir í þeim málum sem snerta hana.
Á líkan hátt má segja um konuna að ef
hún hefur ráðandi persónuleika ætti
hún að hamla á móti því að sýna ráðríki.
Enginn vill vera fórnarlamb harðstjórn-
ar. Harðstjórn á heimilinu er enn
sársaukafyllri en harðstjórn í landinu.
Og minnumst þess að jafnvel góðviljaðir
einræðisherrar eru samt einræðisherrar.
2. Hjónin þurfa öðru hvoru að
ihuga ástand hjónabands síns. Hvert
stefna þau í hjúskap sínum og hvað er
hægt að gera til þess að bæta hjóna-
bandið?
Það er skynsamlegt að byrja með
því að rifja upp styrkleika hjónabands-
ins. Séu þessir þættir rifjaðir upp
minna þeir hjónin á það sem vel hefur
tekist og hversu mikið þau geta verið
þakklát fyrir hjónabandið.
Hvor aðilinn um sig ætti að spyrja
hinn: "Geri ég eitthvað þó að lítil-
fjörlegt sé sem þér er ógeðfellt?"
Eða: "Hvað get ég gert sem ég geri ekki
núna sem yrði til þess að bæta tilfinn-
ingar þínar gagnvart mér og leiða til
Dr. R.M.Christenson er prófessor í
stjórnmálafræðum við Miami háskólann
i Oxford í Ohio.
Grein úr Review 28.desember 1978
ÍO
þess að þú værir ánægðari með hjónaband
okkar?"
Ef það er eitthvað sem hefur þýð-
ingu ætti að athuga það og leiðrétta
það. Ef til vill er það eitthvað sem
við viljum ekki kunngera en hefur samt
verið stöðug orsök til leiðinda árum
saman. Það er betra að segja það blíð-
lega, en samt skýrt, heldur en að láta
það verða að alvarlegu vandamáli.
Smámunir geta orðið afar ertandi.
Það kann að vera að ekkert sé rangt við
hlutinn en hann hefur samt sín áhrif
engu að síður. Það skiptir ekki máli
þó að viðbrögðin við hlutnum séu óskyn-
samleg, ef eitthvað ertir þá ertir það.'
Tilfinningar okkar falla ekki ávallt í
farveg rökhyggju og það er ekki hægt að
færa rök fyrir því að gefa þær upp á
bátinn.(Stundum líður okkur betur fyrir
það eitt að fá útrás fyrir þær).
Fátt bætir meira hjónabandið en
fúsleiki til þess að segja skilið við
það sem nagar rætur og grundvöll far-
sældar hjónabandsins. Auðvitað getur
persónan ávallt staðið á"rétti"sinum
og ásakað hinn aðilann um að láta smá-
muni koma sér úr jafnvægi en því aðeins
að hann hafi meiri áhuga á lítilfjör-
legum "rétti" en jafnræði í hjónaband-
inu.
3. Vera fús til að segja:"mér
þykir fyrir þiví að hafa sagt þetta",
"mér þykir fyrir því að ég gerði þetta."
Jafnvel bestu makar eiga það til stöku
sinnum að segja eða gera það sem betur
væri ósagt eða ógert. Að segja "fyrir-
gefðu" er oft erfitt - feikilega erfitt.
En þau hjónabönd þar sem aðilarnir geta
látið af hroka sínum, tekið í sig
kjark og talað þessi töfraorð eru þau
hjónabönd sem vísust eru til þess að
halda velli.
Sættir ættu alltaf að takast áður
en dagurinn er á enda. Hvernig geta
kristnir menn farið með kvöldbænirnar
sínar ef þeir ala á særindum í brjósti
sér gegn maka sínum eða ef deiluefni er
ekki útkljáð? Þá föstu reglu ætti að
setja að öll sár verða að hljóta lækn-